Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Í dag væri ráð að afmarka verk- svið handa einhverjum eða fyrir ótilgreint verkefni. Berðu saman verð og gæði því þá geturðu gert góð kaup. 20. apríl - 20. maí  Naut Gættu þess að lofa engu nema þú ætlir þér að standa við það. Aðrir hlusta á þig og þú skalt nýta það til að reyna að hafa bætandi áhrif á samfélag þitt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er svolítið hastarlegt að uppgötva það að hafa leitað lausnarinnar yfir lækinn, þegar hún var allan tímann við höndina. Og ef þú íhugar málið, þá er það alveg satt! 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú færð tækifæri til þess að láta draum þinn rætast. Persónulegur stíll þinn laðar að þér nýja vini og viðskiptavini. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Innst inni bærist löngun til að vita hvers megnug(ur) þú ert. Hið góða er, að allir virðast skilja þig – himintunglin hjálpa til við að stilla bylgjulengd þeirra sem hlusta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki er víst að svefnhöfginn sem þú finnur fyrir sé líkamanum að kenna. Vertu í samvistum við einhvern sem gefur af sér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Valdabarátta við samverkamenn er líkleg í dag. Maður getur aukið traust sitt á sjálfum sér með því að tryggja að orð og gerðir fari saman. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt sjálfsgagnrýni sé góður kostur má hún ekki ganga svo langt að drepa allt frumkvæði í dróma. En hún er svar sem virkar vel við sumum spurn- ingum þínum í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Skemmtanaiðnaðurinn laðar og lokkar, en þar sem annars staðar er hóf best á hverjum hlut. Varastu því aula- fyndni og ódýr loforð. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er í mörg horn að líta hjá þér bæði í leik og starfi. Flýttu þér samt hægt og gerðu ekkert að óathuguðu máli. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gættu að því að ætla þér stund í næði til að ígrunda þá stefnu sem líf þitt hefur tekið. Treystu á innsæi þitt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ekki láta aðra þagga niður í þér, þegar þú vilt tjá tilfinningar þínar í orðum. Þú átt erfitt með að einbeita þér að vinnunni. Ég hygg að svo sé um fleiri en mig, þegar nýju ári er heilsað, að sálmur séra Matthíasar komi upp í hugann, – sálmur sem gömul kona sagði mér að væri fegursta ljóð á íslenska tungu. Ég óska lesendum Vísnahorns árs og friðar með því að rifja upp fyrstu erindin: Hvað boðar nýjárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól, hún flytur líf og líknarráð, hún ljómar heit af Drottins náð. Sem Guðs son forðum gekk um kring, hún gengur ársins fagra hring og leggur smyrsl á lífsins sár og læknar mein og þerrar tár. Séra Matthías var mikið ólík- indatól og hafði gaman af því að láta móðan mása. Og oftast – oft a.m.k. – varð rausið að skáldskap, enda sagði Þórarinn skólameistari að séra Matthías ætti mest andríki íslenskra skálda (án þess að orðrétt sé eftir honum haft). Hér koma „Nýárs vísur til ungfrú V.E.1858“: Nú er risinn nýjársdagur! njólu eyðir geisli fagur, hafna blundi mæra meyja, morgunroðans þiggðu koss! Láttu æsku, yndi kæti út þér fylgja – úr tignarsæti þá mun röðull ástarauga og undurskært þér senda bros. Gleymdu ekki, unga meyja! eitt sinn verður rósin deyja, og rós ertu því roða lífsins rétt að nota lærðu í tíð! Lifðu eins og lilja í haga! lastfrí, glöð um alla daga, og bið þig engil blíðan styðja á brautu dyggða fyrr og síð! Nýárskveðjur eru með ýmsu móti. Stephan G. Stephansson sendi síra Rögnvaldi Péturssyni þessar árið 1923: Blaðið mitt á enda er, og ýmislegt að gera. „Veit ég ei hvers biðja ber“ – en blessaður skaltu vera. Um þig árið ið nýja vil að annt láti sér. – Leggist hamingja og heilsa í hömina á þér! Guðmundur skáld á Sandi yrkir nýársdagsvísu 1938: Sólargang lengir, sunnanblærinn hlýn- ar. Svellrunnið hjarn í brekkuslakka dvín- ar. Uppi á himni opnar hallir sínar eilífðin. – Heyrðu! Kysstu varir mínar! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Séra Matthías, Stephan G. og skáldið á Sandi Í klípu „ÞETTA ER ALGJÖRT RUGL! ÉG KREFST ÞESS AÐ FÁ AÐ TALA VIÐ EINHVERN HÆRRA SETTAN.!“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „AUÐVITAÐ VARST ÞÚ DÆMDUR ÚR LEIK! ÞÚ STYTTIR ÞÉR LEIÐ YFIR BÍLASTÆÐIÐ!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hefja sjálfstæðan rekstur saman. ÁSTARHJÖRTU EHF. KLUKKAN ER AÐ VERÐA FIMM, HROLLUR! ALLT Í LAGI, ÉG SKAL SPYRJA HANN. HVAÐ SEGIRÐU UM AÐ TAKA PÁSU NÚNA, SVO VIÐ KOMUMST Á HAPPY HOUR Á KRÁNNI ... ... OG HITTAST SVO AFTUR HÉR KLUKKAN HÁLFSJÖ? ALLT Í LAGI! HÆTTESSU! HAHAHAHAHA! OHO! OHO! OHO! EKKI! HÆTTU! ÍHÍHÍHÍ! ÍHÍHÍ! JÆJA, BÚINN AÐ KITLA SJÁLFAN MIG. GERÐU ÞAÐ, BORGAÐU AF STÖÐ TVÖ. Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð oghægt að kveðja hið liðna. Fyrir Víkverja var árið 2013 með þeim betri á hans tiltölulega stuttu ævi, og hefði hann því ekkert á móti því að geta endurtekið margt sem gerðist á árinu. En aldrei það kemur til baka víst, og því ekki um annað að ræða en að ylja sér við minningarnar. Og kannski leggja sitt af mörkum til þess að gera 2014 að jafngóðu, ef ekki betra ári en það liðna. x x x Eitt af því sem Víkverji hefur veriðduglegur við síðustu árin er að strengja áramótaheit. Við fæst þeirra hefur hann hins vegar staðið. Nú er Víkverja hins vegar alvara með þeim. Nú skulu aukakílóin fjúka, nú skal Víkverji hætta að reykja. Reyndar hefur Víkverji aldr- ei reykt að staðaldri, þannig að hann hafði hugsað sér að byrja að reykja seint á gamlárskvöldi, og hætta því svo snaróðum á nýársmorgun. Hósta jafnvel vönum reykinga- mannahósta inni á milli og minna sjálfan mig á að þetta sé nú meiri ósiðurinn. Árangurinn af því ára- mótaheiti yrði Víkverja svo hvatning til þess að standa við hin. x x x En rétt um það leyti sem Víkverjifór að útfæra það hvernig best væri að standa að áramótaheitinu rifjaði hann upp þá speki að best væri að byrja aldrei á þeim ósóma að reykja. Víkverji er heldur ekki þessi harðgera reykingatýpa sem getur kúldrast upp undir vegg í öllum veðrum, úthýst úr samfélagi manna. Víkverji ákvað því að láta það vera að hætta að reykja, svona fyrst hann var aldrei byrjaður á því. En eftir sitja þá öll hin áramótaheitin, sem líklega verða aldrei uppfyllt. x x x Víkverji er forfallin fótboltabulla.Þrátt fyrir það taldi hann að Aníta Hinriksdóttir yrði íþróttamað- ur ársins 2013. Víkverji varð vissu- lega fyrir vonbrigðum með að svo varð ekki, en hann getur ekki skilið þau viðbrögð fólks að tala niður Gylfa Sigurðsson. Hvenær var hætt að bera virðingu fyrir ólíkum skoð- unum? víkverji@mbl.is Víkverji Og ég segi yður: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, kný- ið á og fyrir yður mun upp lokið verða. (Lúkasarguðspjall 11:9) Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is Hurðapumpur fyrir hurðir og glugga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.