Morgunblaðið - 25.02.2014, Side 11
Ljósmynd/Ásgeir Einarsson
losa hana beint út í náttúruna því
þá raskast jafnvægi í vistkerfum.
Sérstaklega ef þetta er staðbundið
og fer út í vötn eða ár, þá getur það
leitt til svokallaðrar ofauðgunar og
þörungablómstra sem gerir það að
verkum að aðrar lífverur, fiskar og
önnur dýr, fá ekki nóg súrefni,“ út-
skýrir Sigríður Anna.
Hugmyndin var því að nýta
þjóðlegt og næringarríkt hráefni á
frumlegan hátt auk þess sem
drykkurinn gæti verið skemmti-
legur og spennandi matarminja-
gripur fyrir ferðamenn.
Unga kynslóðin hefur fúlsað
við mysunni vegna bragðsins sem af
henni er. „Sumir hræðast bragðið,
sérstaklega yngra fólkið sem þekkir
þetta ekki. Þegar maður talar við
eldra fólk þá man það eftir mysunni
því í gegnum tíðina var þetta helsti
svaladrykkurinn á Íslandi en hefur
alveg horfið úr neysluvenjum Ís-
lendinga nema kannski bara á
þorrablótum,“ útskýrir hún.
Án aukaefna
Við vinnslu Islanduss er notast
við skyrmysu sem unnin er með
hefðbundnum aðferðum á Erps-
stöðum í Dalasýslu og handtíndar
jurtir og ber af Vestfjörðum og víð-
ar. Engin auka- eða gerviefni eru
notuð og ekki heldur litarefni. „Af
því að við vildum bara hafa íslensk
hráefni fórum við út í það að nota
berjasafa úr krækiberjum, aðal-
bláberjum og bláberjum og síðan
jurtir eins og fjallagrös, blóðberg,
birki og fjörugrös. Þetta eru allt
jurtir sem má kannski segja að hafi
haldið lífi í þjóðinni og verið not-
aðar frá því að land byggðist bæði í
mat og til lækninga,“ segir Sigríður
Anna.
Hráefnið er staðbundið því
hugsunin er líka sú að valda ekki
meiri umhverfisáhrifum með því að
flytja hráefni í drykkinn yfir hafið.
Líka fyrir krakka
Þær stöllur hafa hugsað vöru-
línuna enn lengra og þar sem börn-
um þykir drykkurinn bragðast vel
datt þeim í hug að búa til klaka eða
frostpinna og er sú hugmynd enn á
teikniborðinu. „Við erum að reyna
að koma að því með vorinu eða í
sumar og er hugmyndin þannig að
hægt sé að hafa þetta í vökvaformi í
litlum einingum sem fólk getur svo
fryst heima hjá sér,“ segir Sigríður
Anna, ein frumkvöðlanna þriggja,
og þær virðast hvergi nærri hættar
hugmyndavinnunni og verður
spennandi að sjá hvort mysuklakinn
á ekki eftir að slá í gegn í sumaról-
inni og ylnum.
Kruss Þær Sigrún Andersen og Sigríður Anna Ásgeirsdóttir. Á myndina vantar þriðju konuna, Hildi Björk Hilm-
arsdóttur en saman standa þær á bak við Kruss ehf. sem framleiðir mysudrykkinn Islandus með vistvænum hætti.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
Audi Q5. Notadrjúgur
og glæsilegur.
Fullkomlega
samstillt hönnun.
Skilvirkni er undirstöðuþáttur í hverju einasta smáatriði. Hönnun Audi Q5 skartar rennilegum línum sem gefa útlitinu
sérlega tilkomumikinn blæ. Staðalbúnaður er m.a. rafdrifin opnun og lokun á afturhlera, skyggðar rúður, 3ja svæða
loftkæling, leðuráklæði, bluetooth símkerfi, bi-xenon aðalljós og díóðuljós (LED). Audi Q5 kostar frá kr. 9.040.000.
Annað kvöld, miðvikudaginn 26.
febrúar, verður sjálfsævisagan tekin
til ítarlegrar skoðunar í Bókakaffi í
Gerðubergi.
Gunnþórunn Guðmundsdóttir,
dósent í almennri bókmenntafræði
við Háskóla Íslands, hefur umsjón
með Bókakaffinu að þessu sinni en
hún hefur lagt sérstaka áherslu á
sjálfsævisögur og hafa rannsóknir
hennar einkum beinst að þeim. Þar
hefur hún rannsakað minni, frá-
sagnaraðferðir, bókmenntategundir,
póstmódernisma og falsanir í mis-
munandi tegundum æviskrifa. Hún
hefur mikinn áhuga á tilrauna-
mennsku í sjálfsævisögulegum
skrifum. Að undanförnu hefur Gunn-
þórunn unnið að rannsóknarverkefni
um gleymsku.
Annað kvöld mun hún fjalla um
væntingar lesenda til ævisagna og
kröfur þeirra um sannleiksgildi og
trúnað. Því verður meðal annars
velt upp hvað gerist þegar trúnað-
urinn brestur.
Sjálfsævisagan, sannleikurinn,
lygar, fals og ýkjur verða því til
skoðunar í Gerðubergi klukkan 20
annað kvöld og eru allir velkomnir
og aðgangur ókeypis.
Sjálfsævisagan og sannleikurinn viðfangsefni Bókakaffis
Umsjón Gunnþórunn Guðmunds-
dóttir hefur rannsakað gleymsku.
Fals, lygar og ýkjur til skoðunar
Það er fjölmargt framundan í Rope
Yoga setrinu við Engjateig og má þar
meðal annars nefna Yoga Nidra-
hugleiðslu sem boðið verður upp á
annað kvöld á milli kl. 20 og 21. Að-
gangur er ókeypis og leiðir Ægir Rafn
leiðbeinandi þátttakendur gegnum
form þessarar ævafornu hugleiðslu-
aðferðar. Hún er gerð útafliggjandi
og einbeitingu þannig náð gegnum
líkamann. Hugleiðslan hentar bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Á
fimmtudaginn hefst sex vikna nám-
skeið þar sem kennd verður djúp-
slökun með sömu aðferð. Nánari upp-
lýsingar á www.ropeyoga.is.
Margt framundan í Rope Yoga setrinu
Slökun Ægir Rafn kennir Yoga Nidra.
Hugleiðsla og djúpslökun