Morgunblaðið - 25.02.2014, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
✝ Guðný Sigur-björg Ragnars-
dóttir fæddist í
Keflavík 25. febr-
úar 1929 og hefði
því orðið 85 ára í
dag. Hún andaðist
á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
14. september
2013.
Guðný var
yngsta dóttir
hjónanna Ragnars Jóns Guðna-
sonar, f. 11. janúar 1899, d. 11.
desember 1979 og Jennýar Dag-
bjartar Jóramsdóttur, f. 13. júní
1901, d. 4. október 1998. Systur
hennar voru Jórunn Bergheið-
ur, f. 2. janúar 1922, d. 2. apríl
1953 og Ragnhildur, f. 21. októ-
ber 1927, d. 3. janúar 2012.
Guðný giftist 25. desember
1952 eftirlifandi eiginmanni sín-
Jóhann Rúnar Kjærbo, f. 31.
maí 1957. Börn hans með eigin-
konu sinni, Elísabetu Guðrúnu
Þórarinsdóttur, f. 21. febrúar
1957, eru: a) Guðný Björg, f. 10.
febrúar 1982. Barn hennar með
sambýlismanni sínum, Finn
Valdemarssyni, f. 23. febrúar
1982, er Elísabet Margrét, f. 14.
maí 2011. b) Þórunn Kristín, f.
26. október 1987. c) Bryndís
Jenný, f. 8. ágúst 1991. Sam-
býlismaður, Jón Arinbjörn Ein-
arsson, f. 12. mars 1992. d) Ey-
dís Sjöfn, f. 17. júlí 1994. Fyrir
átti Þorbjörn dótturina Guð-
rúnu Björgu, f. 23. september
1947.
Guðný og Þorbjörn bjuggu
allan sinn búskap í Keflavík.
Þau byggðu sitt fyrsta heimili
að Hátúni 1 í Keflavík, en þaðan
fluttu þau og byggðu sér heimili
að Langholti 10. Síðustu árin
bjuggu Guðný og Þorbjörn að
Pósthússtræti 1 í Keflavík.
Útför Guðnýjar fór fram í
kyrrþey 26. september 2013.
Duftker Guðnýjar var jarðsett í
Keflavíkurkirkjugarði 29. nóv-
ember 2013.
um, Þorbirni
Kjærbo, f. í Sumba
í Færeyjum 27.
mars 1928. Þor-
björn er sonur Guð-
rúnar Jóhönnu Sig-
tryggsdóttur, f. 18.
desember 1906, d.
21. apríl 2003 og
Thomas Oliver Sof-
us Kjærbo, f. 22.
febrúar 1904, d.
1978. Börn þeirra
eru: 1) Guðni Björn Kjærbo, f. 3.
júlí 1952. Börn hans með fyrr-
verandi sambýliskonu sinni,
Gerði Guðmundsdóttur, f. 15.
febrúar 1955, eru: a) Þorbjörn
Emil, f. 5. mars 1979, og b)
Tinna Eir, f. 3. ágúst 1985. Barn
hennar með sambýlismanni sín-
um, Ara Hálfdáni Aðalgeirs-
syni, f. 13. maí 1988, er Aðal-
geir Emil, f. 15. október 2013. 2)
Minning um ömmu Guðnýju.
Ástkær amma okkar, Guðný
Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
kvaddi þennan heim síðastliðið
haust. Við eigum svo margar
góðar minningar um ömmu Guð-
nýju og verðum ævinlega þakk-
látar fyrir að hafa átt hana að.
Amma Guðný var yndisleg og
góð kona og okkur þótti undur
vænt um hana. Hún tók okkur
alltaf fagnandi þegar við komum
í heimsókn, með sitt hlýja faðm-
lag og góðu nærveru og vildi
dekra við okkur eins og henni
var einni lagið. Húsið hennar
ilmaði oft af nýbökuðum pönnu-
kökum eða öðru góðgæti. Hún
leyfði okkur aldrei að fara svang-
ar heim og lét okkur oft hafa
eitthvað hollt og gott með okkur
í nesti. Hún passaði alltaf upp á
að enginn væri skilinn út undan
og allir fengu jafnt. Hún hugsaði
svo vel um alla sem stóðu henni
næst og var alltaf tilbúin að
hjálpa, sérstaklega ef veikindi
bjátuðu á. Ef einhver í fjölskyld-
unni var lasinn kom hún oft fær-
andi hendi með sítrónur, hunang
og fjallagrös til hressingar.
Hún amma Guðný var mjög
söngelsk og hafði mjög gaman af
því að syngja fyrir okkur og spila
á gítar. Hún talaði oft um hvað
henni hefði þótt gaman í skát-
unum á sínum yngri árum en þar
var mikið sungið og spilað. Hún
hafði svo blíða og fallega rödd.
Hún sagði okkur oft sögur af
því þegar hún var í húsmæðra-
skólanum og átti hún margar
góðar vinkonur frá þeim árum.
Hún var greinilega mjög góður
nemandi því heimili hennar bar
þess merki að hún hefði lært
mikið frá þeim tíma. Henni var
mjög umhugað um að við gengj-
um menntaveginn, hún hafði
mikinn áhuga á að læra meira
þegar hún var ung en á þeim
tíma stóð það því miður ekki til
boða.
Við dáðumst oft að því hvað
hún væri ungleg miðað við aldur
og létt á fæti. Það var ekki að sjá
á henni að hún væri deginum
eldri en sextug. Það var lítið mál
fyrir hana að leggjast á gólfið og
leika við langömmustelpuna sína
þó hún væri sjálf komin á níræð-
isaldur. Amma hugsaði vel um
heilsuna, eldaði hollan mat og
hafði gaman af því að stunda golf
með afa á meðan heilsan leyfði.
Amma Guðný gaf okkur svo
mikla ást og umhyggju. Hún
mun alltaf eiga sérstakan stað í
hjarta okkar.
Guð blessi fallegu minningu
ömmu Guðnýjar.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
(Valdimar Briem)
Guðný Björg, Þórunn
Kristín, Bryndís Jenný
og Eydís Sjöfn
Það var komið að því að hitt-
ast aftur hjá okkur systradætr-
unum, en við höfum hist tvisvar á
ári síðastliðin 30 ár. Guðný
frænka, eða Lilla eins og hún var
ætíð kölluð, var nýbúin að fá úr-
skurð um alvarlegan sjúkdóm,
sem hún tók með ótrúlegu æðru-
leysi. Ekkert var því eðlilegra í
hennar huga en að við héldum
frænkuboð eins og ætíð á haust-
dögum.
Í byrjun september ákváðu
Lilla og Guðrún að frænkuboðið
yrði sunnudaginn 15. september
í Njarðvíkunum og voru allar
harðákveðnar í að mæta, enda
alltaf gaman þegar við komum
saman þó aldurinn sé farinn að
færast yfir, sú yngsta 68 ára en
sú elsta að verða 90 ára. En allt
er í heiminum hverfult, því Lilla
kvaddi þennan heim að kvöldi 14.
september.
Við frænkurnar höfum átt
samleið lengi enda voru mikil og
náin tengsl milli mæðra okkar.
Eftir að við fórum að hittast
reglulega, höfum við myndað ný
tengsl vináttu, sem tengir betur
fjölskyldur okkar.
Við vorum níu í frænkuhópn-
um, en með stuttu millibili hafa
systurnar Lilla og Ragga kvatt
og hefur stórt skarð verið rofið í
okkar litla hóp. Það fær okkur til
að hugsa um það hversu mikil-
vægt er að huga að fjölskyldu-
tengslum í blíðu og stríðu. Fjöl-
skyldan skipti Lillu miklu, hún
fylgdist vel með drengjunum sín-
um og fjölskyldum þeirra og
einnig voru sterk tengsl milli
systranna og fjölskyldna þeirra.
Við eigum ljúfar minningar
frá frænkuboði í nýju íbúðinni
þeirra Lillu og Þorbjörns í Póst-
hússtræti. Heimilið og veitingar
báru fagurt vitni um húsráðend-
ur. Það var ljúft að koma til
þeirra. Í huga okkar er sú vissa
að þær systur Lilla, Ragga og
Jórunn sem lést langt um aldur
fram, séu nú saman á fögrum
stað, brosandi og glaðar eins og í
bernsku.
Við sendum Þorbirni, Guðna,
Jóhanni Rúnari og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúðar-
kveðjur. Við kveðjum kæra
frænku með virðingu og þakk-
læti fyrir vináttu og ljúfar minn-
ingar, sem munu lýsa okkur um
ókomna tíð.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH)
Jórunn, Guðrún, Ingveldur,
Svanhildur, Erna, Sigurrós
og Valgerður.
Guðný Sigurbjörg
Ragnarsdóttir
„Vini sínum skal
maður vinur vera“
segir í Hávamálum.
Þannig var vinkona
mín, Birna Helga-
dóttir frá Leirhöfn á Melrakka-
sléttu. Hún fæddist í Leirhöfn,
því merka höfuðbóli þar sem
menning og manngæska skipuðu
öndvegi og gera enn.
Svo lengi sem ég man ríkti vin-
átta og traust milli húsbændanna
í Leirhöfn, þeirra Andreu Jóns-
dóttur og Helga Kristjánssonar,
og foreldra minna, Guðmundar
Björnssonar og Þóreyjar Böðv-
arsdóttur sem bjuggu á Kópa-
skeri. Að fara út í Leirhöfn var
meiriháttar viðburður og
skemmtilegur.
Við Birna urðum snemma á
lífsleiðinni miklar vinkonur, þar
féll aldrei á hvorki blettur eða
hrukka. Við gengum saman í
barnaskólann á Kópaskeri og
mér finnst í minningunni að þá
hafi alltaf verið sól. Á ungl-
ingsárunum var mikill og góður
félagsskapur fyrir norðan meðal
unga fólksins og þá dönsuðum við
Birna mikið saman. Stundum
birtist herra sem okkur leist
hreint ekkert á, þá tók Birna
stjórnina og við liðum út á gólfið
en herrann sat eftir með sárt
ennið. Eitt sinn var ég á leið út í
Grjótnes og ætlaði Birna að
fylgja mér þangað frá Leirhöfn.
Þá voru bílar ekki tiltækir svo að
við fengum hesta til fararinnar.
Ekki leist hestunum á knapana
og sýndu þeir fyrirlitningu sína
með því að ganga aftur á bak.
Þessi lífsreynsla varð okkur um
megn og fórum við báðar að
gráta. Vandamálið leystist með
hjálp Jóhanns, bróður Birnu, og
mig minnir að bros hafi leynst í
augunum.
Birna var mikil námsmann-
eskja, vel verki farin og sérlega
nákvæm og vandvirk. Hún tók
Birna Helgadóttir
✝ Birna Helga-dóttir fæddist
20. apríl 1932. Hún
andaðist 12. febr-
úar 2014. Útför
Birnu fór fram 24.
febrúar 2014.
gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskólan-
um á Húsavík og
stundaði síðar nám í
Húsmæðraskólan-
um á Ísafirði. Hún
vann um tíma í Úra-
og skartgripaversl-
un Jóhannesar
Norðfjörð í Reykja-
vík, en aðalstarfs-
vettvangur hennar
var Borgarbóka-
safnið í Reykjavík. Þar var hún á
heimavelli, vön störfum á hinu
stóra bókasafni föður síns í Leir-
höfn.
Birna tók mikinn þátt í starfi
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og var þar trúnaðarmaður
lengi. Hún ferðaðist mikið, bæði
erlendis og hérlendis, hún kunni
skil á því sem fyrir augu bar, víð-
lesin, fróð og minnug. Síðustu ár-
in hefur hún háð baráttu vegna
veikinda og tekið því með æðru-
leysi, umvafin öllu því góða fólki
sem að henni stendur.
Takk fyrir mig, Birna mín.
Ragnhildur G.
Guðmundsdóttir.
Við minnumst Birnu Helga-
dóttur sem sterkrar og sjálf-
stæðrar konu.
Hún hafði ríka réttlætiskennd,
mikla stéttarvitund og starfaði
mikið með Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar.
Í vinnu var hún fyrirmynd
yngri starfsmanna, rétt skyldi
rétt. Gat stundum verið gagnrýn-
in, en alltaf réttlát og stutt í húm-
orinn.
Birna var ætíð glöð og hress
og frábærlega skemmtileg í fé-
lagslífi starfsmanna.
Hún vildi sjá sig um í heim-
inum og ferðaðist mikið þegar ut-
anlandsferðir voru ekki eins al-
gengar og þær eru í dag.
Eftir stendur minning um
hlýja, sterka og karaktermikla
konu.
Samúðarkveðja til ættingja.
Dóra Thoroddsen og
Erla Kristín Jónasdóttir,
samstarfsmenn í Borg-
arbókasafni, Bústaðasafni.
Elsku amma
mín.
Ég man frá bernsku
mildi og kærleik þinn,
man hve oft þú gladdir huga minn.
Og glæddir allt hið góða í minni sál,
að gleðja aðra var þitt hjartans mál.
Og hvar um heim, sem liggur
leiðin mín
þá lýsa mér hin góðu áhrif þín.
Mér örlát gafst af elskuríkri lund,
og aldrei brást þín tryggð að hinstu
stund.
(Höf. ók.)
Það er óraunverulegt að þú
sért farin þó ég hafi verið hjá
þér þegar þú fórst yfir í eilífð-
arlandið en það var mér mikils
virði að vera hjá þér. Þú hefur
verið svo stór partur af lífi mínu
frá því ég man eftir mér. Þú
varst einn af mínum bestu vin-
um fram á síðasta dag og ég
sakna þín mikið. Sveitin þín er
minn uppáhaldsstaður og þaðan
á ég ótal góðar minningar, mér
líður hvergi betur en þar. Það er
þér að þakka, amma mín, þar
Eyrún
Guðmundsdóttir
✝ Eyrún Guð-mundsdóttir
fæddist 1. sept-
ember 1921. Hún
lést 8. febrúar
2014. Útför Eyrún-
ar var gerð 22.
febrúar 2014.
sem alltaf var til-
hlökkunarefni að
koma til þín og þú
tókst á móti manni
með hlýju, góðum
mat og kertaljós-
um. Þessar góðu
stundir mun ég
alltaf geyma í
hjarta mínu.
Þú varst félagi
minn og jafningi og
ég gat alltaf hugsað
mér að gera eitthvað með þér.
Þú hafðir stórt hjarta, amma
mín, og það voru alltaf allir vel-
komnir til þín. Tíminn sem þú
varst hjá okkur í Reykjavík er
mér ekki minna dýrmætur og
þar gerðum við ýmislegt saman.
Fengum okkur göngutúr út í
Glæsibæ og keyptum okkur
súpu, kíktum í búðirnar, gerðum
æfingar, spiluðum og horfðum
saman á sjónvarpið, alltaf varst
þú tilbúin að gera hvað sem var
með mér. Við vorum góðar sam-
an og mér leið alltaf vel með
þér. Ég gat alltaf verið ég sjálf í
kringum þig og sagt þér allt því
að ég vissi að þú myndir taka
því vel, þú studdir mig þegar ég
þurfti mest á því að halda og þá
var gott að eiga faðminn þinn
að.
Þú ert mér mikil fyrirmynd
og í mínum augum ert þú bar-
dagahetja og kvenskörungur.
Eitt af því síðasta sem ég sagði
þér var að ég væri komin í rapp-
hóp sem heitir Reykja-
víkurdætur vegna þess að mér
fannst mér skylt að gera tilraun
til að vera kvenskörungur þar
sem ég væri komin af svo mikl-
um kvenskörungi. Þá hlóst þú,
amma mín.
Það er svo ótalmargt sem ég
hefði viljað segja þér og sýna og
ég hefði viljað að þú myndir
upplifa með mér. Ég vona að þú
verðir alltaf hjá mér og sjáir
hvernig lífi mínu vindur fram.
Guð geymi þig þar sem þú ert,
elsku amma mín, ég mun aldrei
gleyma þér því þú verður alltaf í
hjarta mínu.
Af heitu hjarta allt ég þakka þér,
þínar gjafir, sem þú veittir mér.
(Höf. ók.)
Þín
Ásthildur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku amma. Þú varst mér
svo kær. Ég mun aldrei gleyma
þeim stundum sem við áttum
saman. Ég vona að þú sért kom-
in á betri stað þar sem þú ert
umvafin hamingju og ást í faðmi
afa sem hefur tekið fagnandi á
móti þér. Mér finnst svo ótrú-
lega sárt að þú sért farin á brott
en ég veit að þú ert skammt frá.
Þú fylgir okkur og vísar okkur á
hið góða. Ég mun geyma alla þá
visku og þann kærleik sem þú
kenndir mér innst í hjarta mínu.
Megi Guð vera hjá þér og
vernda þig. Ég elska þig að ei-
lífu amma mín og mun varðveita
minningar um okkar góða tíma.
Megir þú hvíla í friði.
Þín
Erna Hödd.
Elsku Eyja mín, nú ert þú
horfin af heimahlaði, hugur
minn og okkar allra er þó bund-
inn þér á þessari stundu meir en
nokkru sinni, þannig er líf vort í
þessum heimi.
Á slíkum tímamótum erum
við mannanna börn nær hvert
öðru en nokkru sinni. Þá finnum
við hvað sá horfni var manni
kær, ljúfsárar minningar um
samskipti sem voru svo mikils
virði, orð og atvik birtast og rað-
ast upp eins og myndir á tjaldi.
En líka vaknar gremja að hafa
ekki ræktað sambandið betur og
vakað svoldið lengur. Svona er
mér innanbrjósts nú þegar ég
reyni að setja á blað nokkur
kveðjuorð til þín sem varst mér
svo góð, já og reyndar svo tengd
alla mína lífsgöngu.
Fyrst þegar ég heyrði nafn
þitt var það hún Eyja í Króki,
hún hafði, þegar ég var á fyrsta
árinu, verið sumarlangt móður
minni til aðstoðar á heimilinu og
þá einkanlega við að passa mig
og vernda í upphafi göngu minn-
ar hér á þessari jörð. Seinna
þegar ég fór að muna eftir mér
varstu komin að Kálfhóli, gift
Þórði vini mínum og fyrirmynd
um margt þegar ég fór að vaxa
úr grasi. Þá voru þið öll svo ung
og systkinin á Kálfhóli í blóma
lífsins, vegurinn þangað lá um
hlaðið heima og dagleg sam-
skipti meira og minna árið um
kring.
Þorbjörg, amma Þórðar, var
fædd í Háakoti í Fljótshlíð 1850
og afi minn, Guðmundur, var
fæddur þar líka 1856 og ólst þar
upp, saman komu þau út á Skeið
1880 og aldrei hafa vináttubönd-
in rofnað milli þessara kyn-
kvísla allt fram á þennan dag.
Það var alltaf gaman að koma að
Kálfhóli, þar var alltaf tími til að
spjalla um alla heima og geima
og Eyja átti alltaf eitthvað ný-
bakað með kaffinu sem borið
var á borð. Yfirleitt settist hún
ekki við borðið, stóð frekar við
eldavélina og leit út í gluggann
um leið og hún með sínum létta
hlátri kom inn í umræðuna af
hógværð og stillingu. Það hefur
alltaf verið erfitt að vera einyrki
á jörð og byggja allt upp frá
grunni, það gerðu þau Þórður
og Eyrún, þau lögðu sannarlega
sitt af mörkum með sóma og
skiluðu góðu búi. Íbúðarhús var
byggt, öll útihús og ræktun eftir
því sem búið stækkaði. Börnin
komu eitt af öðru öll heilbrigð
og hæfileikafólk, mörg há-
menntuð í ábyrgðarstöðum.
En eina ferð gerði Þórður á
Kálfhóli betri en nokkra aðra í
lífinu, hún var þegar hann fór
með tvo til reiðar austur yfir
Þjórsá upp að Króki og sótti þig,
þar með var grunnurinn lagður
að gæfu ykkar beggja og svo þið
í sameiningu barna ykkar og
fjölskyldna. Megi góður Guð
blessa minningu Eyrúnar og
Þórðar á Kálfhóli og arf þeirra.
Árni Valdimarsson.
Eyrún Guðmundsdóttir eða
Eyja eins og hún var alltaf köll-
uð var mikill kvenskörungur og
gekk til allra verka af dugnaði,
utan bæjar sem innan. Hún hélt
vel utan um börnin sín og ann-
arra sem voru mörg hjá þeim
hjónum á sumrin. Við krakkarn-
ir í vestri nutum góðs af góðvild
hennar því það var mikill sam-
gangur á milli bæja og fjörið
mikið.
Viljum við þakka Eyju fyrir
samveruna og Guð geymi hana.
Aðstandendum vottum við okk-
ar samúð.
F.h. systkinanna í vestur-
bænum á Kálfhóli.
Guðrún Auðunsdóttir.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morgun-
blaðslógóið efst í hægra horninu
og velja viðeigandi lið
Minningargreinar