Hafnarfjörður - Garðabær - 23.11.2012, Side 22
22 23. nóvember 2012
ÞeKK Ir ÞÚ fÓLK IÐ?
Bæj ar blað ið Hafn ar fjörð ur og Byggða safn Hafn ar fjarð ar birta mynd ir í hverju tölu-
blaði úr safni Byggða safns ins. Til-
gang ur inn er að leita lið sinn is íbúa
bæj ar ins við að nafn greina fólk ið á
mynd un um. Átak stend ur yf ir hjá
Byggða safn inu við að skrá mynd ir
í eigu safns ins en Ljós mynda safn
Byggða safns Hafn ar fjarð ar varð-
veit ir í kring um 140 þús und film ur,
mynd ir og gler plöt ur.
Ef þú þekk ir fólk ið á mynd un um,
vin sam leg ast hafðu sam band við
Byggða safn ið með því að senda
tölvu póst á net fang ið:
ro sak ar en@hafn arfj ord uris, senda
bréfa póst til safns ins á heim il is-
fang ið Strand götu 4, eða hringdu
í síma 585-5780.
jólahlaðborðið
glæsilega
Vinsamlegast pantið tímanlega!
Hefst 23. nóvember
Víkingastræti 1-3 220 • Hafnarfjörður • Sími: 565-1213 • vikings@fjorukrain.is
www.fjorukrain.is - Pöntunarsími 565 1213
Kíktu inn á heimasíðuna okkar
www.fjorukrain.is
- MATSEÐILL
- HLAÐBORÐ
- LIFANDI TÓNLIST
- SKÖTUHLAÐBORÐ
Saga hjónanna Þóru og Ágústar
Þóra Stefánsdóttir Bachmann (1917-2009) og Ágúst Ottó Jónsson (1914-1987) á brúð-
kaupsdaginn þeirra 17. febrúar 1940.
Stinningskaldi var þennan dag svo sat
í manna minnum.
Þóra, fæddist í Hafnarfirði dóttir
hjónanna Margrétar Sveinsdóttur,
Auðunssonar bæjarfulltrúa, og Stef-
áns Bachmann Hallgrímssonar, Tóm-
assonar frá Akranesi. Ásamt tveimur
systkinum ólst Þóra upp í Sveinsbæ,
sem er Lækjargata 6 hér í bæ. Þóra
starfaði hjá Einari Þorgilssyni og
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar , hún var
í stjórn Verkakvennafélagsins Fram-
tíðarinnar, einnig var hún virk í starfi
kvenfélags Karlakórsins Þrasta en
lengst af starfaði hún í þvotthúsi Sól-
vangs og veitti því forstöðu um árabil.
Ágúst Ottó, eða Ottó eins og
hann var kallaður er einnig fæddur í
Hafnarfirði, elstur bræðra í 12 systk-
ina hópi. Foreldrar hans voru Jón
Jónsson frá Skollagróf í Hrunamanna-
hreppi og Guðfinna Einarsdóttir, þau
byggðu lítið hús neðst á Öldugötu,
sem kallað var Gróf. Seinna byggðu
þau svo stærra hús örlítið ofar í göt-
unni sem einnig var kallað Gróf, það
er nú númer 4 við Öldugötu. Ottó
lauk meiraprófi frá Stýrimannaskól-
anum og stundaði sjómennsku ýmist
sem háseti, bátsmaður, stýrimaður
eða skipstjóri til ársins 1969. Lengst
af var hann á Júní og Maí togurum
Bægarútgerðarinnar. Er Ottó hættir
á sjó vann hann hjá Hreifa hf. og
síðar sem verkstjóri hjá Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar. Ottó var fimur á yngri
árum og þjálfaði með Fimleikafélagi
Hafnarfjarðar. Frá 1975 söng hann
með karlakórnum Þresti.
Þóra og Ottó byggðu saman hús
að Tjarnarbraut 23 og fluttu inní það
árið 1948. Ætíð höfðu þau hamingjuna
að leiðarljósi sem mótaði þeirra lífs-
stíl, þau voru samrýnd og létu björtu
hliðarnar á tilverunni fljóta uppi. Þóru
og Ottó varð tveggja barna auðið.
mynd þessi var tekin í apríl 1934. eigandi hennar er skráður Símon Kristjánsson, brunnstíg.
?
HAFNARFJÖRÐUR og GARÐABÆR
kemur næst út 7. desember
www.hafnarfjordurblad.is