Morgunblaðið - 25.02.2014, Page 10

Morgunblaðið - 25.02.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014 Gæðaflísar á sanngjörnu verði NÝKOMNARÍTALSKAR FLÍSAR Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi 7 Reykjavík – Fuglavík 18 Reykjanesbæ Malín Brand malin@mbl.is Mysudrykkirnir vorunokkrir hér áður fyrrog má sem dæmi nefnaGarp og Sopa. Af ein- hverjum ástæðum var þeirri fram- leiðslu hætt og það þykir sumum okkar virkilega miður. Þær Sigríður Anna Ásgeirs- dóttir, Sigrún Andersen og Hildur Björk Hilmarsdóttir eru konurnar á bak við frumkvöðlafyrirtækið Kruss ehf. Skömmu fyrir jólin kom á markað undir merkjum Kruss, Isl- andus, heilsudrykkur sem unninn er úr mysu. Kruss var stofnað sl. sumar en hugmyndin að drykknum Islandusi varð til við vinnslu nem- endaverkefnis í Háskóla Íslands. „Við vorum í heils árs nám- skeiði sem hét Vistvæn hönnun matvæla,“ segir Sigríður Anna sem á þeim tíma var í meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræði. Auk ríkisháskólanna kom Matís að nám- skeiðinu auk Nýsköpunar- miðstöðvarinnar. Of næringarrík til að henda Hugmynd kvennanna varð lokaverkefnið í námi þeirra og hlutu þær fyrstu verðlaun fyrir í keppni um vistvæna matvöru og í fram- haldi af því fóru þær fyrir Íslands hönd í Ecotrophelia-keppnina árið 2012. „Hugmyndin byggist á því að nýta betur skyrmysu því henni er hent og er vannýtt afurð. Það er í rauninni umhverfisvænt að nýta mysuna betur því hún er svo nær- ingarefnarík að það er ekki gott að Algjörlega óþarft að henda mysunni Þeim fer fækkandi sem fá sér mysu sem svaladrykk. Þó er það svo að mysan inni- heldur töluvert af andoxunarefnum og er kalkrík með eindæmum en marga hryll- ir við bragðinu. Með aukinni skyrframleiðslu fellur til meira af mysu og er megn- inu af henni hent. Af öllum þessum ástæðum framleiða þrjár kjarnakonur nú mysudrykkinn Islandus sem búinn er til úr mysu, berjum og villtum jurtum. Mysan Áður fyrr var mysan helsti svaladrykkurinn. Blaðið The Arctic Journal er aðgengi- legt á vefnum er þar er að finna allt það helsta af norðurslóðum. Fréttir tengdar loftslagsbreytingum, fram- kvæmdum og siglingaleiðum eru á meðal þess sem fjallað er um á þess- um miðli sem einnig er með Face- book-síðu. Vefsíðan www.arcticjournal.com Reuters Hlýnun Vísindamenn fylgjast náið með áhrifum loftslagsbreytinga á svæðið. Hvað er títt af norðurskautinu? Opið hús verður í nýju húsnæði Samtakanna 7́8 að Suðurgötu 3 á milli kl. 17 og 18. Stjórn samtakanna fagnar því að hafa fundið húsnæði sem nýtist starfsem- inni betur en fyrra húsnæði. Einkum og sér í lagi eru félagsmenn hvattir til að mæta og skoða húsnæðið til að mynda sér upplýsta skoðun og framtíðarsýn í húsnæðismálum samtakanna. Kauptilboð á jarðhæð Suðurgötu 3 hefur verið samþykkt af kaupanda en fé- lagsmenn þurfa þó að samþykkja húsnæðið áður en gengið verður frá kaup- unum. Það er því um að gera að líta á húsnæðið. … skoðið nýtt hús Samtakanna 7́8 Morgunblaðið/Ómar Endilega … Jógakennarinn og heilarinn Jónína Björg Yngvadóttir, eða Nína, býður á næstunni upp á þriggja mánaða námskeið sem hún kallar „Ofur- hetjurnar“. Námskeiðið hefst í mars og fer fram í Hvítu Töru, Heilunar- og jógastofu. Námskeiðið er sniðið að þeim sem vilja bæta líf sitt með því að vinna með sjálfið og líkam- ann á sama tíma. Að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá jógastofunni er námskeiðið fyrst og fremst sett saman til að laga hugarfarið á jákvæðan hátt að líkamanum og er gert til þess að vinna alhliða með tilfinningalíf, mat- aræði, jákvætt hugarfar og sjálfan líkamann. Sem fyrr segir hefst námskeiðið í mars og verður tvisvar í viku næstu þrjá mánuðina. Kennsla fer fram í húsakynnum Hvítu Töru í Skeifunni 11. Allar nánari upplýsingar um „Of- urhetjurnar“ er að finna á vefsvæð- inu www.hvitatara.net Betri líðan fyrir ofurhetjur Hugarfarið lagað að líkamanum á jákvæðan hátt með jóga Nína Jógakennarinn vill hjálpa fólki að ná betri heilsu og jafnvægi í lífinu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.