Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 37
MESSUR 37á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur er sr. Svavar Al- freð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyr- arkirkju syngja. Organisti er Petra Björk Pálsdóttir. Guðmundur Ómar Guðmundsson predikar og segir frá starfi Gídeonfélagsins. Samskot til starfs félagsins í guðsþjónustunni. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller, sr. Bolli Pétur Bollason og Ásta Magn- úsdóttir. Sunnudagaskóli Grenivíkur- og Svalbarðskirkju koma í heimsókn. AKURINN | Samkoma kl. 14 í Núpal- ind 1, Kópavogi. Ræðumaður er Jógv- an Purkhús. Söngur, bæn og biblíu- fræðsla. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni annast samverustund sunnudaga- skólans. Þorgils Hlynur Þorbergsson cand. theol. prédikar. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur þjónar fyrir alt- ari. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. Sjá askirkja.is. BESSASTAÐAKIRKJA | Kvöld- messa kl. 20. Lærisveinar HANS spila undir sönginn undir stjórn Bjarts Loga organista. Margrét djákni og sr. Hans Guðberg þjóna fyrir altari. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Helga Björk, Jón Örn og Guðmundur Jens hafa umsjón með stundinni. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússson. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Steinunnar Leifs- dóttur. Kaffi og djús í safnaðarheimili á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Fjölbreytt tónlist og fræðandi starf fyrir börnin. Jónas Þórir og Gunnar Óskarsson leika á hljóðfæri. Bára Elí- asdóttir og Daníel Gautason leiða samveruna ásamt sóknarpresti. For- eldrar og afar og ömmur hvött til þátt- töku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Kór Bústaðakirkju leiða sönginn. Organisti Jónas Þórir. Messuþjónar aðstoða. Heitt á könn- unni eftir messu. Prestur sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti Sól- veig Sigríður Einarsdóttir. Félagar úr Samkór Kópavogs leiða safn- aðarsöng. Helgistund kl. 15. Hugleið- ing, vitnisburðir og fyrirbænir. Tónlist: Tríó Gunnars Böðvarssonar. Hugleið- ing, Sveinn Alfreðsson. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Fermingarstúlkan Veronika Sesselja Lárusdóttir les ritning- arlestur ásamt föður sínum Lárusi Val- garðssyni. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur undir stjórn Kára Þormar dó- morganista. Barnastarfið á kirkjuloft- inu á sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns. Æðruleysismessa kl. 20, séra Karl Matthíasson prédik- ar, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og séra Bryndís Valbjarnardóttir þjóna. Ást- valdur Traustason leikur á flygilinn. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 11. Mikill söngur og skemmti- leg dagskrá. Messa kl. 14. Kór kirkj- unnar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Torvald Gjerde. Sr. Jó- hanna Sigmarsdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjóna. Eftir messu er boðið upp á kaffihressingu. Guðs- þjónusta kl. 15 á HSA Egilsstöðum. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir þjónar. Kór kirkjunnar syngur og organisti er Tor- vald Gjerde. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Kvöldvaka með fermingarbörnum og foreldrum kl. 20. Þetta er lokasamveran í fermingar- starfi vetrarins. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Að lokinni kvöld- vöku bjóða prestarnir, Einar og Sigríð- ur Kristín, fermingarbörnum og fjöl- skyldum þeirra upp á heitt súkkulaði í safnaðarheimilinu. FRÍKIRKJAN Kefas | Í dag verður sunnudagaskóli kl. 11 þar sem verður góð fræðsla, mikill söngur, brúðuleik- hús o.fl. Hressing í lok stundar. Kl. 13.30 verður almenn samkoma. Tón- listarhópur kirkjunnar leiðir lofgjörð, við heyrum frá hjónum sem eru ný- komin heim frá Ísrael og í lok stundar verður kaffi og samfélag. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur og Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur leiða stundina. Fermingarbörn taka þátt. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykja- vík leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Aðstandendur fermingarbarna eru hvattir til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni. FÆREYSKA sjómannaheimilið | Föroysk guðstænasta verður í Grens- áskirkju kl. 17. Sr. Ann Dahl Hansen prestur úr Föroyum prætikar og stjórn- ar guðstænastuni. Aftaná verður drek- kamuður á Sjómansheiminum Örkini. Öll eru hjartaliga vælkomin og bjóði endiliga öðrum við. Færeysk guðs- þjónusta í Grensáskirkju kl. 17. Sr. Ann Dahl Hansen frá Færeyjum pre- dikar og leiðir stundina. Kaffi og sam- félag á eftir í Sjómannaheimilinu Örk- inni. Allir hjartanlega velkomnir, takið með ykkur gesti. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Sunnudagskólinn kl. 11, sameiginlegt upphaf í messu. Brúðuleikhús, söngur og fjör. Kvöld- guðsþjónusta kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Krossbandið leiðir söng. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Guðrún Karls Helgu- dóttir þjónar fyrir altari. Eva Björk Valdimarsdóttir guðfræðingur prédik- ar. Stúlknakór Reykjavíkur í Graf- arvogskirkju syngur. Stjórnandi er Margrét Pálmadóttir. Organisti er Há- kon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11 á neðri hæð kirkjunnar. Prestur séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undir- leikari: Stefán Birkisson. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergs- son. Umsjón barnastarfs Inga Harð- ardóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Lof- gjörðarguðsþjónusta kl. 11. Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn. Sr. Halldór Reynisson þjónar. Sunnudagaskóli kl. 13. HJÚKRUNARHEIMILIÐ EIR | Guðs- þjónusta kl. 15.30. Prestur séra Vig- fús Þór Árnason. Þorvaldur Hall- dórsson sér um söng og tónlist og spilar frá kl. 15. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnudagaskóli kl. 11. Sögð verður sagan um „Týnda sauðinn“, Rebbi ref- ur og Gulla gæs koma í heimsókn. Við dönsum Tófudansinn, syngjum og gleðjumst. Fáum okkur svo kex og djús og litum fallegar myndir. Helga Gunnarsdóttir kennari leiðir stundina. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11. Ester Karin Jacob- sen prédikar. Kaffi og samfélag eftir samkomuna. Samkoma á ensku kl. 14 hjá Alþjóðakirkjunni. English speaking service. Kvöldsamkoma kl. 18 með ljúfri lofgjörð og hagnýtri pré- dikun. Helgi Guðnason prédikar. KIRKJA heyrnarlausra | Messa kl. 14 í Grensáskirkju. Táknmálskórinn leiðir söng. Prestur sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir. Kaffi eftir messu. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur und- ir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkj- unnar. Sunnudagaskóli hefst í kirkju en heldur síðan í safnaðarheimilið Borgir. Umsjón með sunnudagaskól- anum hafa Þóra Marteinsdóttir og Sól- veig Anna Aradóttir. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju kl. 14. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar og ræðu- efni: Uppgjör við okkur og Guð. Stef- anía Steinsdóttir guðfræðinemi segir frá trú sinni. Laufey Sigurðardóttir leikur á fiðlu og Anna Sigríður Helga- dóttir syngur einsöng. Aðalheiður Þor- steinsdóttir stjórnar söng með kór Kvennakirkjunnar. Kaffi á eftir í safn- aðarheimilinu. LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu- dagaskóli í Lindakirkju og Boðaþingi kl. 11. Gospel tónleikamessa kl. 20 í Lindakirkju. Kór Lindakirkju ásamt stjórnanda sínum og undirleikara, Óskari Einarssyni. Einsöngvarar eru úr hópi kórfélaga. Prestar Lindakirkju þjóna. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup prédikar. MIÐDALSKIRKJA í Laugardal | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Egill Hall- grímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Söngkór Miðdalskirkju syngur. Aðalsafnaðarfundur verður strax að messu lokinni. Mosfellskirkja í Grímsnesi | Föstu- messa verður miðvikudagskvöld 19. mars kl. 20.30. Sr. Kristján Valur Ing- ólfsson Skálholtsbiskup og sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safn- aðarsöng. Organisti Steingrímur Þór- hallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu. SELFOSSKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Prestur sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og organisti Jörg Sondermann. Súpa og brauð á eftir. Munið vortónleika Barna- og ung- lingakórs Selfosskirkju laugardaginn 15. mars kl. 15. Stjórnandi: Edit Molnár. Söngleikjaþema. Sjáumst í kirkjunni. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs- þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Sigmundur Ernir Rúnarsson skáld les ljóð. Fé- lagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða almennan safnaðaðarsöng. Kaffiveit- ingar. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sókn- arprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Orð dagsins: Kanverska konan. (Matt. 15) Morgunblaðið/Eggert Útskálakirkja Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Álftahólar 8, 204-9115, Reykjavík, þingl. eig. Sirrey ehf, gerðar- beiðandiTollstjóri, fimmtudaginn 20. mars 2014 kl. 10:30. Gyðufell 8, 205-2466, Reykjavík, þingl. eig.Tuan Xuan Nguyen, gerðarbeiðandi Gyðu-, Iðu- og Fannarfell, húsfél., fimmtudaginn 20. mars 2014 kl. 10:00. Markholt 17, 208-3887, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hilmar Bergmann, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn 20. mars 2014 kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 14. mars 2014. tómata, gúrkur og ber. Ég man alltaf eftir niðursoðnu tómötun- um hennar og salatblöðunum sem hún hellti rjóma yfir og sykraði, með sunnudagssteik- inni. Dunna var ein þessara manneskja sem var með svo- nefnda græna fingur, en garð- urinn hennar var einstakur, hvað varðar fegurð og fjölda blómategunda og trjáa. Það voru ófáir dagarnir sem við Gugga og börnin okkar nutum í garðinum, bæði að hjálpa til við blómabeð- in, slá gras eða taka upp kart- öflur. Þau hjónin Dunna og Héð- inn ræktuðu alla tíð er þau bjuggu á Aðalstrætinu, eða Grá- steini eins og húsið var kallað, kartöflur og aðra rótarávexti. Og oft stalst maður upp í garð á haustin og hnuplaði einni og einni gulrót úr beði eða stakk upp í sig einu og einu jarðarberi úr jarðarberjakassanum. Já, Dunna var mér sem önnur móðir og mun ég sakna hennar sárt. En Drottinn gefur og Drottinn tekur. Nú er Dunna aftur með Héðni sínum í ríki Drottins og ræktar þar væntanlega blóm- skrúð og tré. Ég vil þakka fyrir öll þessi góðu kynni og Guð geymi þig, elsku Dunna og hvíl í friði. Börnum og öðrum aðstand- endum votta ég mína dýpstu samúð. Þinn tengdasonur, Hilmar Pálsson. Minningar um ömmu Dunnu. Elskuleg amma okkar hefur kvatt þennan heim og er komin til afa okkar, en skilur eftir sig margar ljúfar minningar. Við höfðum þau forréttindi að geta umgengist þau þegar við vorum að alast upp. Aðalstræti 23 var eins og okkar annað heimili. Þessar minningar munu lifa áfram í hjörtum okkar systkin- anna. Við munum þegar við systkinin komum eftir skóla/ leikskóla til þeirra, ætíð var tek- ið vel á móti okkur í Aðalstræti, við horfðum á Jóladagatalið frá 1992 um Séra Jón (Tveir á báti) sem Gísli Halldórsson lék svona eftirminnilega. Þetta gátum við horft á allan ársins hring þar sem þessi þáttaröð var til á spólu. Amma Dunna sat ekki auðum höndum þegar við vorum á bæ, allaf var til sjónvarpskaka eða klattar sem við fengum að gæða okkur á, ásamt sódastrím að drekka. Og að ógleymdum ís- blómunum sem voru alltaf til í kistunni. Garðyrkja var þeirra ástríða og sást það á þeirra stóra og fallega garði. Fengum við þá systkinin að leika okkur þar og hjálpa til við að setja niður og taka upp gulrætur og kartöflur sem voru ræktaðar þar. Við þökkum fyrir þær góðu og ljúfu minningar sem við eigum um þig, allt sem þú gafst okkur og allt sem þú kenndir okkur. Hvíl í friði. Þín barnabörn, Kolbrún Helga, Stefán Hrafn og Arnar Kári Bjarkabörn. Í dag kveðjum við fjölskyldan hana ömmu Dunnu sem var okk- ur svo kær. Minning hennar mun lifa í hjörtum okkar sem á heim- ilinu enda margs að minnast og margir hlutir sem munu minna okkur á hana. Margt handverkið eftir hana hefur komið upp úr pökkum hjá stórum og smáum í gegnum árin. Við eigum öll okkar minning- ar um góðu ömmu Dunnu. Palli minnist góðu stundanna með henni og afa í Aðalstrætinu á Þingeyri, þar sem margt var brallað og alltaf gott að koma. Elísa minnist sterkrar konu sem var ættfróð, hjartahlý og húm- oristi. Stelpurnar minnast lang- ömmu sem var alltaf jafnglöð að sjá þær, alveg fram á síðustu stund þegar hún beið eftir að sjá þær í maskabúningunum á bollu- daginn. Og alltaf átti langamma eitthvað gott fyrir fjörugar stelpur og svo má ekki gleyma því að hún þekkti Hurðaskelli. Einu sinni svaraði hún spurning- um í skólaverkefni hjá Hrefnu Dís og var ein spurningin „Hvað vildir þú verða þegar þú yrðir stór?“ Amma Dunna: Skipstjóri en var svo sjóveik að ég gat það ekki. Núna síðustu vikurnar höfðu Elísa og Dunna rætt um stóra skemmtiferðaskipið sem biði hennar en ein samferðakona hennar sem kvaddi fyrr á árinu væri að finna það fyrir þær og hafa allt tilbúið. Stór skjár fyrir allar sápurnar sem þarf að fylgj- ast með og allir um borð með hlutverk. Dunna skipstjóri, Gína skemmtanastjóri og Björney átti að sjá um öryggismál. Góða ferð og hvíl í friði, elsku amma Dunna. Hver siglir byrlaust um hafið hratt hver getur róið án ára, hver getur vininn sinn vænsta kvatt og varist grátinum sára. Ég get siglt byrlaust um hafið hratt og báti róið án ára. En aldrei vininn minn vænsta kvatt og varist grátinum sára. Páll Janus (Palli), Elísa og stelpurnar. Nú er hún farin frá mér, elskuleg amma mín, á 94. aldurs- ári. Ég var eitt af þeim börnum sem var svo heppið að fá að vera á sumrin á Þingeyri við Dýra- fjörð hjá ömmu og var það sú besta barnæska sem hægt er að hugsa sér í litlu fiskiþorpi á Vestfjörðum laus við hættur og maður fékk að vera frjáls að leika sér þangað til kallað var í mat. Á hverjum degi kom Brandur með mjólk á litlum brúsum og var það mikið sport að fá að setja brúsann á tröpp- urnar og koma með hann inn þegar hann var fullur. Amma bakaði þær bestu kök- ur og ástarpunga sem ég hef smakkað og passaði hún alltaf upp á að við krakkarnir, sem vorum nokkur, fengjum nóg. Á haustin var tekið slátur eins hefð er á mörgum heimilum og fannst mér alltaf gaman að taka þátt í því, sérstaklega þegar ég fékk að fara með nýrun upp í garð og gefa hröfnunum. Amma hafði mikinn áhuga fyrir hestum eins og ég og átti hún vindóttu hryssuna Gyðju þegar hún var ung og lá ekkert annað fyrir en að skíra fyrsta merfolaldið mitt Gyðju. Hún fylgdist alltaf með hvað var að gerast hjá mér og mínum manni, Steinari Nóna, við bú- störfin og gladdi það okkur ómælt þegar amma kom suður í Villingaholt, þar sem við bjugg- um, á 90 ára afmælisdaginn sinn og kíkti á okkur, Gyðju og hin dýrin í sveitinni. Aldrei minnist ég þess að hafa séð ömmu mína öðruvísi en glaða, brosandi og í góðu skapi með nóg fyrir stafni og kem ég til með að sakna hennar mikið, þessarar yndislegu hjartahlýju konu sem hún var. En nú er hún komin til afa, Gunnars og Rúnars sem ég veit að hafa tekið vel á móti henni þegar hún kvaddi okkar heim og ég vil trúa því að nú líði henni betur enda búin að lifa langa og viðburðaríka ævi. Ég þakka guði fyrir það að þú varst amma mín og mun ég minnast þín og þess sem þú kenndir mér alla ævi. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. (Sigga Dúa.) Þín ömmustelpa. Hugrún Lilja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.