Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 frá 295 PU flex hanskar frá 2.995 Bíla- og glugga- þvottakústar frá 395 Fötur og balar frá 1.995 Slöngur 15, 20, 25, 50m frá 4.995 Bílabónvél Fjölslípari m/fylgihluti 8.995 6.995 Verðmætaskápur frá 1.495 Startkaplar 14.995 Vandað topplyklasett 92 stk. Verkfæri í miklu úrvali Súper helgar- tilboð Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú stendur þig ekkert endilega betur þótt þú undirbúir þig rosalega mikið. Varastu að eyða of miklum peningum í blessuð börnin eða elskuna þína. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert aldrei glaðari en þegar þú gefur þínum nánustu. Mistök þín í ástalífinu munu verða fyrirgefin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Einhver vandkvæði koma upp á vinnustað þínum. Ef menn geta ekki tekið þér eins og þú ert er það þeirra vandamál. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er hættulegt að trúa öllu sem þú heyrir og ekki er mælt með að eyða öllu sem þú átt. Aðeins nýjar staðreyndir eiga að koma þér á aðra skoðun. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er sama með hverjum þú ert; þú laðar fram kröftugri hliðar fólks og kímnigáf- una líka. Á næstu þremur dögum muntu hins vegar vinna vel úr þeim flækjum sem upp koma. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gefðu einhverjum sem á það ekki skil- ið annað tækifæri. Snöggt yfirlit yfir mistök og velgengni ársins leiðir í ljós einfalt, skýrt, augljóst og kraftmikið markmið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það stefnir í átakalítinn dag hjá þér en það þýðir ekki að þú getir slegið slöku við. Komdu jafnvægi á þetta svo þú getir komið einhverju í verk. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vanalega ert það þú sem skipu- leggur óvæntar uppákomur fyrir aðra. Taktu ekki fleiri undir þinn verndarvæng fyrr en þú ert komin/n með hreint borð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er góður eiginleiki að geta snúið hinum margvíslegustu aðstæðum sér í hag. Þú einbeitir þér að því að festa ráð þitt og búa þér tryggan grundvöll í lífinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Makar og vinir eru óútreiknanlegir í dag. Hlustaðu á innsæi þitt en gleymdu því ekki að gjafmildi á einnig að snúa að þér. Nei- kvæðnin skapast af því að veita þér ekki nóg. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Skyndilega hefurðu þörf fyrir að tjá þig, og vilt helst ræða allar tilfinningar sem fara um hjartað. Taktu ekki fleiri hluti að þér en þú ræður við og mundu að vera ekki gagnrýnin/n á börn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þýðingarmiklir einstaklingar leggja sig fram við að mynda sambönd. Reyndu ekki að slá ryki í augu fólks eða koma þínum verkum yfir á aðra. Síðasta vísnagáta var eftir PálJónasson í Hlíð: Hann er til að herða ró, hlutur jakans upp úr sjó, myndast oft í sinu sá, sumra manna höku á. Sigtryggur Jónsson leysir gátuna svo: Toppur herðir tyllta ró, toppur jaka er upp úr sjó, topp af sinu hólar hafa, hökutoppinn af má skafa. Og er rétt hjá Sigtryggi að ég misritaði „snjó“ fyrir „sjó“ í gát- unni fyrir viku. Sigtryggur sendi mér vísnagátur með, sem eru vel þegnar, en laum- aði einni limru með: Mælti ‘ún við manninn sinn fríða: „Þér mikið mig langar að – stríða; láttu eftir mér að leika með þér og leggjast á gólfið og – skríða.“ Hér er ein af gátum Sigtryggs og bíður lausnin að venju næsta laug- ardags: Gjarna er í garða sett, göldrum tengd og níði. Vala henni veldur létt, veiðimanns er prýði. Ármann Þorgrímsson kallar þessar vísur „Barnalærdóm“ og skýtur inn í að lítið breytist. Í biblíunni barn ég las bein var drottins stefna aldrei leyfa öðrum þras alls sem mistókst hefna. Kristur þegar kom og fór að kenna nýja siði var á höndum vandi stór hann var í öðru liði. Ógnaði hann allri trú á eldri fyrirmyndir flestum kenning fjarlæg sú að fyrirgefa syndir. Á fyrri stefnu ennþá er, á mig læt ei ganga þeir sem eru á móti mér munu fá að hanga. Þetta kallar á vísuna góðu úr Raupararímu, sem mér finnst alltaf gaman að rifja upp og lærði svona: Biblían er sem bögglað roð fyrir brjósti mínu, gleypti ég hana alla í einu ekki kom að gagni neinu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af vísnagátum og heilagri ritningu Í klípu „ÞETTA TÓK SKJÓTT AF. HAFÐIRÐU EINU SINNI FYRIR ÞVÍ AÐ LESA MIÐANN FRÁ HONUM?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SVO ÞETTA ER BESTA MYND SEM SYSTIR ÞÍN HEFUR SÉÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að dreyma hann dreyma þig. ÞAÐ ER AUGLJÓST AÐ PEPPRÆÐAN HAFÐI EKKI TIL- ÆTLUÐ ÁHRIF Á MANNSKAPINN! EINN GLEÐI- BORGARA, TAKK! OG EITTHVAÐ FYRIR FEITU KONUNA Í PELSINUM?V íkverji er frekar slappur neyt- andi því hann kvartar sjaldnast þegar hann hefur keypt köttinn í sekknum. Þetta einskorðast helst við matvæli eins og t.d. skemmt grænmeti. Tekið skal fram að þessar hugleiðingar beinast alfarið að Vík- verja sjálfum og viðbrögðum hans við aðstæðum. Þannig er mál með vexti að Vík- verji keypti súrmjólk um daginn, venjulega súrmjólk í grænni fernu. Tekið skal fram að ekki var um að ræða einhvers konar „létta“ útgáfu á því. Ekkert athugavert við slík kaup enda fátt betra en súrmjólk og múslí í morgunsárið. Eitthvað var áferðin á súrmjólkinni einkennileg þegar henni var hellt úr fernunni, þá var hún lapþunn eins og mjólk og líktist ekkert þykkri súrmjólk þar sem rús- ínurnar síga vart til botns þegar þeim er rétt tyllt ofan á hana. En fyrst Víkverji var búinn að hella henni yfir dýrindismúslíið skyldi það smakkað að minnsta kosti. En viti menn, gutlið smakk- aðist alveg eins og súrmjólk þrátt fyrir að áferðin væri lapþunn eins og mjólk. Þetta var hreint ekki sem verst þegar til kastanna kom. Múslí- ið var borðað og fernan kláruð upp til agna. x x x En vissulega hefði verið réttast aðskila umræddri súrmjólk, fá endurgreitt eða aðra vöru sem væri í lagi. En það sem fer í gegnum koll- inn á Víkverja er að hann hreinlega nennir ekki að leggja þetta tilstand á sig. Fullkomin leti í alla staði sem Víkverji gerir sér grein fyrir. Það sem meira er að auðvitað hefði um- rætt fyrirtæki tekið athugasemd- unum fagnandi, því það líkt og aðrir vill fá að vita hvernig vörunar reyn- ast. x x x Víkverji hefur nefnilega heyrt út-undan sér að Íslendingar séu upp til hópa lélegir neytendur og láti alltof sjaldan í sér heyra ef miðað er við neytendur í öðrum löndum. Prútt er viðskiptahættir sem Íslendingar mættu beita oftar en gera ekki. Um helgina verður haldið í Kolaportið og þetta reynt til þrautar. Í það minnsta gerð heiðarleg tilraun … víkverji@mbl.is Víkverji Engill Drottins setur vörð kringum þá sem óttast hann og frelsar þá. (Sálmarnir 34:8)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.