Hafnarfjörður - Garðabær - 23.11.2012, Side 6
23. nóvember 2012
Útideild leikskólans Víðivalla í Kaldárseli tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna:
Hraunið og hellarnir heilla mest
Leikskólinn Víðivellir hlaut á dögunum tilnefningu til Ný-sköpunarverðlauna í opinberri
þjónustu og stjórnsýslu. Tilnefnt var
fyrir verkefnið ,,Útideild við Víðivelli.’’
Síðan í ágúst síðastliðnum hefur verið
starfrækt útideild við leikskólann í
Kaldárseli og 30 – 35 börn fara þangað
daglega í rútu. Blaðamaður Hafnar-
fjarðar kynnti sér starfsemina í Kald-
árseli betur og fyrir svörum var Eva
Ásgeirsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri.
Fyrsti leikskólinn sem
Hafnarfjarðarbær
byggði og rak
Leikskólinn Víðivellir var opnaður
í febrúar 1977 og var hann fyrsti
leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær
byggði og rak. Fjórar deildir voru í
skólanum og þar af ein sérdeild fyrir
börn með fatlanir. Sú deild þjónaði
öllu Reykjanesinu. Árið 1993 var sér-
deildin lögð niður og áhersla var lögð
á blöndun fatlaðra og ófatlaðra barna.
Að sögn Evu hefur leikskólinn
starfað sem skóli án aðgreiningar frá
árinu 1992 og unnið hefur verið með
börn með sérþarfir og fatlanir á ýmsum
sviðum. Starfsfólk skólans hefur því
víðtæka þekkingu og reynslu. Einnig
hefur hreyfingu verið gert hátt undir
höfði en rúmgóður hreyfisalur er í
skólanum sem búinn er góðu safni af
hreyfiáhöldum og ýmsum þjálfunar-
tækjum.
Frá árinu 2006 hafa Víðivellir verið
forystuskóli í hreyfingu og hollum lífs-
háttum og hefur verið unnið eftir þeirri
hugmyndafræði að efla gildi hreyfingar
og holls mataræðis í daglegu lífi nem-
enda og starfsfólks leikskólans.
Vinna þurfti hratt
Veturinn 2002 var leikskólinn stækk-
aður um eina deild og gæsluvallarhús
á samliggjandi lóð var tekið í notkun
sem fimmta deild skólans og lóð skólans
stækkaði einnig sem svaraði þeirri lóð.
Í ágúst síðastliðnum var svo útideildin
í Kaldárseli tekin í notkun og með til-
komu hennar eru nú 156 börn skráð í
nám við skólann á aldrinum 10 mánaða
til 6 ára. Deildirnar eru sex og 53 starfs-
menn í 50 stöðugildum.
Að sögn Evu sóttu stjórnendur leik-
skólans árið 2010 til fræðsluráðs að fá
að opna útideild við Hvaleyrarvatn.
Hugmyndin var að nýta húsnæði við
vatnið sem var í eigu bæjarins og var
hugsunin að geta bætt við um það bil
12 leikskólaplássum og vera með útinám
með elstu börnum leikskólans. Þetta
gekk ekki eftir en hugmyndin var komin
inn á borð hjá fræðsluráði. Þegar það
var orðið mjög aðkallandi að bæta við
leikskólaplássum hjá Hafnarfjarðarbæ
var komið á tal við stjórnendur skólans
um að leysa hluta af þeim vanda með því
að leigja þetta fína húsnæði sem Kald-
ársel er og bæta við skólann 30 plássum.
Þróunarvinna fór strax af stað í maí
þegar ákvörðunin lá fyrir. Vinna þurfti
hratt þar sem tíminn var naumur. Eva
segir að fyrstu dagarnir og vikurnar í
Kaldárseli hafi ekki gengið hnökralaust
fyrir sig enda verkefnið viðamikið og
að mörgu að hyggja. Börn, starfsfólk
og foreldrar þurftu tíma til aðlögunar
við að læra inn á nýju deildina og nýja
verkferla sem fylgja nýrri starfsstöð.
Hlutirnir eru nú, rúmum tveimur
mánuðum eftir opnun að smella saman
og góð heildarmynd er að koma á starfið
í Kaldárseli.
Drullumall, varðeldur
og popp
Börnin sem fara í Kaldársel eru þar í
eina viku í senn. Tveir hópar skiptast
á að fara. Aðra vikuna fara elstu börnin
en hina vikuna fá næst elstu börnin að
njóta þess. Þegar þau eru ekki í Kaldár-
seli eiga þau sér sinn samastað á sinni
deild, ganga að sínu dóti, fatahólfi og
sæti vísu eins og áður. Börnin mæta í
leikskólann sinn að morgni, eru í ró-
legum leik til klukkan 8:30 en halda
þá út í rútu sem keyrir þau í sveitina.
Þegar líða tekur á daginn koma börnin
til baka á Víðivelli, eða klukkan 15:45.
Þá fara þau í rólegan leik þar til þau
eru sótt. Í Kaldárseli er fullbúið eld-
hús og hægt er að bjóða upp á sama
mat og á Víðivöllum. Börnin byrja á
því við komuna að fá heitan graut eða
annan morgunmat, í hádeginu er heitur
matur og svo er boðið upp á síðdeg-
ishressingu. Heimabakað brauð er á
boðstólum alla daga og börnin taka
jafnvel þátt í að útbúa eitthvað annað
heimabakað.
Dagskipulag útideildarinnar er ekki
í eins föstum skorðum og börnin eiga
að venjast og er sjálfsákvörðunarréttur
barnanna hafður í forgrunni. Þó er
lauslegur rammi sem hafður er til hlið-
sjónar til að vinna út frá. Mismunandi
áhersla er á milli daga. Lagt er mikið
upp úr frjálsa leiknum á mánudögum
meðan unnið er að ýmsum sérverk-
efnum í smærri hópum á þriðjudögum
og fimmtudögum. Á miðvikudögum
er útival þar sem kennararnir setja
upp fjölbreyttar stöðvar utandyra
með ýmsum verkefnum, allt frá því
að tálga, fara í leiki eða jafnvel drullum-
alla. Á föstudögum er svo oftar en ekki
poppað úti við opinn eld eða grillað
brauð á teini. Þá er sungið við varðeld
og notaleg stemning skapast þar. En
alla daga eru einkunnarorð deildar-
innar höfð að leiðarljósi en þau eru:
Gleði – Hugrekki – Uppgötvun.
Ævintýrin lifna við
Útiveran er í hávegi höfð og er mikið
gert að því að fara í gönguferðir um
nánasta umhverfi deildarinnar. Gnægð
er af áhugaverðum og skemmtilegum
stöðum að fara á að sögn Evu. ,,Í upp-
hafi áttum við von á því að nærliggjandi
skógur væri það svæði sem mest heill-
aði börnin en þó það sé gaman að fara
þangað létu börnin það fljótlega í ljós
að hraunið og hellarnir sem þar leyn-
ast væru meira spennandi,‘‘ segir Eva.
Kennararnir breyttu því stefnunni
meira í þá áttina og nú er búið að skoða
óheyrilega mikið af hellum, sprungum
og gjótum í nágrenninu. ,,Börnin hafa
fræðst um tilkomu hrauns, lífríki þess,
dropasteina og hvað það hefur upp á
að bjóða. Í hrauninu fæðast einnig
margir leikir og ævintýri lifna við fyrir
tilstillan sköpunarkrafts barnanna.‘‘
Útideild við Víðivelli er tilrauna-
verkefni til eins árs og því hefur ekki
verið mótuð langtímamarkmið fyrir
deildina eða starfið þar. ,,En það er
svo sannarlega von okkar að framhald
verði á því. Þá væri spennandi að leggj-
ast í þá vinnu að skapa framtíðarsýn
fyrir þetta óhefðbundna starf við þær
einstöku aðstæður sem staðurinn hefur
upp á að bjóða fyrir leikskólabörn í
Hafnarfirði,‘‘ segir Eva að lokum.
Linda Hrönn Þórisdóttir
6
Jóhanna Sveinbjörg B. Traustadóttir, talsmaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar skrifar:
Leitin að leiðarljósi
foreldrasamstarfs í Hafnarfirði
-lýðræðisleg aðkoma foreldra að grunnskólum í Hafnarfirði
Gott foreldrasamstarf er öllum til góða. Skýr stefna foreldrasam-starfs er líka til góða. Í haust
fór Foreldraráð Hafnarfjarðar af stað
með námskeið í þremur hlutum, um
stefnumörkun varðandi foreldrasamstarf
í bænum sem stýrt var af Helgu Mar-
gréti Guðmundsdóttur. Námskeiðið var
ætlað fulltrúum foreldra í skólaráðum,
foreldrum í stjórnum foreldrafélaga í
Áslandsskóla, Hraunvallaskóla, Set-
bergsskóla, Lækjarskóla, Öldutúnsskóla,
Hvaleyraskóla, Víðistaðaskóla og Barna-
skóla Hjallastefnunnar sem og fulltrúum
í Foreldraráði Hafnarfjarðar.
Á undanförnum vikum hafa þessir
foreldrar unnið að því að svara ýmsum
spurningum um skólann sinn með aðstoð
skólastjórnenda. Til að námskeið sem
þetta skili góðum árangri, er mikilvægt
að boðunarleiðir séu skýrar. Allir for-
menn voru boðaðir á fyrsta námskeiðs-
hlutann þar sem farið var yfir markmið
námskeiðsins og mikilvægi þess að allir
mæti. Á öðrum hluta námskeiðsins
mættu flestallir úr stjórnum foreldrafé-
laganna, foreldrar í skólaráði og Foreldra-
ráði. Formenn foreldrafélaganna fóru
yfir leiðarljós sinna grunnskóla, kynntu
kosti og sérstöðu skólanna fyrir öllum
á námskeiðinu. Áhugaverðar umræður
fóru af stað og fannst mörgum fræðandi
að fá kynningu á foreldrastarfi í öðrum
skólum.
Foreldrum var skipt í hópa og fóru
umræður af stað um málefni eins og
hvað er gert vel í skólamálum, hvað má
bæta og hvaða málefni gætu foreldrafé-
lögin sameinast um að setja í forgang.
Niðurstöðum úr hópavinnu fóru af stað,
niðurstöður þeirrar hópavinnu kynntar
og síðan unnið úr þeim. Í síðasta hluta
námskeiðsins fór Helga Margrét yfir
mikilvægi góðs foreldrasamstarfs, hvað
ávannst með nýju grunnskólalögunum
frá árinu 2008 og hvert hlutverk for-
eldrafélaga og skólaráða væri í dag. Mjög
mikilvægt er að foreldrar þekki grunn-
skólalögin og reglugerðina um ábyrgð
og skyldur aðila í grunnskólum þar sem
hlutverk allra í skólasamfélaginu er útli-
stað. Einnig var fjallað um alllmörg atriði
úr Aðalnámskrá grunnskóla s.s. lýðræði.
Niðurstöður úr seinni spurningalist-
anum voru kynntar og leitin að sameig-
inlegum forgangsmálum foreldra hófst.
Allmargar hugmyndir komu fram í dags-
ljósið og á Foreldraráð eftir að vinna betur
úr þeim áður en endanleg niðurstaða
fæst. Eftir námskeiðið verða spurninga-
listarnir settir saman og búnir til gátlistar
úr þeim. Hugmyndin er sú að þegar ný
stjórn foreldrafélags og fulltrúar foreldra
í skólaráðum koma saman að hausti, fara
þau yfir gátlistann sér til upplýsingar fyrir
komandi foreldrasamstarf.
Frábær mæting, brennandi áhugi og
líflegar umræður einkenndi námskeiðið
og er von okkar í Foreldraráði Hafnar-
fjarðar að foreldrar í stjórnum foreldrafé-
laganna og fulltrúar foreldra í skólaráðum
séu betur upplýstir um hlutverk sín, hafi
myndað ný foreldratengsl og finni enn
betur fyrir því baklandi sem foreldra í
Hafnarfirði eru. Með skýra sameiginlega
sýn á málefnum sem öll foreldrafélög eru
að vinna að, verður eftirleikurinn vonandi
leikur einn.
Kirkjugarðurinn:
Ljós á leiði
Fyrir jólin á síðasta ári átti ég erindi í kirkjugarðinn í Hafnar-firði, erindið var að leigja 3
ljósaperur til að setja á leiði.
Er ég kom á staðinn sá ég fjölda
fólks í biðröð utanvið skúr eða öllu
heldur gám sem hafði verið settur
þar niður til að þjóna því hlutverki
að leigja út ljósaperur á leiði ástvina.
Nístings kuldi var þennan eftir-
miðdag fyrir síðustu jól, blástur og
vægt frost. Biðröðin úti á hjarninu/
snjónum mjakaðist hægt áfram, ca. 2
klst. var ég í röðinni þar til ég komst
að afgreiðsluborðinu sem var inni
í skúrnum þá var þá orðinn mjög
kaldur, gat vart haldið á þessum 3
perum. Ekki var í boði afsláttur vegna
biðtíma en afgreiðsluna fékk ég að
lokum.
Biðin úti á hjarninu hafði eftirköst,
ég hafði ofkælst og fékk kvefkvilla sem
mér gekk illa að losna við þrátt fyrir
dýr lyf úr apóteki.
Væntanlega á ég erindi vegna kom-
andi jóla og þá til að leigja mér perur á
leiði, sem ég lít svo á að sé virðingar-
vottur við hinn látna en ekki síður
fyrir þá sem eftir lifa og vilja koma að
upplýstu leiði ástvinar á jólum.
Fyrirkomulagið á þessu hefur verið
svipað ár frá ári. En ég trúi ekki öðru
en á þessum bæ verði gerð bragarbót
á þessu fyrirkomulagi. Þannig mætti
t.d. hafa númerakerfi og menn setið
við í ylheitum bílnum eða gámi þar
sem fólk getur setið og beðið í hita yfir
frostmarki. Ég vil trúa því að aðstæður
verði í það minnsta ekki þær sömu
fyrir viðskiptavini og undanfarin ár
þ.e. að að híma utandyra langtímum
saman í biðröð í hvaða veðri sem er,
með afleitum eftirköstum. Þetta þarf
alls ekki að vera þessi ómynd á þessu.
Jóhann Jóhannesson.
Lesendabréf
aðsend grein