Morgunblaðið - 15.03.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
MUNDO - ferðaskrifstofa þar sem
menntun, skemmtun, menning og þjálfun
fara saman, boðar til almenns kynningar-
fundar í Hannesarholti Grundarstíg 10,
miðvikudaginn 19. mars klukkan 17:00.
Allir velkomnir!
Ertu að leita að
innihaldsríku fríi?
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Bestu einstaklingar í kynbótaverk-
efni á öspum uxu um þrjá metra á
tæpum fimm árum. Jafnframt var
mikil þykknun í stofnvexti en það
þýðir meiri við-
armassa, sem er
veigamikið atriði
fyrir þá sem
stunda skógrækt.
Þessu til viðbótar
eru vísbendingar
um að aspirnar
séu þolnari gagn-
vart asparryði,
sem víða hefur
farið illa með
aspir síðastliðinn áratug.
Eðlilega hafa þeir sem leggja
stund á skógrækt þegar falast eftir
klónum úr tilrauninni, en verkefnið
er ekki komið á það stig að tímabært
sé að hefja dreifingu trjáa. Um ald-
arfjórðungur er síðan farið var að
nota alaskaösp í skógrækt hér á
landi.
Halldór Sverrisson, líffræðingur
og plöntusjúkdómafræðingur hjá
Skógrækt ríkisins á Mógilsá, leiðir
þetta verkefni og segir að árangur-
inn til þessa sé afskaplega góður.
Hann rekur upphaf verkefnisins til
vanda sem fylgdi asparryði um síð-
ustu aldamót. Reynt var að finna
einstaklinga sem hefðu mótstöðu
gegn ryðinu og var greinum af slík-
um aspartrjám af báðum kynjum
víxlað saman við einstaklinga sem
höfðu sýnt hraðan vöxt. Afkom-
endum var síðan plantað í reiti víða
um land til að sjá hvernig þeir þrif-
ust við mismunandi aðstæður.
Efnilegustu einstaklingunum úr
fyrstu afkvæmatilraununum var síð-
an safnað vorið 2009 og komið fyrir í
safni í Biskupstungum. „Við mæl-
ingar á trjánum í fyrrahaust kom í
ljós að þessir nýju klónar hafa flestir
vaxið betur heldur en klónar sem við
þekktum áður, bæði foreldrarnir og
klónar sem voru þekktir í skóg-
rækt,“ segir Halldór.
Miklu hraðari en
hjá eldri klónum
„Það hefur komið í ljós að þessir
nýju afkomendur eru betri, vaxa
hraðar og sumir þeirra virðast hafa
betri mótstöðu gegn asparryði. Síð-
astnefnda atriði verður rannsakað
betur í sumar, en enginn er með öllu
ónæmur fyrir ryðinu.
Margir þessara klóna voru í haust
komnir í yfir þriggja metra hæð og
sýndu líka mikla þykknun í stofn-
vexti, sem segir hvað lífmassinn eða
viðarmassinn er mikill. Í eldri til-
raunum á öspum er vöxtur oft afar
hægur fyrstu árin eða að meðaltali
um 25 sentímetrar á ári og þau tré
eru oft aðeins rúmur metri á hæð
eftir fjögur ár.
Ég vil ekki alhæfa eða taka of
djúpt í árinni um nýju klónana, en ég
sé ekki annað en vöxtur þeirra sé
miklu hraðari en hjá eldri klónum,
og algengt að hann sé 60-70 sentí-
metrar á ári. Þess ber þó að geta að
margir af gömlu klónunum ná þeim
vexti eftir að þeir hafa slitið barns-
skónum“ segir Halldór.
Gróska Ása Gunnþórunn við aspir, sem vaxið hafa hratt á síðustu árum.
Ofuraspir sem vaxa
hraðar og ryðga síður
Vöxturinn getur orðið um þrír metrar á fimm árum
Halldór Sverrisson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Verkfallsboðun hjá starfsmönnum í
járnblendiverksmiðju Elkem Ísland
á Grundartanga var samþykkt í at-
kvæðagreiðslu sem lauk í gær.
Verkfallið á að hefjast 25. mars hafi
samningar ekki tekist fyrir þann
tíma.
Skv. upplýsingum Verkalýð-
félags Akraness tóku þátt í kosn-
ingunni félagsmenn allra félaga
sem eiga aðild að kjarasamn-
ingnum hjá Elkem en þau eru
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT,
RSÍ og Stéttarfélag Vesturlands.
85,6% starfsmanna þessara félaga
greiddu atkvæði og var verkfalls-
boðunin samþykkt með 84,4%
greiddra atkvæða.
„Það er ljóst að kröfur þeirra eru
í engum takti við það sem samið
hefur verið um á almennum vinnu-
markaði til þessa,“ segir Þorsteinn
Víglundsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins. Hann segir
það vekja furðu að farið er fram
með miklu hærri kröfur hjá þessu
fyrirtæki en gert hefur verið ann-
ars staðar í ljósi þess að afurðaverð
hjá Elkem hafi lækkað mikið um
allnokkurt skeið. „Þar er ekkert
sem réttlætir meiri launakröfur til
fyrirtækisins en annarra ef horft er
til markaðsaðstæðna og afkomu,“
segir hann.
Yfirvinnubann hefur staðið yfir
hjá Elkem frá 23. febrúar og segir
Þorsteinn ljóst að ef verkfallið
skellur á 25. mars mun öll fram-
leiðsla verksmiðjunnar stöðvast
strax.
Boðað er til næsta sáttafundar í
deilunni nk. þriðjudag.
Samþykktu verk-
fall hjá Elkem
SA segir háar launakröfur í engum
takti við kjarasamninga annarra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Járnblendiverksmiðjan Boðað verk-
fall hjá Elkem á að hefjast 25. mars.
Ef kjarasamn-
ingar nást ekki
við Isavia munu
stéttarfélög
starfsfólksins,
FFR, SFR og
Landssamband
slökkviliðs- og
sjúkraflutninga-
manna, alls um
400 manns, grípa til verkfalls-
aðgerða að sögn Kristjáns Jóhanns-
sonar, formanns FFR. „Við höfum
hitt Samtök atvinnulífsins á átta
fundum. Deilunni var vísað til ríkis-
sáttasemjara í lok febrúar og ekkert
hefur gengið. Við teljum okkur eiga
töluvert inni hjá Isavia en þeir vilja
halda sig við þennan hefðbundna
ASÍ-samning. Það er ekkert laun-
ungarmál að starfsmenn eru orðnir
óþolinmóðir,“ segir Kristján. Stétt-
arfélögin funduðu á fimmtudag þar
sem fram kom eindreginn vilji til að-
gerða að sögn Kristjáns. Næsti fund-
ur verður á þriðjudag. Þá skýrist
hvort félagsmenn veita ríkari heim-
ildir til aðgerða, segir Kristján. vid-
ar@mbl.is
Hóta verkfalls-
aðgerðum semjist
ekki við Isavia
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undirbúningur er hafinn vegna 60 herbergja
viðbyggingar við Icelandair Hótel Reykjavík
Marina við Mýrargötu í Reykjavík og er stefnt að
því að framkvæmdum verði lokið 1. maí á næsta
ári.
Fyrirtækið JE Skjannar ehf. byggingaverk-
takar keypti gamla Slipphúsið 2003 og sumarið
2009 sóttu eigendurnir, Einar Ágústsson og Jens
Sandholt, um að fá að breyta húsinu í hótel.
Hrunið setti strik í reikninginn en 2011 gerðu
þeir samning við forsvarsmenn Flugleiðahótela
og um ári síðar, 18. apríl 2012, var Icelandair
Hótel Reykjavík Marina formlega opnað. Þar eru
108 hótelherbergi og þar af tvær svítur og fimm
fjölskylduherbergi með kojum. Auk þess er þar
m.a. líkamsrækt, veitingastaður og Slippbarinn.
Á lóðinni vestan við hótelið eru tvö hús og
verða þau hluti af hótelinu en á milli þeirra og
hótelsins verður reist ný bygging. Jens segir að
hönnunin sé komin á fullt. 45 herbergi verði í ný-
byggingunni og 15 svítur og herbergi í gömlu
húsunum. „Við viljum halda götumyndinni, þó
það sé kostnaðarsamara, endurgera húsin og
stækka þau,“ segir hann. Jens bætir við að húsin
og nýbyggingin verði tengd við núverandi hót-
elbyggingu með tengigangi á fyrstu hæð.
Jens segir að vonast sé til þess að hægt verði
að byrja að grafa fyrir grunni í byrjun apríl og
gangi það eftir sé stefnt að því að afhenda
hótelið til notkunar 1. maí á næsta ári.
Bæta við 60 hótelherbergjum
Viðbyggingar við Icelandair Hótel Reykjavík Marina afhentar 1. maí 2015
45 herbergi verði í nýbyggingunni og 15 svítur og herbergi í gömlu húsunum