Morgunblaðið - 25.02.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
F
A
X
:
5
6
5
-2
3
6
7
N
ET
FA
N
G
:V
EI
SL
UL
IS
T@
VE
IS
LU
LIS
T.I
S
ST
O
FN
AÐ
19
75
Skútan
H Ó L S H R A U N 3
220 HAFNARJÖRÐUR
SÍMAR: 555-1810 / 565-1810
WWW.VEISLULIST. IS
PANTANIR FYRIR VEISLUR
ÞURFA AÐ BERAST TÍMALEGA.
GÓÐ FERMINGARVEISLA
GLEYMIST SEINT...
Fermingar-
veisla
Bjóðum nokkrar gerðir af fermingarborðum.
Fjölbreyttir réttir smáréttaborðanna okkar henta bæði í hádegis- og kvöldveislur.
Tertu og
Tapasborð
frá 3.640.-
Fermingar
kaffihlaðborð
frá 2.148.-
Súpa brauð og
smáréttir
frá 2.821.-
1 2 3
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Hafnar eru framkvæmdir við leng-
ingu viðlegukants við Miðgarð í
Skagastrandarhöfn. Um er að ræða
40 metra lengingu til norðurs og 320
m2 bryggju úr harðviði sem tengist
stálþilinu sem er í Miðgarði. Það er
Guðmundur Guðlaugsson, verktaki
frá Dalvík, sem sér um verkið fyrir
Hafnarsjóð Skagastrandar en und-
irverktaki hans, Árni Helgason frá
Ólafsfirði, mun sjá um að reka niður
staura og grjótfyllingu sem sett
verður í fláa innan við viðlegukant-
inn.
Þessi nýi viðlegukantur er ætl-
aður minni bátum því skortur á við-
legurými fyrir þá hefur verið viðvar-
andi í höfninni, einkum á sumrin, um
mörg ár. Þau nýmæli eru, með þessa
nýju bryggju, að dekk hennar verð-
ur 20 cm hærri en aðrar bryggjur
hafnarinnar. Í þessu efni er farið eft-
ir ráðleggingum Hafnamálastofn-
unar vegna væntanlegrar hærri
sjávarstöðu í framtíðinni. Áætlaður
kostnaður við framkvæmdina er
rúm 41 milljón króna sem skiptist
þannig að Hafnarsjóður Skaga-
strandar greiðir 40% kostnaðarins
en ríkið 60%. Fram að þessu hefur
kostnaðarskiptingin vegna hafnar-
framkvæmda verið sveitarfélögum
mun hagstæðari, þ.e.a.s. allt að 90%
greidd af ríkinu. Áætluð verklok við
nýja viðlegukantinn eru 31. maí.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódus
Bætt aðstaða Nýi viðlegukanturinn mun bæta aðstöðu minni báta.
Nýr viðlegukantur í
Skagastrandarhöfn
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
„Við tökum með bros á vör á móti
öllum þeim sem vilja koma og hlusta
og ég er viss um að enginn verður
fyrir vonbrigðum“, segir Þórunn
Sigþórsdóttir sem ásamt fleiri kon-
um stendur að Júlíönu, hátíð sögu og
bóka í Stykkishólmi dagana 27. febr-
úar til 2. mars.
Í fyrra tóku nokkrar konur í
Stykkishólmi tóku sig til og efndu til
bókmenntavöku síðustu helgi í febr-
úar. Hátíðin var kennd við Júlíönu
Jónsdóttur sem var fyrst íslenskra
kvenna að gefa út skáldrit á Íslandi.
Júlíana bjó hluta af ævi sinni í Stykk-
ishólmi, en flutti síðar til Vestur-
heims. Viðtökur í fyrra voru svo
góðar að þær ákváðu að láta ekki
staðar numið heldur halda áfram og
bjóða upp á bókahátíð helgina 27.
febrúar til 2. mars næstkomandi.
Lífsstarf Guðmundar
Ólafssonar
Að sögn Þórunnar verður Júl-
íönuhátíð sett fimmtudagskvöldið
27. febrúar í Vatnasafninu. Þar
verður heiðrað lífsstarf Guðmundar
Páls Ólafssonar náttúrufræðings,
sem var hér heimamaður. Blær Guð-
mundsdóttir segir frá föður sínum
og lesið verður úr síðustu bók hans:
Vatnið.
Á föstudeginum verður dagskrá
víðs vegar um bæinn, meðal annars
upplestur í Bókaverslun Breiða-
fjarðar, boðið verður í heimahús þar
sem Hólmarar munu flytja efni að
eigin vali. Kvöldið endar svo með
sögugerð á Hótel Egilsen þar sem
allir geta tekið þátt. Hópur fólks í
tengslum við hátíðina les nú af miklu
kappi bók Ármanns Jakobssonar
Glæsi sem er söguleg skáldsaga sem
byggist á atburðum úr Eyrbyggju.
Ármann kemur og hittir leshópinn á
laugardaginn. Hann mun einnig
halda erindi í gömlu kirkjunni. Þar
mun líka Guðmundur Andri Thors-
son rithöfundur fjalla um bók sína
Sæmd og Árni Þórarinsson rithöf-
undur heldur erindi um tilurð sögu-
persóna í bókum sínum. Á laugar-
dagskvöldið verður leikþátturinn
Víg Kjartans Ólafssonar, eftir Júlí-
önu Jónsdóttur sem hátíðin er nefnd
eftir, leiklesinn af Alexíu Björgu Jó-
hannesdóttur leikkonu, sem á ættir
og uppruna hér í bæ.
Þórunn segir að það verði menn-
ingarlegt yfirbragð í Hólminum
þessa helgi. Því er tilvalið fyrir gesti
að heimsækja Stykkishólm og njóta
fjölbreyttra menningarvöku. Gisti-
staðir eru opnir og veitingahús
bjóða upp á góðar veitingar.
Glæpir og misgjörðir til
umfjöllunar á bókahátíð
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stýra hátíð Þórunn Sigþórsdóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir, Gréta Sigurð-
ardóttir og Sigríður Erla Guðmundsdóttir skipuleggja Júlíönuhátíðina.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Hafin er sala á byggingarrétti á lóð-
um númer 6 og 7 á Hörpureitnum og
hafa Ríkiskaup auglýst eftir tilboðum
í byggingarreitina fyrir hönd Sítusar
ehf. Reitur 6 er stærsta lóðin við
Austurbakka sem enn er óseld en
hún er við hliðina á væntanlegu lúx-
ushóteli og liggur nær Arnarhólnum.
Þar er gert ráð fyrir að rísi versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði.
„Borgin breytti deiliskipulagi um
daginn þannig að reitur 6 stækkaði
en borgin fær þá stækkun til umráða
og okkar hlutur helst óbreyttur. Við
eigum 12 þúsund fermetra ofanjarð-
ar og tvö þúsund fermetra neðan-
jarðar en borgin fær 2.500 fermetra í
viðbót,“ segir Árni Geir Pálsson,
verkefnisstjóri hjá Sítusi.
Fram kom í Morgunblaðinu í sein-
ustu viku að forsvarsmenn Land-
bakka, sem á reit númer 2, hafa
gagnrýnt þessa skipulagsbreytingu
harðlega gagnvart Reykjavíkurborg,
þar sem hún skerði byggingarrétt á
þeirra reit. Í auglýsingu Ríkiskaupa
segir að heimilt byggingarmagn of-
anjarðar á reit 6 sé 12 þúsund fer-
metrar miðað við núverandi deili-
skipulag en það geti stækkað um
2.500 fermetra miðað við fyrirliggj-
andi tillögur um stækkun reitsins.
Hafi fjárhagslegt bolmagn
Útboðstími vegna sölu á
byggingarrétti á báðum lóðunum er
45 dagar og bendir Árni Geir á að
væntanlegir bjóðendur þurfi að geta
sýnt fram á að fjármögnun verði
tryggð þegar gengið yrði til samn-
inga og að þeir hafi fjárhagslegan
styrk á bak við tilboð sín. „Þetta ger-
um við til þess að reyna að sigta út og
tryggja að það verði eingöngu raun-
verulegir bjóðendur sem bjóða í
þetta,“ segir hann.
Hagnaðarskiptaregla ef reitur-
inn verður seldur áfram
„Við bjuggum einnig til hagnaðar-
skiptareglu í tengslum við útboðið.
Ef sá sem kaupir reitinn selur hann
aftur með hagnaði á fyrsta árinu, þá
fáum við hlutdeild í þeim hagnaði.
Geri hann það á fyrsta degi þá fáum
við allan hagnaðinn en svo fellur hlut-
deild í hagnaðinum línulega niður þar
til í lok ársins þegar hún fellur alveg
út.
Bæði þessi atriði eru gerð til að
reyna að tryggja eins og kostur er að
það verði farið sem fyrst í fram-
kvæmdir þannig að þessar bygg-
ingar, hótelið og byggingar á reitum
eitt og tvö, rísi allar á sama tíma,“
segir Árni Geir.
Hörpureitur Á reit 6 milli Kalkofnsvegar og væntanlegs hótels á að vera húsnæði fyrir verslun og þjónustu en á
minnsta reitnum nr. 7 milli Hörpu og hótelsins má byggja 500 fermetra ofanjarðar en 2.500 fermetra neðanjarðar.
Leita kaupenda að reit-
um 6 og 7 við Hörpu
Vilja að farið verði sem fyrst í framkvæmdir svo bygg-
ingar rísi á sama tíma og hótelið og íbúðir á reitum 1 og 2