Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 35
um þeirra hugheilar samúðar- kveðjur. Sóley S. Bender. Þorgeiri Þórarinssyni kynntist ég fyrst í aðdraganda þingkosn- inga 1991. Hann var einn af þess- um sjálfstæðismönnum, sem treysta mátti til þess að styðja okkur Halldór Blöndal jafndyggi- lega og þeir sögðu okkur umbúða- laust skoðun sína ef þeim mislík- aði. Skömmu eftir að ég settist á þing fóru fram umræður á nætur- fundi, sjálfsagt um bandorm. Mér finnst líklegt að þar hafi verið að finna ákvæði, sem afnam framlög ríkisins til refaveiða. Þorgeir Þórarinsson lá á grenj- um. Það var ekki einungis íþrótt. Bóndanum í Grásíðu þótti vænt um lömbin sín, en þó hreifst hann ekki síður af mófuglinum, sem hélt tónleika sumarlangt á lyng- heiðunum suður og upp af sveit- inni í Kelduhverfi. Morguninn eftir samþykkt lag- anna náði Þorgeir símasambandi við mig. Hann var mjög kurteis að vanda. „Þetta var ekki góður næt- urfundur hjá ykkur. Nú munu refirnir flæða yfir heiðarnar frá friðlandinu við Jökulsárgljúfur og tortíma blessuðum mófuglinum,“ sagði Þorgeir mildilega en ákveð- ið. Mér varð strax ljóst að ég var í vondum málum. Ég hugsaði hratt og mikið. Síð- an sagði ég Þorgeiri að ég gæti ekki annað en borið fulla ábyrgð á lögunum. Því væri ekki um annað að ræða fyrir mig en að ná vopn- um mínum með hækkandi sól. Ég lagði til að um sumarsólstöður vitjuðum við grenja. Ég gat ekki annað fundið en Þorgeir væri vel sáttur við þessar málalyktir. Við mæltum okkur mót 20. júní. Sonur Þorgeirs, Friðgeir á Hraunbrún, slóst í hópinn okkur til halds og trausts. Fyrir utan skotfæri og svefnpoka tók ég með mér harðfisk. Þess utan festi ég kaup á viskípela, sem ég vissi að Þorgeir kynni að meta. Á Hraunbrún komst magáll í nestispakkann. Nú var haldið á heiðina. Það var ekki ský á himni. Þeir feðgar voru vel læsir á sauð- féð, nefndu með nafni ærnar, og deildu svolítið um eina eða tvær. Við litum við á öllum 14 grenjum, sem í heiðinni voru. Í engu þeirra var búið. Þá var klukkan farin að hallast að miðnætti. Við settumst í lyngmóa og tók- um upp nestið. Heiðin ómaði af fuglasöng. Þegar leið að miðnætti sagði Þorgeir: „Hafið hljótt drengir, því nú gerist það.“ Við Friðgeir vissum ekki vel hvað átti að gerast, en það gerðist. Fugla- kórinn þagnaði eins og sprota hefði verið veifað. „Við skulum bíða augnablik,“ hvíslaði Þorgeir kankvís. Og þá hófust hljómleikarnir aft- ur, og innkoman fullkomlega sam- æfð. Auðvitað lá Þorgeir undir grun um að hafa falið sprotann, en hann sór það af sér. Hvað sem því leið var mér fyrirgefið og aldrei framar minnst á framlög til refa- veiða. Allir máttu vel við málalokin una, refir, heiðlóa og hrossagauk- ur, ær og lömb, bændurnir tveir og þingmaðurinn óreyndi. Þorgeir var alla tíð heilsu- hraustur. Þó kvaldi hann stirð- leiki í mjöðminni. Gegn þeirri meinsemd fékk hann sterkar sprautur tvisvar á ári ásamt fyr- irmælum um að taka þær með sex mánaða millibili. Þorgeir geymdi sprauturnar hins vegar, og tók þær báðar í einu, ef tækifæri fékkst til að liggja á grenjum. Þessi kviki og prúði maður las náttúruna eins og opna bók. Hann kenndi mér mikið í náttúrufræð- um og kurteisi. Það þótti öllum vænt um Þorgeir sem honum kynntust. Hann var bæði athug- ull, örlátur og fágaður í allri fram- göngu. Nú þegar þessi aldraða kempa er horfin söknum við hans öll. Heiðin er ekki sú sama og áður. Kórinn hefur misst stjórnanda sinn. Tómas I. Olrich. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 ✝ Gylfi Gunn-arsson fæddist í Reykjavík 6. októ- ber 1939. Hann lést í Sebring á Flórída 19. október 2013 eftir skammvinn veikindi. Gylfi ólst upp í Vestmannaeyjum og voru foreldrar hans Vilborg Sig- urðardóttir, klæð- skeri og saumakona og formað- ur verkalýðsfélagsins Snótar, f. 9. febrúar 1913, d. 13. nóvember 2005, og Gunnar Sigur- mundsson, prentari og prent- smiðjustjóri, f. 23. nóvember 1908, d. 18. júní 1991. Vilborg var fædd í Reykjavík og voru foreldrar hennar Sigurður Kristján Gíslason, f. 23.5. 1884, d. 8.3. 1974, og Ólafía Ragnheið- Sigrún f. 25. mars 1962, leik- kona og deildarstjóri í Kvik- myndaskóla Íslands, búsett í Reykjavík, móðir Bryndís Brynjúlfsdóttir. Sigrún er gift Guðmundi Jóhanni Ólafssyni flugstjóra og eiga þau saman einn son, Tómas Gauta. 2) Hanne Sund, f. 25. maí 1971, hjúkrunarsálfræðingur, búsett í Noregi, móðir Grete Larsen. Sambýlismaður hennar er Jimmy Hunstad. Hanne á tvo syni, Linus og Jonas. Gylfi var kvæntur Debru Marquardt frá Pennsylvaníu, þau skildu. Gylfi fluttist ungur að árum frá Íslandi og lærði og starfaði í Danmörku, Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu sem stýrimaður, ljósmyndari, flugstjóri og þyrlu- flugmaður. Gylfi bjó síðustu ævi- árin á Flórída í Bandaríkjunum. Bálför hans fór fram í Banda- ríkjunum í nóvember og var ask- an jarðsett í duftgarðinum í Fossvogi í kyrrþey að ósk hins látna. ur Sigurþórsdóttir, f. 28.11. 1897, d. 19.11. 1977. Gunn- ar var fæddur í Stapadal í Arn- arfirði á Vest- fjörðum. Faðir hans var Sigmund- ur Sigurðsson læknir og móðir Guðný Guðmunds- dóttir. Gylfi á þrjú yngri systkini, þau eru: Gerður f. 1942, mynd- höggvari og myndlistarkona, búsett í Garðabæ, gift Grétari Br. Kristjánssyni lögfræðingi, Gauti, f. 1945, vélvirki, giftur Jacqueline Gunnarsson, búsett- ur í Almoradi á Spáni, og Sig- urður Ólafur, f. 1950, flugvirki og flugvélstjóri, búsettur í Kuala Lumpur. Gylfi eignaðist tvær dætur: 1) Gylfi Gunnarsson er fallinn frá eftir skammvinn veikindi 74 ára að aldri. Gylfa var margt til lista lagt. Hann var hljóðfæra- leikari, lærði til prentara, vann sem ljósmyndari í Kaupmanna- höfn við Berlingske Tidende, öðlaðist skipstjóra- og stýri- mannsréttindi í Danmörku og var stýrimaður á dönskum og sænskum skipum til margra ára. Hann lærði flug í Oklahoma og stofnaði flugskóla í Allen- town, Pennsylvaníu og starfaði sem þyrluflugmaður og flug- stjóri seinni hluta ævi sinnar í Houston Texas, Mexíkóflóa og í Sádi-Arabíu. Gylfi lenti ungur að árum í sjávarháska. Þegar hann sigldi á sænska skemmtiferðaskipinu Kungsholm féll hann fyrir borð í Mexíkóflóa um það bil 60 míl- um frá Acapulco. Hann og starfsfélagi hans stóðu við skipshandriðið og félagi hans féll frá borði. Gylfi reyndi að grípa í hann en hann var of þungur og dróst Gylfi með í fallinu. Þeir félagar héldu sér á floti á opnu hafi á hákarlasvæði í um það bil 24 tíma og áhöfnin hafði ekki hugmynd um afdrif þeirra fyrr en löngu seinna. Aldraðir sjómenn á smáskektu frá Mexíkó fundu þá loks fyrir til- viljun um sólarhring seinna eft- ir að þeir höfðu velkst um í sjónum og barist fyrir lífi sínu. Þeir félagar dvöldu í 12 daga á sjúkrahúsi í Mexíkó og fóru þaðan til New York og aftur um borð í Kungsholm þar sem höfðinglega var tekið á móti þeim, þeir heiðraðir af áhöfn- inni og lífgjöfinni fagnað. Gylfi Gunnarsson var sterk- ur karakter, heimsborgari og ævintýramaður sem fylgdi draumum sínum. Hann sigldi um heimsins höf og flaug í mörgum heimsálfum. Hann var ljúfur drengur og einfari sem fór sínar eigin leiðir. Hann bjó síðustu æviárin í Flórída og ferðaðist margsinnis á Harley Davidson-mótorhjóli sínu þvert og endilangt um Bandaríkin og naut frelsisins. Blessuð sé minning Gylfa Gunnarssonar. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýjasundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá, loforð um endurfundi. Góða nótt, góða nótt, gamanið líður fljótt, brosin þín bíða mín, er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólskin og sumarfrið, syngjandi fugla og lækjarnið. Allt er hljótt, allt er hljótt, ástin mín, góða nótt. (Árni úr Eyjum/Ási í Bæ) Hvíl í friði Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Gylfadóttir, Hanne Sundt, Gerður Gunn- arsdóttir, Gauti Gunn- arsson, Sigurður Ólafur Gunnarsson og fjölskyldur. Gylfi Gunnarsson Það var mér mikið áfall að frétta af andláti þínu. Í kjölfarið fór ég að rifja upp all- ar góðu stundirnar sem við höf- um átt saman. Við höfum geng- ið í gegnum súrt og sætt saman og stutt hvor aðra í gegnum þær stundir. Stuðningur þinn hefur reynst mér gríðarlega vel á erfiðum tímum í mínu lífi og hefur það sýnt hversu góð vin- kona þú varst. Þú varst alltaf tilbúin að ráðleggja mér enda úr þvílíkum viskubrunni að taka en hugur þinn var mjög víðsýnn og það var eins og þú hefðir svör við öllu. Ekki spillti fyrir að þú varst læknir og var mjög þægilegt að leita ráða hjá þér við ýmsum heilsukvillum en ég var oft að monta mig við vini og fjölskyldu að eiga vinkonu sem lækni sem ég gæti leitað Sigurveig Þórarinsdóttir ✝ Sigurveig Þór-arinsdóttir fæddist 29. október 1978. Hún lést 5. mars 2014. Útför Sigurveigar fór fram 14. mars 2014. til hvenær sem er. Ég sá þig fyrir mér eftir svona 10 ár sem einn fær- asta lækni Íslands og er ég ekki í neinum vafa um að það hefði ræst hefðir þú ekki kvatt þennan heim svo snemma. Núna get ég aldrei spurt þig ráða aftur né hlegið með þér framar, það var víst að kímni- gáfan var í fremsta flokki og voru mörg hlátursköst tekin með þér. Spilakvöld okkar vin- kvennanna eru mjög minnis- stæð þar sem þú lagðir þig alla fram í að vinna hvert einasta spil. Þegar ég horfi á myndir af þér fyllist ég mikilli sorg að svo gáfuð og falleg manneskja þurfti að kveðja þennan heim svo snemma og mörgum spurn- ingum er ósvarað. Þú varst ein- stök manneskja sem var alltaf tilbúin að hjálpa öðrum og ráð- leggingar þínar voru oft mikil huggun. Þú varst gædd svo miklum hæfileikum og þrautseigju en öllu sem þú tókst þér fyrir hendur var skilað með full- komnum árangri. Ég vona að barnið sem ég ber undir belti verði eins einlægt, gáfað og yndislega gott og þú varst. Ég trúi því að þú sért komin á betri stað og búin að öðlast frið. Ég hugsa mikið til þín og loka stundum augunum og ímynda mér að þú sért enn meðal okkar með þína þægilegu nærveru. Þú munt alltaf lifa í hjarta mínu, mun aldrei gleyma þér, kæra vinkona. Elsku Þór- arinn, María, Sigrún og Loftur, hugur minn og samúð er með ykkur öllum í dag. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson) Helena Ómarsdóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir ✝ Faðir okkar og bróðir, GYLFI GUNNARSSON þyrluflugmaður, lést 19. október síðastliðinn í Sebring á Florida eftir skammvinn veikindi. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Gylfadóttir, Hanne Sundt, Gerður Gunnarsdóttir, Gauti Gunnarsson, Sigurður Ólafur Gunnarsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær systir okkar og föðursystir, STEINUNN JÓNSDÓTTIR, Melgerði 39, Kópavogi, áður til heimilis Granaskjóli 3, Reykjavík, lést á Krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 11. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. mars kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarsjóð Steinars Mána Guðmundssonar, kt.: 640811-0210. Reikn. 0537-14-045600. Guðmundur Kjalar Jónsson, Guðmundur Ingvar Jónsson, Guðmundur Örn Ingvarsson, Lilja Kjalarsdóttir, Íris Kjalarsdóttir, Guðmundur Gíslason og aðrir aðstandendur. ✝ Yndislegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi, sonur, tengdasonur, bróðir, mágur og vinur, ÓMAR HEIÐAR HALLDÓRSSON húsasmiður, Nauthólum 14, Selfossi, andaðist í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum í Reykjavík þriðjudaginn 11. mars. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 18. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á menntasjóð yngsta sonar Ómars og Guðrúnar, kt. 200498-2249. Reiknnr. 325-18-650014. Guðrún Sigríður Ingvarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu samúð, hlýhug og kærleik við andlát og útför okkar elskulegu KRISTÍNAR KÁRADÓTTUR, Naustabryggju 57. Sérstakar þakkir sendum við öllu því góða fólki sem annaðist hana í veikindum hennar. Albert Sigtryggsson, Sigurður H. Hlöðversson,Þorbjörg Sigurðardóttir, Hlín Hlöðversdóttir, Guðmundur Jón Tómasson, Sigtryggur Albertsson, Ragnheiður Sóley Stefánsdóttir, Arnar Albertsson, Inga Björg Stefánsdóttir, Atli Þór Albertsson, Anna Ósk Ólafsdóttir, Aðalheiður Ísleifsdóttir og barnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR JÓHANN HALLVARÐSSON tónlistarkennari og fararstjóri, Karfavogi 34, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 11. mars. Útför fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 21. mars kl. 13.00. Anna Margrét Jónsdóttir, Lilja Dögg Guðmundsdóttir, Elvar Már Ólafsson, Hallvarður Jón Guðmundsson, Elfa Rún Guðmundsdóttir, Vala Baldursdóttir, Helge Haahr og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.