Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014 Í Spamalot er sögð saga af leitArtúrs konungs og nokkurrariddara hans að hinum heil-aga Gral. Í frásögninni er snúið á fjölbreytilegan hátt upp á söguna. Leikið er á marga vegu með klisjur og stöðugt er blandað saman stíl og tímabilum. Persón- urnar fara jafnvel út úr verkinu og inn í það aftur. Útkoman verður al- veg konunglega skemmtilegt bull. Spamalot er söngleikur sem er stældur af ást og alúð eftir kvik- myndinni Monty Python and the Holy Grail og þarna ríkir sá húmor sem þeir félagar urðu frægir fyrir. Myndefni tengt sýningunni sækir einnig innblástur í hönnun Terrys Gilliams sem Monty Python aðdá- endur þekkja. Sennilega hjálpar það áhorfandanum talsvert að hafa kynnst sýn þeirra félaga á heiminn fyrir sýningu – að vera kominn inn í húmorinn eins og maður segir. Það er mikið stuð í sýningunni. Fjórar dansandi dömur koma fram í ýmsum búningum, sem finnskar stúlkur, klappstýrur eða eins og klipptar út úr kabarettsýningu og allir aðrir leikendur dansa og syngja líka. Í hljómsveitargryfjunni er tíu manna hljómsveit sem Þor- valdur Bjarni Þorvaldsson leiðir af öryggi. Hljómsveitin er dúndurgóð og tónlistin fjörug og skemmtileg. Lífrænt samband leikara, söngvara og hljómsveitar er einnig sérlega skemmtilegt. Örn Árnason leikur Artúr konung og skilar því hlutverki vel. Örn er frábær gamanleikari og góður söngvari. Artúr er hér viðfeldinn en drífandi kóngur sem tekur hóflegan þátt í danshreyfingum á sviði. Selma Björnsdóttir leikur vatnadís- ina Gunnvöru og finnska stúlku. Selma passar frábærlega í hlutverk vatnadísarinnar enda fer hún alger- lega á kostum í þessari sýningu í söng og leik. Mér fannst verkið allt- af takast á flug í þeim hlutum þar sem hún var virkust. Í seinni hluta verksins kemur persóna hennar fram og kvartar yfir því að hún sé að detta út úr sögunni og maður getur eiginlega ekki annað en tekið undir með henni. Fyrri hluti verks- ins, þar sem hún er öflugur þátttak- andi, er kraftmeiri og fjörugri en seinni hlutinn þó að verkið sé í heild skemmtilegt. Stefán Karl Stefáns- son leikur fjölda persóna, meðal annars Guð almáttugan, og gerir það með tilþrifum. Mér fannst hann þó bestur sem spottandi Frakki. Ævar Þór Benediktsson leikur Blóra sem eltir Artúr og sér meðal annars fyrir hófataki á ferðum hans og gerir það vel. Maríus Sverrisson leikur Hróa sem er einn af ridd- urunum. Hann er ekki sá hug- djarfasti í hópnum. Hrói Maríusar er mjög skemmtileg týpa og útlitið alveg pottþétt. Jóhannes Haukur Jóhannesson er hér Galahad og fleiri. Jóhannes er manna riddara- legastur og auk þess með þrusu söngrödd þannig að hann fer létt með að sýna okkur riddarann. Þor- leifur Einarsson stendur sig vel og þá er Friðrik Friðriksson einnig stórskemmtilegur sem Lancelot, ekki síst þegar hann finnur ástina. Eggert Þorleifsson leikur nokkur hlutverk og eins og venjulega rúllar hann þessu öllu upp með glæsibrag hvort sem það er sagnfræðingur, frú Galahad, bróðir Magnfreð eða gæðingurinn Glitfaxi. Oddur Júlíu- son er fínn í sínum hlutverkum og þær Ágústa Eva Erlendsdóttir, Sal- óme Rannveig Gunnarsdóttir, Si- bylle Köll og Unnur Birna Björns- dóttir eru flottar í öllum sínum margvíslegu atriðum. Þær bera náttúrlega, ásamt Selmu, af í dans- inum sem er veigamikill og skemmtilegur þáttur sýningarinnar. Myndefni tengt sýningunni er sem fyrr segir sótt til Monty Pyth- on. Leikmyndin er einnig í sam- ræmi við riddaramynd. Kastala- múrar og dyr, skógur og fleira. Allt gefur þetta sýningunni skemmtilega umgjörð. Búningar eru fjölskrúð- ugir og flottir enda víða leitað fanga. Ég heyrði ekki alltaf orðaskil eða skildi alla textana fullkomlega. Það er sennilega varla hægt að gera kröfu um slíkt og það er því gott að leikhúsið birtir textana á heimasíðu sinni. Mér virðist þýðing Braga Valdimars Skúlasonar alveg snilld- argóð. Þýðandi þarf sjálfur að vera töluvert fyndinn til að skila slíku verki. Það er brandari í sjálfu sér að leitast við að túlka Spamalot. Hér er fyrst og fremst verið að gera grín að eða leika sér með alls konar sagnaminni. Hlátrasköllin sem það ferðalag kallar fram í salnum eru bæði há og mörg og það er á fárra færi að búa til slíkt efni. Því eins og sagt er: „Það geta allir þóst vera al- varlegir en það getur enginn þóst vera fyndinn.“ Konunglegt bull Ljósmynd/Eddi Skemmtilegt „Persónurnar fara jafnvel út úr verkinu og inn í það aftur. Útkoman verður alveg konunglega skemmtilegt bull,“ segir m.a. í gagnrýni um Spamalot. Hér sjást Friðrik Friðriksson og Stefán Karl Stefánsson í söngleiknum sem byggður er á kvikmyndinni Monty Python and the Holy Grail. Þjóðleikhúsið Spamalot bbbbn Spamalot úr smiðju Monty Python Handrit og söngtextar eftir Eric Idle. Leikarar: Örn Árnason, Selma Björns- dóttir, Stefán Karl Stefánsson, Ævar Þór Benediktsson, Maríus Sverrisson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Þorleif- ur Einarsson, Eggert Þorleifsson, Friðrik Friðriksson, Oddur Júlíusson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Sibylle Köll og Unnur Birna Björnsdóttir.Tónlistar- og hljóm- sveitarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson, sviðshreyfingar: Cameron Corbet, leikmynd: Snorri Freyr Hilmars- son, búningar: María Th. Ólafsdóttir, lýsing: Halldór Örn Óskarsson, mynd- bandshönnun: Arnar Steinn Friðbjarnar- son og Helena Stefánsdóttir, hljóð- stjórn: Kristinn Gauti Einarsson og Kristján Sigmundur Einarsson, þýðing: Bragi Valdimar Skúlason. Leikstjórn: Hilmir Snær Guðnason. Frumsýning á stóra sviði Þjóðleikhússins, 21. febrúar 2014. SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Kvikmyndasafnið sýnir í kvöld klukkan 20 í Bæjarbíói hinna kunnu kvikmynd Solaris (1972) eftir leik- stjórann Andrei Tarkovsky. Myndin, sem sýnd er með enskum neðanmálstexta, er sálfræðidrama sem gerist að mestu um borð í geimstöð á braut umhverfis plán- etuna Solaris. Fjarað hefur undan vísindaleiðangrinum vegna þess að þrír leiðangursmenn eiga í tilfinn- ingalegri krísu. Kvikmyndataka myndarinnar þykir einstök. Sýna Solaris Tarkovskys Drama Úr kvikmyndinni Solaris. „Gervasoni- málið. Viðhorf stjórnvalda og al- mennings til hæl- isleitanda,“ er heiti fyrirlestrar sem Björn Reyn- ir Halldórsson flytur í dag, þriðjudag, og er liður í hádeg- isfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands.“ Fyrirlesturinn fer fram í fyrir- lestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst stundvíslega klukkan 12.05. Rifjað verður upp mál Frakkans Patrick Gervasoni um pólitískt hæli hér á landi árið 1980. Gervasoni- málið rætt Patrick Gervasoni Síðasti meðlimur hinnar syngjandi Trapp-fjöl- skyldu, Maria von Trapp, lést á fimmtudag á heimili sínu í Vermont í Bandaríkjunum, 99 ára að aldri. Trapp- fjölskyldan varð heimsfræg þegar söngleikurinn So- und of Music og samnefnd söngva- mynd voru gerð um sögu hennar. Fjölskyldan flúði Austurríki undan nasistum árið 1938 og ferðaðist eft- ir það um Bandaríkin og skemmti. Maria var næstelsta dóttir von Trapp og fyrstu eiginkonu hans; í söngleiknum er persónan Louisa byggð á henni. Maria von Trapp látin Maria von Trapp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.