Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 24
Umfangsmikil leit
» Alls tóku 57 skip og 48 flug-
vélar frá 13 þjóðlöndum þátt í
leitinni að flugi MH370 í gær.
» Sérfræðingar sem AFP
ræddi við voru með margar
ólíkar kenningar um hvað varð
um vélina, einn sagðist sann-
færður um að hún hefði orðið
fyrir einhvers konar flugskeyti
en annar taldi líklegt að vélin
hefði hrapað í kjölfar vélar-
bilunar.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Frá því var sagt á fréttavef BBC í
gær að gervihnattakerfi fjarskipta-
fyrirtækisins Inmarsat, sem rekur
starfsemi sína frá Lundúnum, hefði
numið sjálfvirk boð frá flugi MH370
að minnsta kosti fimm klukku-
stundum eftir að vélin hvarf af rat-
sjám. Jonathan Amos, vísinda-
fréttaritari BBC, segir að ef rétt
reynist, hljóti vélin að hafa verið
ósködduð og kerfi hennar í gangi.
Þetta rímar við fréttaflutning
bandarískra miðla í gær en þeir
höfðu eftir ónefndum heimildar-
mönnum að gervihnettir hefðu
numið merki frá vélinni klukku-
stundum eftir að áhöfnin var síðast í
sambandi við flugumferðarstjórn.
Bandaríkjamenn sendu í gær tund-
urspillinn USS Kidd til leitar á Ind-
landshafi en samkvæmt malasísk-
um yfirvöldum stækkaði
leitarsvæðið enn í gær og nær
lengra út á bæði Indlandshaf og
Suður-Kínahaf.
Enn ein tilgátan um afdrif flugs
MH370 frá Kuala Lumpur til Pek-
ing, sem hvarf á föstudag, náði eyr-
um fjölmiðla í gær en þá hafði
Reuters eftir ónefndum heimildar-
mönnum, kunnugum yfirstandandi
rannsókn, að vélin hefði ekki flogið í
blindni norðvestur frá Malasíu. Þeir
sögðu að ratsjárgögn bentu til þess
að hver sá sem var við stýri vél-
arinnar hefði fylgt eftir ákveðnum
leiðarmerkjum sem hefðu leitt vél-
ina yfir Andaman-eyjar.
Var vélinni lent?
Indverski herinn sendi skip og
flugvélar til að leita að Boeing 777-
vélinni yfir sunnanverðu Andaman-
hafi í gær en þrátt fyrir getgátur
þar að lútandi þykir ólíklegt að vél-
in hafi lent á eyjunum. CNN hafði
eftir Denis Giles, ritstjóra dag-
blaðsins Andaman Chronicle, að
það væri engin leið að lenda vél af
þessari stærðargráðu á eyjunum án
þess að eftir því væri tekið.
AFP birti í gær samantekt yfir
helstu kenningar um örlög vélar-
innar, og þeirra 239 sem voru inn-
anborðs, en meðal þess sem þar er
talið til eru sprenging, rán, tækni-
legir örðugleikar, að vélin hafi liðast
í sundur og að annar flugmannanna
hafi ákveðið að fremja sjálfsmorð. Í
samtali við CNN útilokaði James
Kallstrom, fyrrverandi aðstoðar-
framkvæmdastjóri bandarísku al-
ríkislögreglunnar, ekki að vélinni
hefði verið lent einhvers staðar, í
þeim tilgangi að nota hana til
óhæfuverka síðar meir. Hann sagði
þó erfitt að draga ályktanir á meðan
áreiðanleg gögn lægju ekki fyrir.
Kínverskir vísindamenn sögðu
einnig frá því í gær að þeir hefðu
numið einhvers konar „viðburð“ á
sjávarbotni í hafinu umhverfis Mal-
asíu og Víetnam, um það bil einum
og hálfum klukkutíma eftir að síð-
ast heyrðist frá áhöfn vélarinnar.
Sögðu þeir mögulegt að óróann
mætti rekja til brotlendingar vél-
arinnar.
Malasísk samgönguyfirvöld vildu
sem minnst tjá sig um fregnir af
mögulegum afdrifum vélarinnar í
gær og sögðu að rannsóknarteymið
myndi ekki birta neinar upplýsing-
ar fyrr en þær hefðu verið sann-
reyndar og staðfestar.
Námu boð fimm klukku-
stundum eftir að vélin hvarf
Leitarsvæðið stækkar enn Kenningum um afdrif vélarinnar fjölgar
AFP
Nál í heystakki Izam Fareq Hassan, kapteinn í malasíska flughernum, ræðir við félaga sína um borð í CN235-vél
hersins við leit að flugi MH370 yfir Malacca-sundi. Leitarsvæðið stækkaði enn í gær, út á Indlandshaf.
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Hópferð með
Fúsa á Brekku
6. árið í röð
570-8600 / 472-1111
www.smyrilline.is
Bókaðusnemma!
Uppseltöll árin
10. - 15. september
Færeyjaferð með Fúsa á Brekku og Svenna frá
Hafursá. Skoðunarferðir, skemmtun, matur,
gisting og íslensk fararstjórn.
Verð á
mann frá kr. 139.900
Miðað við 2 saman.
Innifalið í verði:
Ferð með Norrænu
Hótel Færeyjar í 4 nætur
Morgunmatur og kvöldverður
Skoðunarferðir
Íslensk fararstjórn
Leiðtogar Rússlands og vesturveld-
anna deila ekki sameiginlegri sýn á
ástandið í Úkraínu, sagði Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, eftir fund með John Kerry,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í
Lundúnum í gær. Hann sagði að
þrátt fyrir að rússneski herinn hefði
styrkt stöðu sína við landamæri
austurhluta Úkraínu hefði Rússland
ekki í hyggju, og gæti ekki haft í
hyggju, að ráðast inn í suðaustur-
hluta landsins.
Íbúar Krím ganga til atkvæða-
greiðslu um aðskilnað frá Úkraínu á
morgun en Kerry sagði að ef af
henni yrði myndu Bandaríkin grípa
til einhvers konar refsiaðgerða gegn
Rússum. AFP hafði eftir heimild-
armönnum í gær að refsiaðgerðir
Evrópusambandsins vegna íhlut-
unar rússneskra stjórnvalda á Krím-
skaga myndu beinast gegn þrjátíu
mikilsverðum einstaklingum. Hann
sagði að ráðherrar ríkisstjórnar-
innar yrðu þó líklega ekki þeirra á
meðal, þar sem erfitt gæti reynst að
eiga samningaviðræður eftir að hafa
beitt viðkomandi þvingunum.
Rússnesk stjórnvöld áskildu sér í
gær réttinn til að „vernda félaga“
sína um alla Úkraínu. Þá sagði Ser-
giy Aksyonov, forsætisráðherra
Krím, að það myndi taka innan við
ár að sameinast Rússlandi, ef það
yrði niðurstaða kosninganna. Um
500 tartarar mótmæltu atkvæða-
greiðslunni í Bakhchysaray í gær.
Engin lausn í
sjónmáli fyr-
ir Úkraínu
Átök? Úkraínskir hermenn við æf-
ingar nærri Goncharovskoye í gær.
Kjósa um að-
skilnað á morgun
AFP
Toomas Hendrik
Ilves, forseti
Eistlands, veitti í
gær Taavi Roi-
vas félagsmála-
ráðherra umboð
til að mynda nýja
ríkisstjórn. Roi-
vas er aðeins 34
ára gamall og
verður, ef fer
sem horfir, yngsti leiðtogi Evrópu.
Ráðherrann ungi tekur við af
Andrus Ansip, sem lét af embættinu
fyrr í mánuðinum eftir að hafa
gegnt því í níu ár. Til stóð að Siim
Kallas, stofnandi Umbótaflokksins,
tæki við keflinu en hann dró sig í
hlé fyrr í vikunni, vegna ásakana
um spillingu þegar hann var banka-
stjóri eistneska seðlabankans 1991-
1995.
Roivas hóf ferill sinni í stjórn-
málum aðeins tvítugur, sem ráð-
gjafi dómsmálaráðherra. Hann er
giftur eistnesku poppstjörnunni
Luisa Vark og á sex ára dóttur.
Hann þykir ákveðinn og veigrar sér
ekki við því að taka djarfar ákvarð-
anir en stjórnmálaskýrendur segja
Umbótaflokkinn, sem er stærsti
flokkurinn á eistneska þinginu,
þurfa að grípa til aðgerða til að
auka vinsældir sínar fyrir næstu
kosningar, til að viðhalda stöðu
sinni.
EISTLAND
Roivas verður yngsti leiðtogi Evrópu
Taavi Roivas
Mikill meirihluti
Evrópuþing-
manna sam-
þykkti á fimmtu-
dag nýja reglu-
gerð, sem kveður
á um eina tegund
hleðslutækis fyr-
ir alla snjallsíma.
Tilgangur reglu-
gerðarinnar er tvíþættur: að ein-
falda neytendum lífið og draga úr
raftækjaúrgangi um allt að 51.000
tonn á ársgrundvelli.
Reglugerðin tekur ekki gildi fyrr
en hún hefur verið samþykkt af
ráðherraráði Evrópusambandsins
en gangi það eftir hafa aðildarríki
sambandsins til 2016 til að innleiða
reglugerðina og framleiðendur
munu í framhaldinu fá 12 mánuði
til að gera nauðsynlegar breytingar
á hönnun símanna.
Sú kló sem helst kemur til greina
að nota er svokölluð Micro USB-kló
en hún er þegar notuð af fjölmörg-
um framleiðendum. Viðræður við
þá hafa staðið yfir frá 2009 en
tæknirisinn Apple hefur enn ekki
brugðist við tillögunum. Hann er
einn þeirra framleiðenda sem í dag
nota sérsniðna kló.
EVRÓPA
Eitt hleðslutæki fyrir alla snjallsíma