Morgunblaðið - 02.01.2014, Page 36

Morgunblaðið - 02.01.2014, Page 36
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Slasaðist alvarlega í flugeldaslysi 2. Ellefu voru sæmdir fálkaorðu 3. 13 marka stúlka fyrsta barn ársins 4. Andlát: Inga Marianne Ólafsson »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Bono, söngvari hljómsveitarinnar U2, kom til Reykjavíkur á gamlársdag ásamt fjölskyldu og vinum til að njóta reykvísku dýrðarinnar um áramótin. Tónlistarmaðurinn Damien Rice var einnig með honum í för. Bono sást fagna nýju ári á Skólavörðuholtinu og fréttist af honum í áramótateiti hand- boltastjörnunnar Ólafs Stefánssonar. Á nýársdag skellti söngvarinn og fjölskylda hans sér á Hamborgarabúll- una við Geirsgötu en þar hitti Bono fyrir feðgana Guðna Val og Auðun Sól- berg Valsson. „Hann er mjög viðkunn- anlegur maður. Sonur minn hefur lengi verið mikill aðdáandi hans og þetta var alveg ótrúleg upplifun fyrir hann,“ segir Auðunn en Bono tók sjó- mann við Guðna Val og sat fyrir á mynd með honum. Þá áritaði hann U2- plakat sem hékk uppi á staðnum áður en hann renndi niður einum hamborg- ara. AFP Söngvarinn Bono í Reykjavík um áramót  Nýr tónlist- arvefur, music- ant.is, var opn- aður 1. janúar. Musicant.is er netmiðill þar sem áhersla er lögð á fréttir og greinar um íslenska tón- listarmenn, hljóð- færaleikara, hljómsveitir, hljóðmenn og kóra. Einnig eru pistlar um hljóð- færi og græjur, auk kynninga á hljóð- verum, tónlistarskólum, námi o.fl. Musicant.is nýr ís- lenskur tónlistarvefur Á föstudag og laugardag Norðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða slydda á Vestfjörðum, en annars 8-15 og rigning eða slydda með köflum. Hiti 0 til 7 stig, svalast á Vestfjörðum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvessir með vaxandi úrkomu austast seinni- partinn. Norðaustan 15-23 m/s í kvöld og rigning eða slydda norð- an- og austantil, en þurrt að kalla sunnan- og vestanlands. VEÐUR Arsenal er áfram í efsta sæti ensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu eftir nauman sigur á Cardiff í gær, 2:0, þar sem bæði mörkin komu á lokamín- útum leiksins. Arsenal er stigi á undan Manchester City, sem vann Swansea 3:2, og tveimur á undan Chelsea sem vann South- ampton, 3:0. Tottenham vann frækinn sigur á Man. Utd á Old Trafford. »1 Arsenal er áfram í toppsætinu Mikill munur er á deildunum tveimur í NBA-körfuboltanum í vetur og Gunn- ar Valgeirsson, sérfræðingur Morg- unblaðsins, skrifar að slök frammistaða lið- anna austanmegin sé nánast aðhláturs- efni. Portland Trail Blazers og Phoe- nix Suns eru þau lið sem hafa komið mest á óvart í jafnri og sterkri Vest- urdeildinni. »2-3 Slök frammistaða aust- anliðanna aðhlátursefni Helena Sverrisdóttir, fremsta körfu- knattleikskona landsins, er ánægð með hlutskipti sitt hjá ungverska lið- inu Miskolc, sem hún gekk til liðs við fyrir þetta tímabil. „Nú er hrikalega gaman að fá fullt traust frá stjórninni og þjálfurunum. Ég finn hvernig sjálfstraustið er komið aftur,“ segir Helena sem býr í mun rólegri borg en hún gerði í Slóvakíu. »4 Finn hvernig sjálfs- traustið er komið aftur ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Auðvitað leiðir þessi góði árangur til þess að maður verði, að minnsta kosti að einhverju leyti, fyrirmynd jafnaldra sinna og skólasystkina. Núna í kringum jólin hafa þau nokk- ur komið til mín og spurt hver lykill- inn að þessu sé. Og skýringin er svo sem ekki flókin,“ segir Gísli Þór Ax- elsson. Hann brautskráðist á dög- unum með stúdentspróf af nátt- úrufræðibraut frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Var dúx, ekki bara á önninni, því aldrei í um það bil þrjá- tíu ára sögu skólans hefur nemandi náð jafn hárri meðaleinkunn, það er 9,88. Er óhætt að fullyrða að fáir geri svo vel, jafnvel þótt árangur nemenda úr fleiri framhaldsskólum landsins sé tekinn með í reikninginn. Ljúka verkefnum fljótt og vel „Uppskriftin að því að farnast vel í námi er að taka námið skipulega og leggja vinnu í hlutina. Taka einn dag í einu og ljúka þeim verkefnum sem fyrir liggja bæði fljótt og vel. Láta heldur ekkert safnast upp og það versta er ef maður til dæmis frumles námsbækurnar fáeinum dögunum fyrir próf. Sú aðferð er raunar dæmd til þess að mistakast,“ segir Gísli Þór sem er sonur Axels Þórs Gissurarsonar og Ásdísar Bjargar Ingvarsdóttur. Ágætiseinkunn er lýsing sem stundum er notuð um árangur þeirra nemenda sem best gera og hæst skora. Ef til vill má nota ögn hástemmdari lýsingar um það hvernig Gísla Þór hefur vegnað, en hann er aðeins átján ára og náði stúdentsprófinu á aðeins sjö önnum en flestir þurfa átta annir til. Góður í raungreinum „Nei, ég tók þetta svo sem ekki með neinu áhlaupi heldur var bara á þessu venjulega róli og var að taka rétt um tuttugu námseiningar á önn,“ útskýrir Gísli Þór sem segir stærðfræði, eðlisfræði, líffræði og aðrar raungreinar liggja vel fyrir sér. „Stærðfræðin er áhugaverð en um hana eins og aðrar greinar gildir að maður verður að leggja vinnu í hlut- ina. Ég tók sjö áfanga í stærðfræð- inni og alls 21 námseiningu – já og var alltaf með 10,“ segir Gísli Þór sem var þegar allur námsferilinn var skoðaður með níu í sjö greinum og tíu í 42 námsáföngum. Þykir þetta lofsvert og þegar okkar maður gekk af sviðinu við brautskráningarathöfn var hann klyfjaður bókum og ýms- um öðrum viðurkenningum, svo sem frá skólanum og hollvinasamtökum hans. Í trésmíði en stefnir á lækninn Stundum er sagt að eftir því sem fólk hafi fleiri járn í eldinum og meira að gera þeim betur skipuleggi það sig og skapi sér þannig tíma. Þannig hefur Gísli Þór sannarlega haft fókusinn á náminu en einnig sinnt áhugamálum sínum af krafti og stundað handbolta, körfubolta og tekið þátt í ýmsu öðru tómstunda- starfi. Sú var tíðin að fólk var fært í flest- an sjó og að sumra mati fullnuma komið með stúdentsprófið. Í dag eru kröfurnar meiri og að hætti metn- aðarfullra námsmanna stefnir Gísli Þór lengra og stefnir á nám í lækn- isfræði við Háskóla Íslands strax í haust. „Það komast aðeins 48 inn í læknadeildina á hverju hausti og því þarf maður að fara að undirbúa sig,“ segir Gísli Þór en inntökuprófin í læknisfræðinni byggjast á því að könnuð er almenn þekking fólks á ýmsum þáttum, svo sem á því hvað það hafi á takteinum til dæmis af námsefni framhaldsskólans. „Ég verð að vinna við trésmíði fram á sumar en get svo legið í bókum á kvöldin og undirbúið mig fyrir lækn- isfræðina sem mér finnst mjög áhugaverð.“ Með tíu í 42 námsáföngum  Gísli Þór Axelsson dúxaði með ofureinkunnir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dúx Gísli Þór Axelsson náði afbragðsgóðum árangri við Fjölbrautaskóla Suðurlands og brautskráðist með 9,88 á stúdentsprófi. Í viðurkenningarskyni fékk hann fjölda bóka sem koma munu sér vel því Gísli stefnir á frekara nám.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.