Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Kosningarnar til sveitarstjórna í vor, framhald að- ildarviðræðna við ESB, breyt- ingar á fram- haldsskólastig- inu og olíuleit verða efst á baugi á flokks- stjórnarfundi Samfylkingarinnar, sem fram fer í dag á Hótel Natura. Dagskráin hefst kl. 9 með fundi sveitarstjórn- arráðs flokksins og formanna aðild- arfélaga Samfylkingarinnar þar sem rætt verður um undirbúning kosningabaráttunnar fyrir sveit- arstjórnarkosningar. Kl. 10.45 munu flokksfélagar ræða málefni sem eru efst á baugi í þremur mál- stofum þar sem fjalla á um olíuríkið Ísland, framhald aðildarviðræðna við ESB og framtíð framhaldsskóla- stigsins. Árni Páll Árnason, for- maður Samfylkingarinnar, flytur setningarræðu fundarins kl. 13. Að henni lokinni munu sveitarstjórnar- fulltrúar Samfylkingarinnar fjalla um sín hjartans mál, eins og segir í frétt á vef flokksins og að því búnu verða almennar stjórnmála- umræður. Ræða kosn- ingarnar og ESB-málið  Flokksstjórn Samfylkingar fundar Árni Páll Árnason Ekki varð vart við aukningu í fjölda smásilungs í rannsóknarveiðum í Mývatni haustið 2013, að sögn Veiði- málastofnunar. Lítils háttar aukning var í fjölda stærri bleikju frá fyrra ári. Holdastuðull bleikjunnar var yf- ir meðallagi og svipaður eða litlu lægri en 2012. Hlutfall rykmýs, langhalaflóar og kornátu hafði hækkað í fæðu bleikj- unnar. Hlutfall hornsílis hefur lækk- að undanfarin tvö ár. Svo virðist sem meira framboð sé í vatninu af fæðu sem hentar bleikjunni. Heildar- veiðin í Mývatni í fyrra var aðeins 2.489 silungar, samkvæmt veiði- skýrslum. Þar af voru 565 bleikjur og 1.924 urriðar. Áætlað var út frá afla í vetrarveiði að stærð bleikju í upphafi veiðitímans hefði verið 1.058 bleikjur. „Vegna þess hve stofnstærð bleikju er orðin lítil hafa verið settar miklar veiðitakmarkanir í Mývatni. Með minni sókn standa vonir til að hrygningarstofn bleikju geti stækk- að. Aukin hrygning leiði síðan til aukinnar nýliðunar smásilungs í kjölfarið sem hefur verið lítil síðasta áratug. Lagt er til að áfram verði mjög takmörkuð sókn í bleikju í Mý- vatni,“ segir í frétt á vef Veiðimála- stofnunar. Urriðaafli hefur minnkað frá fyrra ári, miðað við fyrirliggjandi gögn. Veiðimálastofnun segir að gefa þurfi þessari minnkun gaum og hafa í huga að um lítinn stofn sé að ræða. gudni@mbl.is Barningur hjá bleikjunni Morgunblaðið/Einar Falur Bleikja Þessi fimm punda bleikja veiddist í Hlíðarvatni í Selvogi.  Veiðitakmarkanir í Mývatni vegna lítillar stofnstærðar Heiðrún Jónsdóttir, formaður Harpa Ólafsdóttir, varaformaður Elínbjörg Magnúsdóttir Hjörtur Gíslason Kolbeinn Gunnarsson Konráð Alfreðsson Þorsteinn Víglundsson Þórunn Liv Kvaran Framkvæmdastjóri sjóðsins er Árni Guðmundsson Gildi - lífeyrissjóður Guðrúnartúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is lífeyrissjóður Efnahagsreikningur: 31.12.2013 31.12.2012 Verðbréf með breytilegum tekjum 130.262 111.199 Verðbréf með föstum tekjum 168.855 156.350 Veðskuldabréf 15.271 15.680 Bankainnstæður 19.157 18.978 Kröfur 1.830 1.135 Fasteign, rekstrarfjármunir og aðrar eignir 329 241 Skuldir - 1.380 - 1.324 Hrein eign til greiðslu lífeyris 334.324 302.259 Breytingar á hreinni eign: 2013 2012 Iðgjöld 13.624 12.548 Lífeyrir - 10.211 - 9.133 Framlag ríkisins vegna örorku 985 925 Fjárfestingartekjur 28.256 33.087 Fjárfestingargjöld - 223 - 208 Rekstrarkostnaður - 415 - 385 Aðrar tekjur 49 45 Hækkun á hreinni eign á árinu 32.065 36.879 Hrein eign frá fyrra ári 302.259 265.380 Hrein eign til greiðslu lífeyris 334.324 302.259 Kennitölur: 2013 2012 Hrein nafnávöxtun 9,1% 12,2% Raunávöxtun 5,5% 7,4% Hrein raunávöxtun 5,3% 7,3% Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 2,9% - 4,2% Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 2,5% 3,4% Eign umfram heildarskuldbindingar (%) - 3,5% - 4,4% Fjöldi virkra sjóðfélaga 26.772 26.073 Fjöldi launagreiðenda 4.330 4.168 Fjöldi lífeyrisþega 17.110 16.328 (Allar fjárhæðir í milljónum króna) Stjórn sjóðsins: Ársfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl n.k. kl. 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar. Ársfundur 2014 Afkoma Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins á árinu 2013 var 9,1% sem jafngildir 5,3% hreinni raunávöxtun. Ávöxtun innlendra hlutabréfa var 18,8% og erlend hlutabréf hækkuðu um 9,3% í krónum. Erlend hlutabréf sjóðsins samanstanda af skráðum verðbréfum og óskráðum fjárfestingasjóðum. Til samanburðar hækkaði heimsvísitala hlutabréfa um 13,9%. Raunávöxtun skuldabréfa var 4,4%. Hrein eign samtryggingardeildar í árslok 2013 var 331,4 milljarðar króna og hækkaði um 31,9 milljarða frá fyrra ári. Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt eru eignir sjóðsins 3,5% lægri en heildarskuldbindingar í árslok 2013. Eignir sjóðsins skiptast þannig: Innlend ríkistryggð skuldabréf eru 42,7%, erlend hlutabréf 24,9%, innlend hlutabréf 11,9%, veðskuldabréf 5%, önnur skuldabréf 9%, innlán 5,6% og fasteignasjóðir 1%. Séreign Hrein nafnávöxtun séreignardeildar sjóðsins var þannig: Framtíðarsýn I skilaði 8,9% ávöxtun, Framtíðarsýn II skilaði 6,7% og Framtíðarsýn III, sem er verðtryggður innlánsreikningur, skilaði 5,2%. Hrein raunávöxtun var á sama tíma 5%, 2,9% og 1,5%. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild námu samtals 147 milljónum króna á árinu. Hrein eign séreignardeildar í árslok 2013 var 2.943 m.kr. og hækkaði um 179 m.kr. frá fyrra ári. Raunávöxtun 5,5% Starfsemi á árinu 2013 Deloitte og lög- fræðiaðstoð Orators bjóða í dag upp á ókeypis aðstoð við gerð skatt- framtala í Lög- bergi, Háskóla Íslands, 3. hæð frá klukkan 13 til 17. Um er að ræða árvisst samstarfs- verkefni lögfræðiaðstoðar Orators og Deloitte þar sem almenningi býðst ókeypis ráðgjöf hvernig rétt skal standa að framtalsskilum á skatti. Meistaranemar í lögfræði sem hafa lokið námi í skattarétti taka á móti almenningi auk þess sem sérfræðingar Deloitte verða á staðnum. Aðstoða við skattframtal í dag Á Hrafnaþingi Náttúrufræðistofn- unar Íslands, miðvikudaginn 19. mars klukkan 15.15, mun Einar Þorleifsson náttúrufræðingur flytja erindi um landnám fugla á Íslandi. Fram kemur á vef Náttúru- fræðistofnunar að á síðustu öld fjölgaði fuglategundum um 21, en jafnframt hættu tvær gamalgrónar tegundir varpi og sú þriðja dó út. Hrafnaþing er haldið aí Urriða- holtsstræti 6-8 í Garðabæ. Fjalla um landnám fugla á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.