Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Við tökum svefninn alvarlega. Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni, góðu handverki, stöðugum prófunum og vandlega völdum efnum. Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn á meira en 85 ára rannsóknum og þróun. duxiana.com DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950 Gæði og þægindi síðan 1926 D U X® ,D U XI A N A® an d Pa sc al ® ar e re gi st er ed tr ad em ar ks ow ne d by D U X D es ig n A B 20 12 . umhverfisvænt tölvuský en tölvu- búnaðurinn er í íslenskum gagna- verum og í Seattle. Aðspurð hvort margar konur séu í tæknigeiranum, svarar hún því neitandi og bendir á máli sínu til stuðnings hve fáar konur hafi útskrifast úr Háskóla Íslands sem tölvunarfræðingar. Samkvæmt þeim gögnum eru um 19% útskrif- aðra tölvunarfræðinga frá skólan- um konur. Þekkist erlendis Hún segir að verkefni líkt og Konur í tækni þekkist erlendis og að markaðsstjóri Greenqloud, Paula Gould, hafi til dæmis tekið þátt í því starfi í Bandaríkjunum. Hún segir misjafnt hve margir hafi sótt fundina, síðast hafi til að mynda mætt 70-80 á fundinn. „Karlmenn eru að sjálfsögðu vel- komnir. Þeir spyrja oft hvort þeir megi koma enda erum við oft að ræða um skemmtilega hluti,“ segir Ilea. Konur gera sig gild- andi í tölvuheimi  Vilja efla stöðu kvenna í íslenskum tækniiðnaði Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Konur í tækni munu blása til morgunverðarfundar í höfuðstöðv- um CCP á þriðjudaginn. Armina Ilea, framkvæmdastjóri verkefnis- ins Konur í tækni og viðskipta- stjóri hjá nýsköpunarfyrirtækinu Greenqloud, segir í samtali við Morgunblaðið að tilgangur félags- skaparins sé að vekja áhuga á tæknigreinum og nýsköpun og efla stöðu kvenna í íslenskum tækniiðnaði. Hún segist vilja skapa stærra og sterk- ara samfélag kvenna í tækni- og nýsköpunar- geiranum, styrkja tengslanet þeirra og hvetja fleiri konur til að vinna innan geirans. Stofnað í haust Félagið var stofnað síðasta haust og hefur haldið nokkrar samkomur, t.d. í Marel. Á fund- inum á þriðjudaginn verður lögð áhersla á að kynna og fræðast um tölvuleikjagerð, heyra reynslusög- ur kvenna sem vinna í faginu og bjóða upp á almennar umræður. „Það er mikilvægt að skapa gott andrúmsloft þannig að fólk spyrji spurninga og ræði málin,“ segir Ilea. Þrír fyrirlesarar af fimm eru er- lendar konur, og aðspurð hvort það sé venjan að erlendar konur séu með erindi segir hún að þetta verði í fyrsta skiptið. Aftur á móti fari fundirnir alltaf fram á ensku. „Íslendingar eiga ekki í erfiðleik- um með að tala ensku,“ segir hún. Ilea bendir á að CCP sé alþjóð- legt fyrirtæki með fjölda erlenda starfsmenn, og það sé eflaust þess vegna sem svo margir fyrir- lesaranna séu erlendir. GreenQloud Raunar vinnur Ilea líka hjá fjöl- þjóðlegu fyrirtæki, fram kom í Morgunblaðinu í nóvember að starfsmenn GreenQloud séu 30 frá átta löndum. Fyrirtækið rekur Meðal erinda á þriðjudaginn: » Tvær konur segja frá eigin reynslu að vera kona í tækni- geiranum. » Tölur og staðreyndir, konur hjá CCP. » Tölur og staðreyndir, staða kvenna í tölvuleikjum. » Félagið Konur í tækni var stofnað síðasta haust og hefur haldið nokkrar samkomur. Morgunblaðið/Golli Strákar CCP þykir eflaust karllægur vinnustaður, með geimskip á borðum. Armina Ilea Rekstur iðnfyrirtækisins Fokker Technologies, sem Eyrir Invest á 17% hlut í, gekk betur árið 2013 en árið áður en tekjur stóðu í stað. Fokker er um fjórðungur af eigna- safni Eyris, sem er m.a. kjölfestu- fjárfestir í Marel. Hagnaður Fokker Technologies jókst um 6% milli ára og nam 10,9 milljónum evra eða um 1,7 millj- örðum króna. Tekjur lækkuðu um 1% og námu 762 milljónum evra. Fram kemur í tilkynningu að veltan hafi aukist um 25% á árunum 2011 og 2012. Árni Oddur Þórðarson, sem sett- ist í forstjórastól Marels í vetur, er hluthafi í Eyri Invest ásamt föður sínum Þórði Magnússyni, sem er formaður stjórnar fjárfestingar- félagsins, í Landsbankanum og fleirum. Eyrir á auk þess hlut í iðnfyr- irtækinu Stork Technical Services og fjárfestir jafnframt í sprotafyr- irtækjum. Samið um fulla fjármögnun skuldbindinga Eyrir hefur ekki birt ársuppgjör fyrir árið 2013 en árið áður var eigin fjárhlutfallið um 50% og eignir fé- lagsins næstum 400 milljónir evra. Eyrir Invest hefur nýlega náð samkomulagi um fjármögnun við innlenda fjármálastofnun. Sam- komulagið felur í sér fulla fjármögn- un fjárhagslegra skuldbindinga fé- lagsins næstu misseri. Þetta kemur fram í frétt á vef Eyris. Fjárfesting Eyrir Invest á 17% hlut í Fokker Technologies. Rekstur Fokker í eigu Eyris batnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.