Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
IFS gerir ráð fyrir að tjónahlut-
fallið á fjórða ársfjórðungi 2013
hafi verið 63,3%.
IFS gerir ráð fyrir að ávöxtun
af fjárfestingum á fjórða ársfjórð-
ungi hafi orðið minni en ávöxtun
fjórðunganna á undan þar sem
væntanlega hafi verið tap á bæði
innlendri skuldabréfaeign félags-
ins og erlendum eignum, í krónum
mælt.
Sex félög skráð í Kauphöll Íslands
munu í þessari viku kynna uppgjör
sitt fyrir fjórða ársfjórðung síðasta
árs og fyrir afkomu ársins 2013 í
heild. Þau fyrstu til að kynna upp-
gjör verða VÍS og Reginn en þau
kynna uppgjör sín í dag.
Í morgunpósti IFS greiningar í
gær kemur fram að TM, N1 og
Fjarskipti birta uppgjör sín á
morgun, miðvikudag, og á fimmtu-
dag birtir Eimskip uppgjör sitt.
IFS birti fyrir helgina afko-
muspá sína fyrir tryggingafélagið
TM. IFS gerir ráð fyrir að trygg-
ingarekstur félagsins hafi verið
með venjubundnum hætti á loka-
fjórðungi ársins 2013 en segir
jafnframt að tvö stórtjón hafi tals-
vert litað uppgjör ársfjórðungsins
á undan. Tjónahlutfallið var þann-
ig 81,3% á þriðja ársfjórðungi en
Spáir 2,8 milljarða hagnaði
Ávöxtun á hlutabréfaeign hafi
hins vegar verið ágæt. IFS spáir
um 686 milljóna króna hagnaði
fyrir skatta á fjórða ársfjórðungi í
fyrra og þar með um 2,8 milljarða
króna hagnaði á árinu 2013.
Þá gaf IFS einnig út fyrir helgi
afkomuspá sína fyrir Eimskip á
fjórða ársfjórðungi í fyrra og fyrir
árið 2013 í heild.
Félagið mun eins og áður segir
birta uppgjör sitt á fimmtudaginn,
27. febrúar.
Útflutningur frá Íslandi dróst
saman um 2,5% frá fyrra ári á
lokafjórðungi ársins í tonnum
mælt og innflutningur jókst um
aðeins 0,8%, samkvæmt upplýsing-
um frá Hagstofu.
Spáir Eimskip liðlega 6 millj-
arða króna hagnaði
IFS gerir ráð fyrir að flutningar
Eimskips á öðrum siglingaleiðum
félagsins og hugsanlega flutninga-
miðlunin hafi sýnt einhvern vöxt
og að í heildina verði tekjuvöxtur á
milli ára 1%. IFS gerir ráð fyrir
um 10,7 milljóna evra EBITDA á
fjórða ársfjórðungi, sem svarar til
1,67 milljarða króna og þar með
tæpra 40 milljóna evra fyrir árið
2013 í heild, sem svarar til 6,23
milljarða íslenskra króna.
Fram kemur í Morgunpósti IFS
greiningar að útgefið viðmið fé-
lagsins sjálfs er 37-40 milljónir
evra, eða á bilinu 5,76 milljarðar
íslenskra króna, upp í rúma 6,23
milljarða íslenskra króna. Gangi
spá okkar eftir hækkar EBITDA
um rúm 10% á árinu frá 2012. Spá
IFS um nettóhagnað hljóðar upp á
13,1 milljón evra fyrir árið 2013,
sem er rúm 3% hækkun.
agnes@mbl.is
6 félög í Kauphöll birta uppgjör sín
VÍS og Reginn í dag, TM, N1 og Fjarskipti á morgun
Kauphöllin Sex félög skráð í Kauphöllinni af tíu birta uppgjör sín fyrir 4
fjórðung og árið 2013 í heild í vikunni. Í dag ríða VÍS og Reginn á vaðið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Uppgjörsvika
» IFS spáir VÍS 2,8 milljarða
króna hagnaði á árinu 2013.
» Segir tvö stórtjón á þriðja
ársfjórðungi í fyrra draga úr
hagnaði.
» Telur að hagnaður Eimskips
fyrir árið 2013 geti hafa verið
6,23 milljarðar króna.
» Á morgun birta TM, N1 og
Fjarskipti uppgjör sín fyrir
fjórða ársfjórðung í fyrra og ár-
ið í heild.
GAMMA hefur flutt starfsemi sína í
eigið húsnæði á Garðastræti 37. Um
er að ræða stærra húsnæði sem
gerir félaginu betur kleift að sinna
vaxandi starfsemi sinni og taka vel
á móti viðskiptavinum, samkvæmt
því sem fram kemur í frétt á heima-
síðu GAMMA.
Garðastræti 37 er meðal elstu
funkishúsa landsins og hýsti meðal
annars lengi vel starfsemi Síldar-
útvegsnefndar.
Fjármálafyrirtækið GAMMA er
með um 45 milljarða í sjóðastýringu
fyrir hundruð viðskiptavina, þar á
meðal lífeyrissjóði, tryggingafélög,
eignastýringar, bankastofnanir, er-
lenda aðila og einstaklinga.
Flutt Garðastræti 37 hýsti m.a.
starfsemi Síldarútvegsnefndar.
GAMMA í
Garðastræti
Í eigin húsnæði
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+01-/2
+.+-32
,.-0.0
+0-231
+1-41,
+,1-4
+-+.,+
+13-44
+55-4
++4-+1
+00-3,
+.+-12
,.-02/
+0-1.,
+1-3,4
+,1-22
+-+.54
+13-05
+55-14
,.2-441+
++4-33
+00-00
+.,-.2
,.-/4
+0-151
+1-313
+,0-.,
+-+.05
+15-41
+52-+2
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Mikil viðskipti voru með bréf í Hög-
um í gærmorgun, en í 11 sölum höfðu
rúmlega 117 milljónir bréfa fyrir tæp-
lega fimm milljarða skipt um hendur.
Hagamelur ehf. sem er í eigu Árna
Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar
seldi 77 milljónir hluta í Högum og Ar-
ion banki seldi rúmlega tuttugu millj-
ónir hluti fyrir rúmlega 841 milljón
króna.Gengi bréfa félagsins var 42 og
miðað við það er markaðsverðmæti
hlutanna sem seldir voru tæpir fimm
milljarðar. Þeir Árni og Hallbjörn seldu
hlutinn á um það bil fjórfalt hærra verði
en þeir keyptu hann á. Nánar á mbl.is
Rúmlega fimm milljarða
króna viðskipti með
hlutabréf í Högum
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Jóga
Farið verður rólega af stað en tímarnir geta verið mjög kröftugir. Hér reynum við á alla þætti líkamans,
aukum liðleikann á allan hátt, hryggurinn verður liðugri, opnum öll liðamótin betur og betur og náum
betri og meiri teygju og liðleika. Vekjum upp líkamsvitundina og uppskerum betri líkamsstöðu, aukinn
styrkur og úthald og síðast en ekki síst öðlumst við betra jafnvægi til að takast á við daglegt amstur.
Skráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is
Námskeið í Jóga
Þriðjud. og fimmtud. kl. 12:00-13:00
Hefst 11. mars
Kennari Gyða Dís
Verð kr. 13.900