Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Gr eið slu mi ðlu n Vissir þú að . . . Þeir sem nýta sér greiðslu- miðlun Alskila geta sinnt kjarnastarfsemi sinni af fullum krafti Alskil hf • Sími: 515 7900 • alskil@alskil.is • www.alskil.is Ka nnaðu Málið!alskil.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is Stíf fundarhöld stóðu fram eftir kvöldi í gær hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu Félags framhaldsskóla- kennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum við ríkið. Viðræður munu halda áfram um helgina en verkfall í framhalds- skólum hefst á mánudag, náist ekki sátt fyrir þann tíma. „Helgin verður að leiða í ljós hvort sátt næst í málið, en hún verður notuð vel til þess að reyna að ná fram kjarasamningi,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskóla- kennara í gærkvöldi, en hún segir það vera vilja beggja fylkinga að koma í veg fyrir að af verkfalli verði. Ekkert formlegt launatilboð Aðspurð hvort eitthvað hafi þokast í viðræðum sagðist Aðalheiður lítið geta sagt annað en að verið sé að ræða saman. Þá sagði hún ekkert formlegt launatilboð hafa komið fram frá ríkinu í gær. Hún vildi ekki segja til um hvort til greina komi hjá kennurum að slá af sínum kröfum, en framhaldsskóla- kennarar fara fram á 17% launa- leiðréttingu auk umbóta á fjármálum framhaldsskólanna. „Þetta eru grundvallarmál sem við erum að ræða og það er ljóst að við þurfum að ná fram miklu betra end- urgjaldi fyrir kennara- og stjórn- endastörf auk umbóta í rekstri skólanna.“ Skólar standa nærri gjaldþroti Hún segir núverandi stöðu vera óviðunandi þar sem margir skólar séu komnir hættulega nálægt gjaldþroti vegna mikils niður- skurðar á undanförnum árum og eigi ekki fyrir venjulegum grunnreikn- ingum um mánaðamót. Magnús Pétursson ríkissátta- semjari vildi lítið tjá sig um efni fundarins í gær eða stöðu málsins en sagði að fundir myndu væntanlega standa yfir um helgina þar sem reynt yrði að ná fram sáttum í deilunni. Morgunblaðið/Þórður Síðasti kennsludagurinn? Þessir nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð gengu mögulega út úr skólanum í síðasta sinn fyrir verkfall í gær. Náist ekki sátt í kjaradeilu kennara um helgina hefst verkfall á mánudag. Reynt til þrautar að semja um helgina  Vilji beggja fylkinga er að koma í veg fyrir verkfall Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í nýrri samgönguáætlun sem Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis- ráðherra kynnti á fundi ríkis- stjórnarinnar í gærmorgun ber helst til tíðinda að Sundabraut kemur nú aftur inn á samgöngu- áætlun. Fram kemur að hugað sé að mögulegri fjármögnun framkvæmdar- innar með þátt- töku einkaaðila. Áætlunin var samþykkt á fund- inum og næstu skref eru að leggja hana fyrir Alþingi sem tillögu til þingsályktunar. Á aðalskipulagi frá 1984 Tólf ára stefnumótandi sam- gönguáætlun skal endurskoða á fjögurra ára fresti og er endur- skoðun hennar hafin. Tekur hún til áranna 2015-2026 og er miðað við að samgönguráð geti lagt hana fyrir ráðherra næsta haust. Hugmyndir að Sundabraut eru fjarri því að vera nýjar af nálinni því hún hefur verið inni á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar frá árinu 1984. Lítið hefur farið fyrir umræðu um hana eftir efnahagshrun en árið 2008 var kostnaður við framkvæmd- ina áætlaður á bilinu 30-40 millj- arðar króna. Sundabraut er fyrirhugaður þjóð- vegur frá Vesturlandsvegi undir hlíðum Esju yfir Kollafjörð í Álfsnes og þaðan yfir Leirvog í Geldinganes og áfram í Gufunes þaðan sem hún mun liggja yfir annaðhvort Elliða- vog eða Kleppsvík. Samkvæmt áætl- unum er gert ráð fyrir því að á milli 25 og 30 þúsund bílar fari um braut- ina á sólarhring árið 2030. Meðal stærstu framlaga á næsta ári til vegaverkefna eru þrír millj- arðar króna til Norðfjarðarganga og um 800 milljónir króna til breikkunar á Hellisheiðarvegi. Gert er ráð fyrir framkvæmdum við Arn- arnesveg fyrir um 500 milljónir króna og vinnu við Vestfjarðaveg, Dettifossveg og við nýja brú yfir Jökulsá á Fjöllum fyrir um 400 milljónir króna á hverjum stað. Þá verða Dýrafjarðargöng boðin út árið 2016. Sundabraut á samgönguáætlun  Einkaaðilar komi að fjármögnun  Þrír milljarðar í Norðfjarðargöng Hanna Birna Krist- jánsdóttir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sveinn Arason ríkisendurskoðandi telur skyldleika sinn við Nönnu Huld Aradóttur, innri endurskoðanda Seðlabanka Íslands, ekki hafa áhrif á hæfi hans til að fara fyrir rannsókn á greiðslum Seðlabankans vegna kostnaðar af málsókn Más Guð- mundssonar á hendur bankanum. Sveinn og Nanna Huld eru systkin. Sveinn segir rannsóknarefnið af- markað og að afla þurfi gagna um ákvörðun sem tengist greiðslu máls- kostnaðar og aðkomu bankaráðs að málinu. „Með vísan til þessa tiltekna erindis þá er það niðurstaða mín að hæfi mitt til aðkomu að málinu sé óskert. Ákvarðanir sem teknar hafa verið í þessu máli tengjast með eng- um hætti innri endurskoðanda bank- ans,“ segir Sveinn. Nanna Huld hóf störf í mars 2012, en Seðlabankinn var þá byrjaður að greiða kostnað vegna málsóknarinn- ar, samkvæmt bankaráði SÍ. Spurningin um hugsanlega van- hæfni Sveins var tekin fyrir á fundi hjá Ríkisendurskoðun í gær, daginn eftir að bankaráð lagði fram beiðni um rannsókn á málinu. Mágur Jóhönnu talinn hæfur Sveinn segir aðspurður að Lárus Ögmundsson vararíkisendurskoð- andi sé einnig talinn hæfur í málinu en hann er kvæntur Hildigunni Sig- urðardóttur, systur Jóhönnu Sigurð- ardóttur, fv. forsætisráðherra og beins málsaðila í launadeilu Más. Tekur Sveinn fram í þessu efni að Ríkisendurskoðun muni ekki fjalla um hugsanlega aðkomu forsætis- ráðuneytisins að málinu. Að sögn Sveins þarf helst að liggja fyrir þegar í fyrri hluta næstu viku hvort Ríkisendurskoðun líti svo á að flokka megi greiðslu Seðlabankans á málskostnaði Más sem rekstrar- kostnað hjá bankanum. Verði það niðurstaða Ríkisendurskoðunar má af því ráða að hún líti svo á að Má beri ekki að greiða skatt af máls- kostnaði sem féll á hann en bankinn greiddi. „Við höfum eðli máls sam- kvæmt ekki langan tíma í þetta.“ Sveinn útskýrir svo hvernig rann- sókn á því hvort farið hafi verið að lögum og reglum Seðlabankans í málinu verður háttað. Málið varði túlkun á lagaákvæðum varðandi Seðlabankann og ákvarðanaferli þar innandyra. „Eðli máls samkvæmt kemur álit frá okkur eða niðurstaða. Stofnunin getur ekki úrskurðað í málum. Svo taka þeir sem þurfa að fara eftir henni ákvörðun í framhaldi af því hvort þeir fylgja henni eða ekki. Það kemur í ljós,“ segir Sveinn. Taldir hæfir í Seðlabankaathugun  Ríkisendurskoðandi er álitinn hæfur til þess að fara fyrir rannsókn á launadeilu seðlabankastjóra  Systir hans er yfirmaður hjá SÍ  Mágur fv. forsætisráðherra einnig talinn hæfur í rannsókninni Morgunblaðið/Ómar Yfirmenn Sveinn Arason og Lárus Ögmundsson eru taldir hæfir í málinu. Samtök atvinnulífsins segja framhaldsskólakennara ekki hafa tekist að útskýra launa- kröfur sínar fyrir almenningi með skiljanlegum hætti. Laun félagsmanna Kennarasambands Íslands hefðu hækkað svipað mikið og laun félagsmanna BHM. Samtökin benda á að á tímabilinu 1990 til 2013 hafi laun á almennum vinnumarkaði dregist tæplega 20% aftur úr launum opinberra starfsmanna. Kaupmáttur launa opinberra starfsmanna hafi hækkað um 56% á tímabilinu en kaup- máttur launa á almennum vinnumarkaði um 30%. Óútskýrðar launakröfur SAMTÖK ATVINNULÍFSINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.