Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
Það borgar sig að
nota það besta!
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Kúplingar- og höggdeyfar
Stýrisendar og spindilkúlur
Hjólalegusett Hjöru- og öxulliðirHemlahlutirKúlu- og rúllulegur
Viftu- og tímareimar
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Í viðræðum við forsvarsmenn Seðlabanka
Bandaríkjanna á árinu 2008 fór Seðlabanki Ís-
lands þess á leit að gerður yrði gjaldmiðla-
skiptasamningur milli seðlabankanna að fjár-
hæð 1-2 milljarðar Bandaríkjadala, jafnvirði
115-230 milljarða króna á núverandi gengi.
Þetta kom fram á fundi peningastefnunefnd-
ar (FOMC) Seðlabanka Bandaríkjanna 28. til
29. október 2008 en allar fundargerðir nefnd-
arinnar frá því sögulega ári á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum voru gerðar opinberar í fyrsta
sinn sl. föstudag. Ekki hefur áður verið greint
frá þeirri fjárhæð sem Seðlabankinn óskaði eftir
í viðræðum sínum við bandaríska seðlabankann
en sem kunnugt er vildi hann ekki gera skipta-
samning af þessu tagi við Seðlabanka Íslands.
Á fundi peningastefnunefndarinnar sagði
Nathan Sheets, hagfræðingur hjá Seðlabanka
Bandaríkjanna, að þrátt fyrir að slíkur samn-
ingur hefði verið hlutfallslega stór, um 5-10% af
landsframleiðslu Íslands, þá hefði hann ekki
dugað til að leysa hinn undirliggjandi vanda,
sem var skortur á trúverðugleika íslenska
bankakerfisins sem skuldaði 170 milljarða dala.
Gjaldmiðlaskiptasamningur að fjárhæð 1-2
milljarðar dala hefði því ekki skilað tilætluðum
árangri. Af þeim sökum hafi starfsmenn seðla-
bankans, útskýrði Sheets, lagst gegn því að
gerður yrði slíkur skiptasamningur við Seðla-
banka Íslands.
Málefni Íslands bar ekki á góma á öðrum
fundum nefndarinnar á árinu 2008.
Skipti sköpum fyrir Danske Bank
Seðlabanki Bandaríkjanna gerði gjaldmiðla-
skiptasamninga í lok september 2008 við þrjá
norræna seðlabanka og þann ástralska. Vakti
það talsverða athygli á þeim tíma að Seðlabanki
Íslands var ekki á meðal þeirra sem bauðst að
taka þátt í samningunum. Jesper Rangvid, pró-
fessor í fjármálum við Kaupmannahafnarhá-
skóla og formaður nefndar sem rannsakaði or-
sök og afleiðingar dönsku fjármálakreppunnar,
sagði á málstofu Seðlabanka Íslands sl. nóvem-
ber að gjaldeyrisskiptasamningurinn hefði skipt
sköpum til að tryggja erlenda fjármögnun
Danske Bank.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er
fjallað um tilraunir stjórnenda Seðlabanka Ís-
lands til að falast eftir gjaldmiðlaskiptasamningi
við þann bandaríska. Í bréfi sem Davíð Oddsson,
þáverandi formaður bankastjórnar, ritaði til
Timothy Geithner, bankastjóra Seðlabanka
Bandaríkjanna í New York, hinn 6. júní 2008,
lýsir hann þeirri skoðun að stærð skiptasamn-
ingsins sé ekki endilega það sem mestu máli
skipti – heldur fremur þau skilaboð að Ísland
njóti trausts mikilvægra bandamanna.
Eftir tilkynningu þess efnis að Seðlabanki
Bandaríkjanna hefði gert gjaldeyrisskipta-
samninga við þrjá norræna seðlabanka kannaði
Davíð á ný hvort möguleiki væri á slíkum samn-
ingi við Seðlabanka Íslands. Var því svarað á þá
leið að „Seðlabanki Bandaríkjanna væri ekki
tilbúinn til að gera slíkan samning að svo stöddu
en útilokaði ekki að það yrði gert síðar“. Þegar
málinu var fylgt eftir í byrjun október fengust
efnislega sömu svör frá William Dudley, stað-
gengli framkvæmdastjóra fjármálamarkaðs-
sviðs Seðlabanka Bandaríkjanna í New York.
„Meginástæða þess væri hve stórt íslenska
bankakerfið væri og að til þess að gjaldeyris-
skiptasamningur gerði gagn yrði hann að vera
stærri en svo að bandaríski seðlabankinn sæi
sér fært að taka þátt í gerð hans.“
Vildi 1-2 milljarða dala samning
Morgunblaðið/Júlíus
SÍ Kom að lokuðum dyrum þegar hann reyndi að falast eftir gjaldmiðlaskiptasamningi.
Seðlabanki Íslands óskaði eftir gjaldmiðlaskiptasamningi við þann bandaríska að fjárhæð 1-2 millj-
arðar dala Fundargerðir bankaráðs Seðlabanka Bandaríkjanna á árinu 2008 gerðar opinberar
Fundargerðir birtar
» Allar fundargerðir peningastefnu-
nefndar Seðlabanka Bandaríkjanna 2008
voru gerðar opinberar sl. föstudag.
» Á fundi nefndarinnar 28. til 29. októ-
ber er fjallað um þá ákvörðun bandaríska
seðlabankans að gera ekki gjaldeyris-
skiptasamning við Seðlabanka Íslands.
» Fram kemur að SÍ óskaði eftir skipta-
samningi að fjárhæð 1-2 milljarðar dala.
» Var talið að slíkur samningur hefði
litlu breytt til að leysa undirliggjandi
vanda Íslands – alltof stórt bankakerfi.