Morgunblaðið - 15.03.2014, Qupperneq 41
ÍSLENDINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
syngja í þessum kórum og starfa
með Þorgerði sem ég á mikið að
þakka. Í HÍ starfaði ég svo í Vöku.“
Magnús hóf störf hjá Sjálfstæð-
isflokknum árið 2000, var fyrst fram-
kvæmdastjóri SUS og síðar fram-
kvæmdastjóri borgarstjórnarflokks
sjálfstæðismanna. Þaðan lá leiðin í
ráðhús Reykjavíkur árið 2006 þar
sem Magnús var skrifstofustjóri
undir stjórn Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar og síðar Dags B, Eggerts-
sonar og síðar aðstoðarmaður borg-
arstjórans, Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur. Hann er nú yf-
irmaður samskiptasviðs Landsvirkj-
unar: „Þar vinn ég með einvalaliði
hæfileikafólks, hjá framsæknu fyr-
irtæki, sem ber mikla ábyrgð og
gegnir mikilvægi hlutverki við að
skapa verðmæti og fara vel með auð-
lindir og umhverfi landsins.“
Stefnir á maraþon í New York
Svo eru það áhugamálin, Magnús.
„Lengi vel var kórsöngur mitt
helsta áhugamál en ég hef lítið getað
stundað kórsöng síðustu árin.
Mér finnst einstaklega gaman að
elda góðan mat og fá góða vini í
heimsókn. Áhuginn á matargerð
kemur frá mömmu. Hún var vön að
elda heimsins bestu humarsúpu fyr-
ir fjölskylduna á gamlárskvöld.
Nú hef ég tekið við þessu vanda-
sama hlutverki og hef að sjálfsögðu
lagt allan minn metnað í súpuna.
Slík humarsúpugerð getur því tekið
nokkra daga ef vel á að takast til. En
það er líka vel þess virði.
Á sumrin hef ég farið í veiðiferðir
og hef notið þess að ferðast með fjöl-
skyldunni, hvort heldur sem er, inn-
anlands eða erlendis. Af erlendum
stórborgum held ég mest upp á New
York og á þar góðan vin sem ég
heimsæki reglulega.
Fyrir tveimur árum ákvað ég að
taka mig taki og fór að hreyfa mig
duglega, vakna kl. 5.45 á morgnana,
fara þá í leikfimi, hoppa og dansa við
stuðtónlist með góðum hópi í World
Class á Seltjarnarnesi, milli þess
sem ég hleyp úti.
Ég er óneitanlega stoltur af því að
hafa hlaupið hálft maraþon árið 2012
og nú stefni ég á heilt maraþon með
góðum vinum í New York í nóv-
ember á þessu ári. En ef ég næ
þessu markmiði, læt ég eitt maraþon
nægja og sný mér þá að öðrum há-
leitari markmiðum.“
Fjölskylda
Magnús kvæntist 30.6. 2001 Elvu
Dögg Melsteð, f. 14.2. 1979, skipu-
lagsstjóra Hörpu tónlistarhúss. For-
eldrar hennar: Laufey Erla Krist-
jánsdóttir, f. 17.9. 1940 og Símon
Melsteð, 25.9. 1939, d. 4.10. 1983.
Börn Magnúsar og Elvu Daggar
eru Matthildur María, f. 20.2. 2002;
Gylfi Þór, f. 1.5. 2004, og Egill Tóm-
as, f. 12.9. 2009.
Systir Magnúsar er Helga Björg
Gylfadóttir, f. 6.4. 1984, kvikmynda-
gerðarkona.
Foreldrar Magnúsar: Sigríður
Dóra Jóhannsdóttir, f. 19.9. 1948,
myndlistarmaður og Gylfi Þór
Magnússon, f. 20.12. 1942, d. 6.11.
1998, viðskiptafræðingur og fram-
kvæmdastjóri.
Úr frændgarði Magnúsar Þórs Gylfasonar
Magnús Þór
Gylfason Steindóra Rebekka Steindórsdóttir
húsfr. á Bæjum og í Hnífsdal
Jón Elías Ólafssson
húsm. á Bæjum og form. í Hnífsdal
Björg Jónsdóttir
húsfr. á Akureyri og í Rvík
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir
hárgreiðslumeistari í Rvík
Jóhann Tómas Egilsson
bankaútibússtj. á Akureyri, síðar í Rvík
Jón Eysteinn Egilsson
forstj. Ferðaskrifstofu Akureyrar
Hólmsteinn Egilsson
forstj. á Möl og sandi á Akureyri
Hólmsteinn Hólmsteinsson
forstj. á Akureyri
Sigríður Helga Jónsdóttir
húsfr. á Auðnum og á Akureyri
Egill Tómasson
b. á Auðnum í Öxnadal og bankam. á Akureyri
Ólöf Guðmunda Guðmundsdóttir
húsfr.
Benóný Stefánsson
stýrim. á Sveinseyri og í Hauka-
dal í Dýrafirði síðar í Rvík
Sigriður Guðrún Benónýsdóttir
húsfr. í Rvík
Magnús Guðmundur Guðbjartsson
vélstj.og framkvæmdastj. í Rvík
Guðbjartur Guðbjartsson
vélstj. í Rvík
Guðni Jón
Guðbjartsson
stöðvarstj. á
Ljósafossi
Kristjana
Sampler
myndhöggvari í
Kópavogi
Baltasar
Kormákur
kvikmynda-
leikstjóri
Gylfi Þór Magnússon
viðskiptafr. og fram-
kvæmdastj. í Rvík
Sigríður P. Magnúsdóttir
húsfr. á Læk og á Höfða
Guðbjartur Björnsson
b. á Læk og á Höfða í Dýrafirði
Gísli Jónsson
framkvæmdastj. á Akureyri
Egill Jónsson
tannlæknir á Akureyri
Kokkurinn Magnús gælir einbeittur
við heimsins bestu humarsúpu.
Jóhannes Arason útvarpsþulurfæddist á Ytralóni á Langanesi15.3. 1920. Foreldrar hans
voru Ari Helgi Jóhannesson, kennari
í Sauðaneshreppi, síðar starfsmaður
hjá Skattstofunni í Reykjavík, og
Ása Margrét Aðalmundardóttir.
Ari var af Sílalækjarætt, náfrændi
Indriða Indriðasonar ættfræðings,
Þorkels Jóhannessonar háskólarekt-
ors og skáldanna Guðmundar á
Sandi og Sigurjóns á Litlulaugum.
Þá var hann frændi Sigurjóns á
Laxamýri, föður Jóhanns skálds.
Móðir Ara Helga var Þuríður Þor-
steinsdóttir, prests á Þóroddsstað,
bróður Sólveigar á Gautlöndum,
móður ráðherranna Kristjáns og
Péturs Jónssona. Þorsteinn var son-
ur Jóns, ættföður Reykjahlíðarættar
Þorsteinssonar. Móðir Þuríðar var
Guðbjörg, dóttir Ara Helgasonar af
Skútustaðaætt, hálfbróður Þuríðar,
móður Sigurðar á Ystafelli.
Ása Margrét var dóttir Að-
almundar Jónssonar, b. á Eldjárns-
stöðum á Langanesi, og k.h. Guð-
rúnar Benjamínsdóttur húsfreyju.
Eiginkona Jóhannesar var El-
ísabet Einarsdóttir sem lést 2012.
Börn þeirra eru Ása, lengst af leik-
skólakennari og starfsmaður RÚV,
Ari, læknir við Landspítalann, og
Einar klarinettuleikari.
Jóhannes flutti með fjölskyldu
sinni til Þórshafnar 1930 og þaðan til
Reykjavíkur 1935. Hann útskrifaðist
frá Samvinnuskólanum 1937, var í
byggingavinnu, vann við bókband og
prófarkalestur. Þá stundaði hann
verslunar- og skrifstofustörf, hjá
Pöntunarfélagi verkamanna og
KRON, Grænmetisverslun ríkisins
og ÁTVR. Lengst af var Jóhannes þó
þulur við Ríkisútvarpið og lands-
kunnur sem slíkur, eða frá 1956 og
þar til hann hætti fyrir aldurs sakir.
Jóhannes var prýðilegur söng-
maður, söng með Söngsveitinni Fíl-
harmóníu um árabil og var bassa-
söngvari í karlakórum og blönduðum
kórum, m.a. með útvarpsþulunum
Ragnari Tómasi Árnasyni og Jóni
Múla Árnasyni. Þá starfaði hann
töluvert fyrir Berklavörn og SÍBS.
Jóhannes lést 26.9. 2010.
Merkir Íslendingar
Jóhannes
Arason
Laugardagur
90 ára
Benedikt Hermannsson
Guðmundur Valdimarsson
85 ára
Sigurður Jónsson
Valgerður Björnsdóttir
80 ára
Ástdís Guðmundsdóttir
Gunnhildur S. Alfonsdóttir
Jón Guðmundsson
Kolbrún Kristjánsdóttir
Nanna Lára Ólafsdóttir
Reynar Óskarsson
Sigrún Steinlaug
Ólafsdóttir
75 ára
Guðmundur Olsen
Ole Pedersen
Sigurður Kristinn
Ásgrímsson
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
70 ára
Ásgeir Sigurðsson
Bjarni H. Geirsson
Björn Garðarsson
Björn Þorgeir Másson
Halldór Gunnlaugsson
Hörður Haraldsson
Jón Ómar Möller
Kristján Sigurðsson
Magnús Magnússon
Margrét Herbertsdóttir
Mattína Sigurðardóttir
Rannveig Pálsdóttir
Snjólaug Pálsdóttir
Þóra Ólöf Óskarsdóttir
60 ára
Albert Sveinsson
Brynjólfur Jónsson
Erna Arnþórsdóttir
Haukur Magnússon
Helga Sigurbjörnsdóttir
Hörður B. Kristinsson
Jóhann Þór Jóhannsson
Jón Hjaltason
Páll Georg Sigurðsson
Steinunn H. Hafstað
50 ára
Elsa Björg Stefánsdóttir
Gerður Gísladóttir
Guðmundur Hjálmarsson
Kamilla Hansen
Lísa Dóra Sigurðardóttir
Sigríður Sigfúsdóttir
Sigurður Sigurbergsson
Svanur Jakobsson
40 ára
Albert Sigurður Heimisson
Elín Rafnsdóttir
Friðrik Árnason
Guðfinnur Már Árnason
Halldór Jónas
Gunnlaugsson
Hilmar Björn Jónsson
Hinrik Einarsson
Hulda Sveinsdóttir
Jón Ólafsson
Magnús Þór Bjarnason
Ómar Arnar Ómarsson
Rúna Einarsdóttir
Silvana Micovic
Sveinn Rúnar Jónsson
30 ára
Benedikt Steinar
Benonýsson
Birgit Ósk Baldursd.
Bjartmars
Einar Líndal Aðalsteinsson
Eva Björk Kristinsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Hrafn Ingi Þórhallsson
Jenný Magnúsdóttir
Jóhannes Björn Þorleifsson
Kristín Eva Þórhallsdóttir
Magnús Örn Einarsson
Pétur Már Ómarsson
Przemyslaw Duleba
Sara Katrín Pálsdóttir
Sunnudasgur
90 ára
Óskar Jónatansson
80 ára
Kristín Guðmundsdóttir
75 ára
Palma Róslín Jóhannsdóttir
70 ára
Adriaan Eðvarð Dick
Groeneweg
Ásmundur Harðarson
Einar Þorvarðarson
Guðmundur Kristjánsson
Ib Georg Poulsen
Ingvar Sigurður
Hjálmarsson
Oddrún Gunnarsdóttir
Vigfús Árnason
60 ára
Bárður Orri Þorsteinsson
Björn Björgvin Jónsson
Guðlaug Bergþóra
Karlsdóttir
Guðmundur Ingi
Magnússon
István Csösz
Margrét Gunnarsdóttir
Sesselja Guðrún
Sveinsdóttir
Sigfús Kristinsson
Valdór Jóhannsson
Wladyslaw Stanislaw
Demko
50 ára
Aðalheiður
Sveinbjörnsdóttir
Artúras Stankevicius
Birgit Myschi
Björn Stefánsson
Elfa Björk Sævarsdóttir
Guðrún Harðardóttir
Hólmfríður Th.
Brynjólfsdóttir
Jacqueline Monika
Gudgeirsson
Jakob Guðmann Jakobsson
Katrín Úlfarsdóttir
Ólafur Magnússon
Sigurjón Kristinsson
Svanborg Þórdís
Frostadóttir
40 ára
Guðmundur Ragnar
Hannesson
Helgi Páll Svavarsson
Jóna Valdís Ólafsdóttir
Matthías Þórarinsson
Sigurborg Matthíasdóttir
30 ára
Agnieszka Karolina
Makowska
Ari Hrafn Jónsson
Ástrós Guðmundsdóttir
Berglind Guðný Kaaber
Berglind Inga
Gunnarsdóttir
Björn Halldór Helgason
Bragi Rúnar Jónsson
Dariusz Lelonek
Elínbjörg Helgadóttir
Erik William Parr
Gyða Arna Halldórsdóttir
Hafsteinn Már Másson
Heiða Björk Ingvarsdóttir
Hilmir Hjaltason
Kjartan Yngvi Björnsson
Sigurður Stefánsson
Valdís Kristjánsdóttir
Til hamingju með daginn
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Fjarðarkaup, Hagkaup og Melabúðinn brokkoli.is
Af hverju
brokkolí?
Heilbrigðar frumur – heilbrigður líkami
Líkaminn verður stöðugt fyrir árásum sindurefna sem skaða frumur okkar. Þessar sködduðu frumur skipta sér líkt og
heilbrigðar frumur og er það ferli talin meginorsök fyrir ótímabærri öldrun, hrukkumyndun og gæti leitt til fjölda sjúkdóma.
Margfalt áhrifaríkara en nokkur andoxunarefni í fæðunni
Árið 1992 uppgötvuðu vísindamenn ensímið sulforaphane í brokkolí sem virkjar líffræðilega ferlið í
frumum líkamans – það sem veitir frumunum vernd gegn skaðlegum áhrifum og stuðlar að endurnýjun þeirra.
Ferlið sem sulforaphane úr brokkolí hrindir af stað er þekkt undir vísindaheitinu Nrf2. Það hjálpar líkamanum að
auka framleiðslu eigin andoxunarefna sem er margfalt áhrifaríkara en nokkur andoxunarefni í fæðunni!
Ensímið sulforaphane í brokkolí kann að vera einn öflugasti hvatinn á
varnarkerfi líkamans sem verndar og styrkir frumur okkar og vinnur
þannig gegn ótímabærri öldrun, hrukkumyndun og ýmsum sjúkdómum.
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Í Cognicore er áhrifaríkustu efnunum úr brokkolí safnað saman eina í töflu.
Það inniheldur sulforaphane úr lífrænt ræktuðum brokkolí spírum að
viðbættu túrmeric og selenium.
Daglegur skammtur af Cognicore Daily tryggir þessa stórkostlegu virkni sem
sulforaphane úr brokkolí hefur á varnarkerfi líkamans.
Einföld leið til að njóta þess áhrifaríkasta úr brokkolí!