Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 1
EinhverfireinangraðirMÓÐIR EINHVER Fékk koníakfrá Össuri SUNNUDAGUR SIGGA HEIMISBÝÐUR Í MATMATARBOÐ 32 NÝR SPJALL-ÞÁTTURÍ LOFTIÐ 16. MARS 2014 VIÐTAL 54 ÞÓRAVALDIMARSHJÁ COSTUMETÍSKA 42 HILLUSKRAUT KANASJÓNVARPINU VAR MÓTMÆLT AF KRAFTI FYRIR HÁLFRI ÖLD. EN HVERSU MIKIL ERU AMERÍSK ÁHRIF Á ÍSLANDI Í DAG? 50 * AMERÍSKTÍSLAND? LÆTUR GOTT AF SÉR LEIÐA MEÐ GEIMFERÐ CHERRY SNÝR AFTUR Á SJÓNARSVIÐIÐ TÓNLISTARPISTILL ARNARS EGGERTS 46GÍSLI GÍSLASON 10 Sjókvíar Í kynslóðaskiptu eldi felst vörn gegn sjúkdómum og sníkjudýrum.  „Þetta er okkar leið til að skapa okkar framleiðslu sérstöðu,“ segir Sigurður Pétursson, framkvæmda- stjóri Dýrfisks. Fyrirtækið er með eldi á regnbogasilungi í sjókvíum á Dýrafirði og víðar og er fyrsta ís- lenska fiskeldisfyrirtækið til að fara út í lífræna framleiðslu. Það hefur fengið vottun á lífræna aðlög- un og í fyllingu tímans mun hluti framleiðslunnar fá vottun. Fleiri fiskeldisfyrirtæki eru að huga að lífrænni vottun. Þannig stefnir Fjarðalax, stærsta laxeldis- fyrirtækið, að því að hefja slíka framleiðslu eftir fáein ár. »14 Fiskeldisfyrirtækin búa sig undir líf- ræna framleiðslu Óþægileg staða » Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa- Fjarðaál, segir framleiðslutap vera alvarlegt mál. » Móðurfélaginu finnist þetta vera óþægileg staða og hafi bent á að í augum erlendra fjárfesta sé þetta ekki gott. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Skerðing á raforku Landsvirkjunar til stórnotenda og í heildsölu er farin að valda áhyggjum meðal erlendra fjárfesta. Allt stefnir í slæmt vatnsár hjá Landsvirkjun annað árið í röð og fyrirtækið metur nú hvort grípa þurfi til frekari skerðinga. Spurð hvað sé til ráða segir Ragn- heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tvo kosti í stöð- unni. Annars vegar nýir virkjunar- kostir og hins vegar styrking flutn- ingskerfis Landsnets. Ragnheiður segist hafa komið inn á þetta við vígslu Búðarhálsvirkjunar á dögun- um. „Þar vísaði ég til þess að Lands- virkjun er sem stendur með fimm aðra virkjunarkosti á Þjórsársvæð- inu til skoðunar,“ segir hún og á við Holtavirkjun, Hvammsvirkjun og Urriðafossvirkjun í neðri Þjórsá, Norðlingaölduveitu og stækkun Búrfellsvirkjunar. Síðan megi benda á aðra virkjunarkosti í nýtingar- flokki rammaáætlunarinnar. Ragn- heiður hefur talið afar brýnt að leita allra leiða til að draga úr áhættu á að grípa þurfi til tímabundinna skerð- inga á raforku. Slíkt ástand muni til lengri tíma séð standa atvinnuupp- byggingu og nýfjárfestingum fyrir þrifum. Ragnheiður segir úrbætur í flutn- ingskerfinu nauðsynlegar, til að geta flutt raforku á milli landshluta, eink- um á milli Norður- og Suðurlands. Virkja meira og bæta kerfið  Skerðing á raforku veldur erlendum fjárfestum áhyggjum  Iðnaðarráðherra telur að ráðast þurfi í gerð nýrra virkjana og að styrkja flutningskerfi raforku MSkert raforka veldur »18 „Við Eyjamenn erum hæstu skatt- greiðendur á landinu öllu. Samt er þjónusta ríkisins hér ekki svipur hjá þeirri sjón sem við teljum okkur þurfa á að halda. Þegar verst lætur ríkir einskonar nýlenduhugsun gagn- vart okkur og öðrum sjávarbyggð- um. Sem sagt að það eigi að reka þessi svæði með lágmarkskostnaði og ná af þeim hámarksarði.“ Þetta segir Elliði Vignisson í viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. „Staðan núna er sú að hér í Eyjum fæðast ekki lengur börn af því að heilbrigðisþjónusta er orðin svo tak- mörkuð og sjúk- lingar þurfa í auknum mæli að liggja á sjúkra- húsum á höf- uðborgarsvæðinu og þá jafnvel banaleguna. Í kaldhæðni höfum við stundum sagt að við gerum ein- göngu kröfu um að fá þjónustu til að fæðast og deyja í Vestmannaeyjum en getum vel séð um okkur sjálf þess á milli.“ Fiskveiðistjórnun og skattheimta eru einnig til umræðu í viðtalinu og Elliði segir á að á seinasta ári hafi farið hátt í 1.500 milljónir frá Eyjum í slíka skatta. „Það er erfitt fyrir samfélag eins og okkar sem lifir á sjávarútvegi að þurfa stöðugt að rétt- læta atvinnugrein sína. Íslendingar eiga að bera meiri virðingu fyrir sjáv- arútvegi og þeim sem þar starfa en þeir almennt gera. Umræðan er á alltof neikvæðum nótum og aldrei væri talað um þjónustustörf eða aðr- ar atvinnugreinar eins og talað hefur verið um sjávarútveginn síðustu ár.“ Nýlenduhugsun ríkjandi  Þjónustu við Vestmannaeyjar stórlega ábótavant Elliði Vignisson Hljómsveitin Mezzoforte hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna sem afhent voru í Hörpu í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveit hlýtur þessi verðlaun í 20 ára sögu þeirra. Sveitin hefur starfað í áratugi og hefur borið hróður íslensks djassbræðings víða. Þrjá- tíu ár eru liðin frá því að lagið Garden Party með Mezzoforte komst á topp 20 smáskífulista í Bret- landi. »44-45 Mezzoforte hlaut heiðursverðlaunin Morgunblaðið/Golli  Umboðsmaður Alþingis gerir hvorki athugasemdir við innheimtu á gestagjöldum við Silfru á Þing- völlum né við framkvæmd gjaldtök- unnar. Tvö fyrirtæki, Straumhvörf og Scuba Iceland, kvörtuðu vegna gjaldsins og töldu m.a. að lagastoð skorti fyrir innheimtunni, sem í raun væri skattheimta þar sem sér- greind þjónusta væri ekki veitt gegn greiðslu gjaldsins og uppfyllti því ekki reglur. Þessu hafnar um- boðsmaður og vitnar í lög um þjóð- garðinn á Þingvöllum frá 2004. »6 Gjaldtaka við Silfru er heimil  Kynbótaverkefni á öspum leiddi í ljós að bestu einstaklingarnir uxu um þrjá metra á tæpum fimm árum. Jafnframt var mikil þykknun í stofnvexti en það þýðir meiri viðarmassa, sem er veiga- mikið atriði fyrir þá sem stunda skógrækt. Þá eru vísbendingar um að aspirnar séu þolnari gagn- vart asparryði, sem víða hefur farið illa með aspir síðastliðinn áratug. Margir sem leggja stund á skógrækt hafa þegar falast eftir klónum úr tilrauninni, en verk- efnið er ekki komið á það stig að tímabært sé að hefja dreifingu trjáa. »4 Ofuraspirnar vaxa hraðar Sími: 661-7000 3. HÆÐ Í KRINGLUNNI kaupumgull.is Staðgreiðumallt gull, silfur demanta ogvönduðúr! Sjá bls. 21 L A U G A R D A G U R 1 5. M A R S 2 0 1 4 Stofnað 1913  63. tölublað  102. árgangur 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.