Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
leggur hins vegar áherslu á að
Rússar hafi ekki sagt sitt síðasta
orð í deilunni og telur að bakslag sé
óhjákvæmilegt vegna andstöðu
Rússa við stjórnarskiptin í Úkra-
ínu. Takist Úkraínu að koma á lýð-
ræði, slíta sig frá Rússum og losa
sig við spillta embættismenn geti
það ýtt undir mótmæli meðal Rússa
og kröfur um lýðræðisumbætur og
frelsi í Rússlandi. „Það væri niður-
staða sem Pútín myndi síst af öllu
sætta sig við.“
„Vopnaðri uppreisn“ mótmælt
Ingmar Nevéus, fréttaskýrandi
Dagens Nyheter, telur einnig ólík-
legt að Rússar sendi hersveitir inn í
Úkraínu. Hann segir að Rússar hafi
engan áhuga á stríði og glundroða í
grannríki sínu og viti að viðbrögð
vestrænna ríkja við hernaðar-
íhlutun í Úkraínu yrðu miklu harð-
ari en við innrásinni í Georgíu. „Í
ljósi þess að Úkraína er á barmi
hruns geta Rússar haldið áfram að
beita grannríki sitt þrýstingi,“
skrifar Nevéus. „Ef til vill velur
Pútín að hafa sig lítið í frammi í
fyrstu til að láta á það reyna hvort
nýju leiðtogarnir í Kænugarði byrji
ekki að berjast sín á milli og vin-
sældir þeirra minnki. Hann gæti þá
gripið inn í með réttmætari hætti.“
Þingmenn og fréttaskýrendur
hafa talað um það í rússneskum
fjölmiðlum að Úkraína kunni að
klofna í tvennt. Rússneska blaða-
konan og útvarpskonan Júlía Lyn-
ína sagði í útvarpinu Ekho Moskví
að hernaðaríhlutun af hálfu Rússa í
Krím myndi kalla fram svipuð við-
brögð og innrás Íraka í Kúveit sem
leiddi til Persaflóastríðsins árið
1991.
Dmítrí Medvedev, forsætisráð-
herra Rússlands, dró lögmæti nýju
valdhafanna í Kænugarði í efa í
gær og lýsti stjórnarskiptunum
sem „niðurstöðu vopnaðrar upp-
reisnar“. Rússnesk stjórnvöld gætu
ekki samið við „uppreisnarmenn
sem eru vopnaðir Kalashníkov-
rifflum“.
Medvedev sagði að Rússar stæðu
við skuldbindingar sínar gagnvart
Úkraínu ef lögmæt ríkisstjórn yrði
mynduð en svaraði því ekki hvort
Rússar myndu standa við samning
við Janúkóvítsj um fjárhagsaðstoð
að andvirði sem svarar 1.700 millj-
örðum króna.
Fjármálaráðherra bráðabirgða-
stjórnar Úkraínu segir að landið
þurfi aðstoð að jafnvirði 4.000 millj-
arða króna í ár og á næsta ári.
Lviv
Lviv
Odessa
Odessa
KRÍM
KRÍM
Donetsk
KÆNUGARÐUR
Júlía Tímósjenkó
71 til 90%
51 til 70%
71 til 90%
51 til 70%
Heimild: Ukrainska Pravda
Viktor Janúkóvítsj
Forsetakosningarnar
árið 2010
Skipting eftir tungumálum
Úkraína
Meirihlutinn sem hefur
úkraínsku að móðurmáli
Minnihlutinn sem hefur
rússnesku að móðurmáli
200 km
KÆNUGARÐUR
Donetsk
Luhansk
Luhansk
Poltava
Poltava
Oleksandr Túrtsjínov, sem hefur verið skipaður forseti
Úkraínu til bráðabirgða, er álitinn hægri hönd Júlíu Tí-
mósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra sem var dæmd í
fangelsi eftir að hún beið ósigur fyrir Viktor Janúkóvítsj í
forsetakosningunum árið 2010.
Tímósjenkó sagði eftir að hún var leyst úr haldi um
helgina að hún vildi ekki verða næsti forsætisráðherra
Úkraínu en sagði ekkert um hvort hún hygðist bjóða sig
fram til forseta. Tímósjenkó, sem var sökuð um spillingu í
valdatíð sinni, er mjög umdeild í Úkraínu.
Vítalí Klítsjkó, fyrrverandi hnefaleikakappi, hefur stefnt að forseta-
framboði en er nýgræðingur á akri stjórnmálanna. Margir róttækir þjóð-
ernissinnar, sem höfðu sig mjög í frammi í mótmælunum í Kænugarði,
hafa illan bifur á honum.
Tímósjenkó í framboð?
ENGINN ÓUMDEILDUR LEIÐTOGI
Oleksandr
Túrtsjínov
Yfirmaður hersins í Taílandi sagði í
gær að landið stæði frammi fyrir
„hruni“ ef ofbeldisverkum linnti ekki
í tengslum við mestu mótmæli í land-
inu frá árinu 2010. Tuttugu og einn
hefur beðið bana og yfir 700 særst í
árásum sem tengjast mótmælunum,
meðal annars þrjú börn í sprengju-
árásum um helgina.
Mótmælendurnir krefjast þess að
Yingluck Shinawatra forsætisráð-
herra segi af sér og saka hana um að
vera strengjabrúðu bróður síns, auð-
kýfingsins Thaksins Shinawatra,
fyrrverandi forsætisráðherra sem er
nú í útlegð.
Stuðningsmenn Thaksins saka
mómælendurna um að reyna að
knýja herinn til að taka völdin í sínar
hendur. Átján ríkisstjórnum hefur
verið steypt af stóli í Taílandi frá
árinu 1932 og yfirlýsing yfirmanns
hersins í gær gæti verið merki um að
herinn íhugi nú að láta til skarar
skríða gegn ríkisstjórninni.
Yfirhershöfðingi
varar við hruni
Mannskæðar árásir í Taílandi
EPA
Mótmæli Þátttakandi í mótmæla-
göngu gegn stjórninni í Bangkok.
Vor og sumar 2014
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
Glæsileg 200 m² hæð
Mánaðarleiga kr. 190 þús
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Orkusparnaður
með Nergeco
hraðopnandi
iðnaðarhurðum
Nergeco
• Opnast hratt & örugglega
• Eru orkusparandi
• Þola mikið vindálag
• Eru öruggar & áreiðanlegar
• Henta við allar aðstæður
• 15 ára reynsla við íslenskar
aðstæður & yfir 130 hurðir
á Íslandi
Með hraðri opnun & lokun sem & mikilli einangrun
má minnka varmaskipti þar sem loftskipti verða minni
Intelligent curtain sem
veitir aukið öryggi