Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is „Við komum saman og rifjuðum upp okkar sjómennsku,“ segir Odd- ur Helgason æviskrárritari sem var skipverji á togaranum Narfa RE 13 í frægri veiðiferð að Vestur- Grænlandi fyrir sléttum 50 árum. Í túrnum voru 32 menn og komu nokkrir þeirra saman hjá ORG Ætt- fræðiþjónustu í Skerjafirði til að minnast hans. Túrinn er þekktastur fyrir sögur af ísingu sem hlóðst á skipið. Farið var í var upp að ísnum og heil vakt var í því að berja ís af skipinu til að það yfirísaðist ekki og hægt væri að vinna áfram. Þá var aftur haldið til veiða en fljótlega þurfti að fara aft- ur í var til að berja af. Svona gekk þetta á þriðju viku en þá var fersk- vatnið búið. Tankarnir voru botn- frosnir, sjórinn var svo kaldur, rifj- ar Oddur upp. Þá var siglt inn til Frederikshaab til að taka meira vatn. Seinna var farið til St. Pierre í Lawrence-flóa til að taka olíu. Túrnum lauk með því að landað var í Grimsby. Þegar Narfi kom aftur til Reykjavíkur voru 78 dagar liðnir frá því lagt var í túrinn. Narfi var í eigu Guðmundar Run- ólfssonar útgerðarmanns, nýlegt skip. Hann var búinn hraðfrysti- tækjum sem heilfrystu fiskinn jafn- óðum og hann veiddist. Var það nýjung í útgerð Íslendinga. Rifjuðu upp ístúrinn  Skipverjarnir ræða enn um túrinn á Narfa fyrir 50 árum Morgunblaðið/Árni Sæberg Albúm skoðuð Sitjandi Eyþór Bollason, Oddur Helgason, Hjálmar Diegó, Þorsteinn Stefánsson. Standandi Ægir Ingvarsson. Þorsteinn Gíslason, Jón Marteinn Guðnason, Örn Stefánsson, Benedikt Arason og Kristján Óskarsson. „Ég mun reyna að auka söluna með því að ná til breiðari hóps,“ segir Ax- el Ómarsson sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna ehf. og Landssambands hestamannafélaga. Í mörg horn verður að líta hjá framkvæmdastjór- anum á næstunni því nú er lands- mótsár, Landsmót hestamanna verður haldið á Hellu í byrjun júlí. Axel telur efni til að landsmótið höfði til fleiri en hörðustu keppnis- áhugamanna. Hann vill leita sam- starfs við ferðaskrifstofur og fyrir- tæki í ferðaþjónustu sem hafa á sínum snærum viðskiptavini í mark- hópnum. „Mótið verður haldið á Hellu og mér finnst liggja í augum uppi, eins og samið hefur verið um, að sveitarfélög og fyrirtæki á Suður- landi sjái sér hag í því að starfa með landsmótinu og nýta sér viðburðinn til að koma sinni starfsemi á fram- færi og auka umsvifin,“ segir Axel. Hann gerir sér grein fyrir því að skammur tími er til stefnu, fram að landsmóti. „En ef ég ber gæfu til að stýra fleiri mótum mun ég halda áfram á þessari braut.“ Undirbúningur á áætlun Landsmótið á Hellu er stærsta verkefni LH á þessu ári og sam- kvæmt tilkynningu frá stjórn lands- sambandsins gengur undirbúningur samkvæmt áætlun. „Ég mun gera mitt besta til að hvetja menn til dáða. Mitt helsta verkefni er verkefna- stjórn og rekstur,“ segir Axel. Hann notar fyrstu dagana til að átta sig á stöðu mála og setja sig inn í málin. Áhugi á hestamennsku Axel hefur haft áhuga á hestum frá barnæsku og yfirleitt átt hesta. Hann hefur unnið töluvert erlendis og því hafa orðið frátafir í að sinna áhugamálinu. Hann vann við útflutning á ís- lenskum hestum í áratug og hefur komið að félagsmálum hestamanna í gegnum það starf. Hann hefur unnið við rekstur fyrirtækja, mest erlendis síðustu árin, meðal annars í tölvu- geiranum. helgi@mbl.is Vill höfða til breiðari hóps  Ráðinn fram- kvæmdastjóri hestamanna Ljósmynd/Eiríkur Jónsson Keppni Axel Ómarsson og Tralli á Íslandsmóti fyrir 13 árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.