Morgunblaðið - 15.03.2014, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Eftir þorra, sem blótaður var
rækilega nú, eins og áður, þar sem
fjöldi gesta var frá nokkrum tugum
til stærsta blótsins sem losaði 600,
hefur komist á ró í bæ og héraði en
aðdragandi árlegrar Sæluviku er
kominn á fulla ferð.
Þá er fólk farið að lengja eftir
fréttum af framboðum flokkanna
fyrir kosningarnar í vor, en kjör-
nefndir halda spilum þétt að sér og
fréttist fátt um prófkjör, uppstill-
ingarnefndir eða lista og finnst
mörgum það æra óstöðugan að bíða
þessara tíðinda.
Við Fjölbrautaskólann var
fundur kennara og nemenda í viku-
lok vegna komandi verkfalls sem
alltaf kemur verst niður á útskrift-
arnemum, og rætt á hvern hátt
mætti lágmarka skaðann.
Þorkell Þorsteinsson kennari
sagði nemendagildi við FNV væru
um 340 í fullu námi, en alls stund-
uðu námið um 500 nemar. Sagði
hann aukna hlutdeild skólans í nem-
endum frá Norðurlandi vestra sem
m.a. kæmi til vegna dreifnáms sem
nú hefði verið tekið upp á Hólmavík,
Hvammstanga og Blönduósi.
Benti hann á að þegar sæjust
breytingar þar sem dreifnám væri í
gangi, er nemendur gætu verið
heima tvo vetur eftir grunnskóla –
„en auðvitað vonum við að þessir
krakkar komi til okkar eftir þessi
ár“.
Verknám skólans gengur mjög
vel, utan tréiðnadeild, þar sem sam-
dráttur er í námi í húsasmíði, en að-
sókn góð í málm- og rafiðnir, og
gert er ráð fyrir að hársnyrtibraut
verði annað hvert ár. Ný námskrá
um plastiðnað bíður í ráðuneyti en á
sl. ári var kennt eitt námskeið og út-
skrifaðir 32 plastbátasmiðir í sam-
vinnu við Siglingastofnun.
Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri
sagði stærstu framkvæmd ársins
sem í skoðun væri, vera leikskóla í
Varmahlíð, þar eru börn á biðlista
og þörf á stækkun. Við störf væri
samstarfsnefnd með Akrahreppi
þar sem skoðaður væri skóli fyrir 47
börn, en kostnaður yrði um 100
millj. með frágangi lóðar.
Fækkun íbúa hefur orðið um 40
frá sl. ári, en á undanförnum árum
hefur opinberum störfum hér fækk-
að um 50. Þannig voru t.d. á Norð-
urlandi vestra 10 læknar með fasta
búsetu fyrir stuttu, en nú þrír og
veldur þetta áhyggjum.
Í endurvinnslustöðinni
Flokku starfa 8 og sagði eigandinn
Ómar Kjartansson að efni móttekið
sl. 6 ár sem farið hefði í endur-
vinnslu 5.280 tonn en lífrænt heim-
ilissorp sem sent væri til moltugerð-
ar væri um 120 tonn á ári.
Strandsiglingar eru aftur
hafnar, en flug hætti hingað um ára-
mót, eitt kemur og annað fer, körfu-
boltaliðið komið upp í úrvalsdeild,
nægur snjór í fjallinu, sól hækkar á
lofti, fyrstu farfuglarnir komnir og
bráðum jafndægur að vori og því
ástæðulaust að vera með einhverja
fýlu.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Kvöldroðinn í Skagafirði Daginn lengir nú óðfluga og kvöldsólin er oft falleg yfir vesturfjöllum og Tindastóli.
Gott mannlíf í föstum skorðum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fólk í Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslum fær í dag smá-
skilaboð í GSM-
síma með við-
vörun um Kötlu-
gos. Þetta er
æfing sem al-
mannavarna-
nefndin á svæð-
inu,
ríkislögreglu-
stjóri og Neyð-
arlínan standa
fyrir. Tilgang-
urinn er kanna
virkni símkerfisins með tilliti til þess
að það virki til útsendinga á upplýs-
ingum þegar vá steðjar að.
Í allra virka síma á svæðinu
Framkvæmd æfingarinnar er
þannig að í kerfum Neyðarlínunnar
er dregið upp svæði sem ætla má að
verði fyrir beinum áhrifum af Kötlu-
gosi. Þróaður hefur verið hugbún-
aður sem virkar þannig, að hægt er
að senda skilaboð í alla virka síma
innan ákveðinna markalína. Kötlu-
svæðið sem er undir á þessari æf-
ingu nær frá Þykkvabæ í Rangár-
vallasýslu og austur á Síðu við
Kirkjubæjarklaustur, en á því búa
um 4.000 manns. Skilaboðin verða á
íslensku og ensku, á síðarnefnda
málinu með tilliti til erlendra ferða-
manna sem kunna að vera á
svæðinu.
„Við þurfum að kanna virkni
kerfisins, hvort og þá hvar séu dauð-
ir punktar. Ef svo er þarf að bæta
úr, en í þessu sambandi vitum við að
GSM-sambandið er veikt til dæmis í
Álftaveri og Skaftártungum,“ segir
Sveinn Kr. Rúnarsson yfirlögreglu-
þjónn á Hvolsvelli.
Í Eyjafjallagosunum sem stóðu
frá í mars og fram í maílok 2010 var
stuðst við að senda skilaboð í gegn-
um fastlínukerfi og á skráða síma.
Þar fékkst ákveðin reynsla, sem
nauðsynlegt þykir að þróa frekar og
prófa eins og gert verður í dag.
Fer í loftið kl. 11.00
Starfsfólk Neyðarlínunnar þróaði
og setti nýtt kerfi á laggirnar í upp-
hafi síðasta árs, sem var prófað lítil-
lega þá. Nú þarf hinsvegar, segir
Sveinn, að kanna hvernig kerfið
virki. Þeir sem ekki fá boðin send
kl.11.00 í dag og eru staddir á áhrifa-
svæðinu eru beðnir að koma ábend-
ingum til lögreglu á Hvolsvelli með
upplýsingum um nafn, símanúmer,
staðsetningu og símafyrirtæki.
Fá Kötlugosið í
farsímann í dag
Rangárvalla- og Vestur-Skaftafells-
sýslur vaktar Nýtt kerfi Neyðarlínu
Morgunblaðið/Ómar
Eyjafjallagos SMS-boð fara til fólks
á hamfarasvæðum sem viðvörun.
Skilaboðin
» Svæðið frá Þykkvabæ og
austur á Síðu er undir á síma-
æfingunni nú í dag.
» Einnig á ensku til að ná til
erlendra ferðamanna.
» Veikir punktar í farsímakerf-
inu verða teknir út, sem eru
Álftaver og Skaftártunga.
Sveinn Kr.
Rúnarsson
Laugardagstilboð
– á völdum dúkum, servéttum og kertum
SE
RV
ÉT
TÚ
R
KE
RT
I
DÚ
KA
R
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
®
Ýmisservéttubrot
Sjá hér!
Opið laugardaga kl. 10-16
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mán. - fös. 11-18:30 laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
living withstyle
Mottumars
5% af allri mottusölu rennur
til krabbameinsfélagsins