Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014 Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 60 ára reynsla á Íslandi Lífið er litríkt Fæst í eftirfarandi verslunum: Húsasmiðju búðirnar, BYKO búðirnar, ELKO búðirnar, Hagkaups búðirnar, Byggt og Búið, Kaupfélag Skagfirðinga, Geisli, Skipavík, Aha.is, Heimkaup.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er til þín horft um forystu í ákveðnu máli. Leyndir og ljósir aðdáendur sýna þér áhuga um þessar mundir. Hafðu húmor fyrir mistökunum. 20. apríl - 20. maí  Naut Segðu ekkert nema að vandlega athug- uðu máli því annars gætirðu sært fólk sem þér þykir vænt um. Frestaðu því sem þú hef- ur áhyggjur af ef þú mögulega getur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að setja þig vel inn í allar þær breytingar, sem orðnar eru í sam- skiptum. Það skiptir öllu máli að þér takist að halda þér í jafnvægi hvað sem á dynur. Gerðu það með bros á vör. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver mun koma þér á óvart og þú þarft að leyfa þér að njóta augnabliksins. Skipuleggðu mannfagnaði svo þú getir hlakk- að til. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það má alveg gleðja sjálfa/n sig með óvæntum uppátækjum við og við. Búðu þig þó undir vonbrigði – fólk á það til að lofa upp í ermina á sér. Beittu eðlislægri þolinmæði. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vertu ekki að streða við hlutina ein/n í þínu horni því nú er það hópstarfið sem gildir. Vertu sátt/ur við sjálfa/n þig gakktu með gleði í hjarta fram á veginn. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú munt sennilega hitta áhugaverðan einstakling í dag. Hann getur og ætti að segja nei oftar en hann gerir. Þú þarft að leggja þitt af mörkum til þess að vináttan dafni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Farðu varlega í tilfinningamálum og reyndu að hlaupa ekki á þig. Lagaðu þetta á stundinni svo enginn misskilningur eyði- leggi samstarf sem skiptir máli. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vinir og vandamenn sækjast eftir tíma þínum og þú átt að láta þeim hann í té eftir fremsta megni. Mundu að fólk þarf ekki endilega að vera sammála þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú finnur fyrir hugrekki, sjálfstæði og ævintýraþrá í dag. Láttu það ekki stíga þér til höfuðs þótt þér takist að koma máli þínu í höfn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk er almennt samvinnuþýtt og opið fyrir skoðunum annarra í dag. Gerðu fjárhagsáætlun og farðu eftir henni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Umhyggja þín fyrir öðrum má ekki verða til þess að þeir varpi allri ábyrgð sinni yfir á þig. Láttu það samt eftir þér að gefa þeim fáein gullkorn til að fara eftir. Ármann Þorgrímsson veltir fyr-ir sér hinstu rökum tilver- unnar: „Það hringdi í mig elskuleg kona í dag og spurði mig hvort ég vildi ræða stöðu guðs í lífi mínu. Ég svaraði í fljótfærni að ég væri orðinn svo gamall að ég kæmist bráðum að sannleikanum um guð og með það kvaddi hún og óskaði mér alls góðs og ég henni. En í framhaldi af viðtalinu… Verð ég það að viðurkenna, veik er trú á drottins pínu. Á mér spurnir ennþá brenna: Er einhver guð í lífi mínu? Stundum þegar stórt menn spyrja standa vill á réttu svari, en tíminn styttist til að byrja á trúarlegu englafari.“ Hjálmar Freysteinsson slær á létta strengi, ef til vill að gefnu til- efni: Mætti leysa með því hnút og margra breyta högum, ef sumir fengju að sofa út á sunnudögum. Sigmundur Benediktsson kastar fram: Nú er fjör í fræðunum! Funar blóð í æðunum. Gera hik á gæðunum. Gleyma sér í ræðunum. Og limra fylgir: Þeir sem á tróninum tyllast taka þar oftast að spillast. Raupa og rýta, rembast og kýta. Við sjálfsmatið dunda og dillast. Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á Sandi, kastar fram limru: Skúli elskaði skandali skátana elti í Hvanndali skenkti þeim vín og því skammast ég mín því hann var að sjálfsögðu Sand- ali. Sú skýring fylgir að Sandali er viðurnefni á Sandsættinni. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af sunnudögum, skandöl- um og trúarlegu englafari Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SVO STINGUR ÞÚ HONUM BARA Í HLEÐSLU EINU SINNI Í MÁNUÐI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar einhver stenst allar kröfur. MYNDBANDADEILD SÚMMA ÚT SÚMMA INN RAFMAGNS- BÍLL NÝ R HVAÐ Í ÓSKÖPUNUM VARÐ UM ÞRÓTTMIKLA, ORKU- RÍKA, ÚRRÆÐAGÓÐA OG VIRKA UNGA MANNINN SEM ÉG GIFTIST?! HANN VARÐ ÞREYTTUR. ÞAÐ VAR SVO ROSALEGA SÆT STELPA Í KOSSABÁSNUM Á KARNIVALINU Í DAG. SVO ÉG KEYPTI FULLT AF MIÐUM TIL AÐ FÁ AÐ KYSSA HANA ... EN RÉTT ÁÐUR EN KOM AÐ MÉR FÓR HÚN Í PÁSU OG UNDRA- APINN ARNDÍS LEYSTI HANA AF! ÞAÐ ER BANANA- LYKT ÚT ÚR ÞÉR. Edduverðlaunahátíðin, sem sýndvar í beinni útsendingu á Stöð 2 á laugardagskvöldið, hlýtur að hafa slegið met – í fjarstöddum verð- launahöfum. Úrslit réðust í hverjum flokknum af öðrum og aftur og aftur kom héralegur svipur á þann sem af- henda átti verðlaunin. „Hann er því miður ekki hér í kvöld,“ eða „hún er því miður ekki hér í kvöld“. Meðal fjarstaddra voru stjörnur kvöldsins, Benedikt Erlingsson sem fékk verðlaun fyrir handrit, leik- stjórn og bestu mynd, Hross í oss, og Ingvar E. Sigurðsson, sem var valinn besti leikarinn, bæði fyrir að- al- og aukahlutverk. Þeir höfðu öðr- um hnöppum að hneppa. Leikkona ársins í aukahlutverki, Halldóra Geirharðsdóttir, og sjón- varpsmaður ársins, Bogi Ágústsson, voru líka fjarverandi. Og heiðurs- verðlaunahafinn, Sigríður M. Vig- fúsdóttir. Dálítið vandræðalegt og segir manni, svo ekki verður um villst, að íslenskt kvikmyndagerðar- fólk og leikarar skipuleggja ekki dagskrá sína í kringum Edduhátíð- ina. E.t.v. hefur það líka verið raunin á sokkabandsárum Óskarsins. x x x Ekki svo að skilja að þetta hafi ver-ið alslæmt. Sá aldni höfðingi Er- lingur Gíslason, faðir Benedikts, steig tvívegis í pontu fyrir hans hönd og var bráðskemmtilegur að vanda. Hafði hripað þakkarorð frá syni sín- um niður á gluggaumslag. Vel gert! Þá steig dóttir Halldóru, Steiney Skúladóttir, einnig á svið fyrir hönd móður sinnar og Víkverji er ekki frá því að það sé hressasta manneskja sem hann hefur lengi séð í sjónvarpi. Siggi Hlö yrði eins og þunglyndis- sjúklingur við hliðina á henni. x x x Ólafia Hrönn Jónsdóttir kynntihátíðina og stóð sig með prýði enda þótt einhver nöfn stæðu í henni. Skemmtileg kona, Ólafía. Hápunktur hátíðarinnar var hins vegar stutt myndband, þar sem gert var grín að þáttunum Sögu kvik- myndanna, sem sýndir hafa verið á RÚV í vetur. Íslandsvinkillinn, sem var víst „klipptur út úr þáttunum“, var óborganlegur. víkverji@mbl.is Víkverji Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. (Sálmarnir 143:10) Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.