Morgunblaðið - 25.01.2014, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2014
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Brids í Stangarhyl
Fimmtudaginn 16. janúar var spil-
aður tvímenningur hjá bridsdeild
Félags eldri borgara, Stangarhyl.
Spilað var á 11 borðum. Efstu pör í
N/S
Björn Árnason - Auðunn Guðmss. 246
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 242
A/V
Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 251
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 235
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Mánudaginn 20. janúar var spil-
aður tvímenningur hjá bridsdeild
Félags eldri borgara, Stangarhyl
Efstu pör í N/S:
Soffía Daníelsd. – Kristín Guðbjörnsd. 253
Örn Ingólfsson – Steinn Lárusson 239
A/V
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 265
Bjarni Guðnas. – Guðm. K. Steinbach 263
Fimmtudaginn 23. janúar var spil-
aður tvímenningur á 13 borðum.
Efstu pör í N/S:
Magnús Oddss. - Oliver Kristófersson 388
Jón Hákon Jónss. - Höskuldur Jónss. 351
A/V
Bjarni Guðnas. - Guðm. K. Steinbach 384
Kristín Guðbjörnsdóttir. -
Friðgerður Benediktsdóttir 354
Helgi Skálholtsstaðar
snertir alla þjóðina, stað-
urinn sjálfur, dómkirkj-
an, sagan og mannvist-
arleifar á staðnum.
Þarna eru líka ómet-
anlegir listmunir og list-
búnaður sem varðveita
ber og sýna fulla rækt og
virðingu. Þetta eru þjóð-
argersemar.
Annað málþing Skál-
holtsfélags hins nýja er í undirbúningi.
Það verður haldið í sal Þjóðminjasafns
hinn 12. febrúar næstkomandi. Þar
munu færustu sérfræðingar fjalla um
Skálholtsdómkirkju og listbúnað
hennar. Markmiðið er að vekja athygli
á vernd og nauðsynlegum viðgerðum.
Skálholtsfélag hið nýja var einkum
stofnað til þess að verða áhugamönn-
um og velunnurum Skálholtsstaðar
vettvangur samráðs og sjálfboða-
vinnu. Í félagslögum segir: „Tilgangur
félagsins er að styðja við kirkjulegt og
menningarlegt starf í Skálholti, er efli
tengsl kirkju og þjóðlífs og stuðli að
sem víðtækustum áhrifum kristinnar
trúar og kristinnar menningar í ís-
lensku þjóðlífi.“
Félagsmenn gera sér grein fyrir
margþættum vanda
sem þjóðkirkjan tekst
á við, en félagið tekur
ekki afstöðu til ann-
arra mála en þeirra
sem beinlínis snerta
Skálholtsstað.
Skálholtsfélag hið
nýja leggur áherslu á
þessi atriði:
að eignir þjóð-
kirkjunnar á Skál-
holtsstað verði vel og
myndarlega haldnar
og varðveittar og
þeim sómi sýndur, þ.á m. dómkirkj-
an, skólahús, íbúðarhús, minnisvarði,
skólavarða, mannvistarleifar, kirkju-
garður, hlað, nánasta umhverfi;
að friðun og friðlýsing á Skál-
holtsstað verði virt í hvívetna, en
þetta snertir m.a. hönnun og stað-
setningu allra nýrra mannvirkja,
þ.á m. „Þorláksbúðar“;
að öll starfsemi á staðnum sam-
rýmist þessu og lúti virðingu og helgi
Skálholtsstaðar;
að í Skálholti sitji og starfi
vígslubiskup og sóknarprestur;
vígslubiskup sé staðarhaldari og
annist um forsjá og þá starfsemi sem
þjóðkirkjan hefur á staðnum, þ.á m.
fræðslu, kyrrðardaga, listviðburði,
helgihald o.fl.;
að unnið verði svo fljótt sem
verða má að brýnum viðhalds- og um-
bótaverkefnum við glugga dómkirkj-
unnar, við turn og bókhlöðu, við
kirkjuklukkur, við mannvistarleifar,
svo og við nauðsynlega móttöku- og
sýningaraðstöðu á staðnum;
að tekið verði tillit til virðingar
og helgi Skálholts, auk ofangreindra
sjónarmiða, ef einhverjir þjónustu-
þættir á Skálholtsstað verða leigðir
út til verktaka í ferðaþjónustu, en þá
verði m.a. sérstaklega tryggt að af-
rakstur útleigu renni til brýnna verk-
efna á staðnum;
að Skálholtsfélag hið nýja
hyggst leggja fram krafta til fjáröfl-
unar fyrir mikilvæg viðhalds- og um-
bótaverkefni á Skálholtsstað.
Þjóðargersemar í Skálholti
Eftir Jón
Sigurðsson » Skálholtsfélag hið
nýja var einkum
stofnað til þess að verða
áhugamönnum og vel-
unnurum Skálholts-
staðar vettvangur sam-
ráða og sjálfboðavinnu.
Jón Sigurðsson
Höf. er fv. skólastjóri á Bifröst
og formaður Skálholtsfélags.
Þær fréttir eru farn-
ar að berast frá Bret-
landseyjum af vís-
indamönnum þar á bæ,
nánar til tekið við Ox-
ford-háskólann, að tek-
ist hafi að sprauta efni
inn í heilann sem or-
sakar það að sjúklingar
með parkinsons-veiki
eygja von um betri
daga í framtíðinni.
Aðferðin sem notuð er nefnist Pro
Savin og byggist á því að efnablöndu
(vírusum) er sprautað beint inn í heil-
ann og bera með sér ensím. Ensímið
framleiðir dópamín þegar inn í heil-
ann er komið sem er nauðsynlegt því
skortur á því er orsökin fyrir veikind-
unum. Mjög fljótlega eftir að þessi
aðferð hefur verið reynd á fólki hætta
þær ósjálfráðu hreyfingar sem þjaka
mjög þá sem hafa þennan sjúkdóm.
Það er einlæg von mín að yfirvöld
sjái til þess að þessari aðferð til lækn-
ingar á parkinsons-veiki verði komið
á markað hér á landi eins fljótt og
mögulegt er. Ef þessi aðferð yrði tek-
in upp og myndi reynast vel, sem ekki
er nein ástæða til að draga í efa,
myndi það spara ríkinu
stórkostlegar fjárhæðir
á hverju ári því margir
þeir sjúklingar sem eru
á stofnunum í dag með
parkinsons-veiki myndu
geta hugsað um sig
sjálfir eftir þessa með-
ferð.
Taugalæknar á Ís-
landi sem hafa með-
höndlað þá sjúklinga
sem haldnir eru park-
insons-veiki ættu þess
vegna að kynna sér rækilega þessa
aðferð og greina frá því hvað þarna sé
á ferðinni að þeirra mati. Einnig ættu
yfirvöld þá að reyna að flýta fyrir að-
gengi sjúklinga að þessari meðferð.
Vonin blíð
Eftir Sigurjón
Gunnarsson
Sigurjón Gunnarsson
»Ný aðferð hefur
verið verið fundin
til lækningar á park-
insons-veiki og þegar
hafnar tilraunir, m.a.
í Bretlandi, sem lofa
afar góðu.
Höfundur er matreiðslumeistari.
Við bjóðum öll afmælisbörn
velkomin og gefum þeim fría
n
eftirrétt í tilefni dagsins.
afmaeli?
Attu´
Til hamingju!!!
H
ug
sa
sé
r!
Á LEIÐ TIL ÚTLANDA?
Sjónmælingar (tímapantanir):
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Velkominn í verslun
okkar á fríhafnarsvæðinu
í Leifsstöð.
Gleaugu allt að 50%
ódýrari en á megin-
landi Evrópu.
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga