Morgunblaðið - 15.03.2014, Side 52
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þórir Kolka Ásgeirsson gaf sér vart
tíma til þess að líta upp í gær vegna
anna við að setja upp málverk á Café
Haití við Geirsgötu í Reykjavík, en
klukkan 14.00 í dag opnar hann þar
fyrstu einkasýningu sína. „Ég veit
ekkert skemmtilegra en að teikna,“
segir listamaðurinn, sem er 14 ára
og sýnir um 20 myndir á sýningunni.
Þórir, sem er í 8. bekk í Laugar-
lækjarskóla, eyðir öllum frístundum
sínum í að mála. „Ég hef teiknað í
rúm tíu ár margt fólk alls staðar að
og síðan landslag frá því fyrir um
tveimur árum,“ segir hann um verk-
in. „Ég hef blómstrað í listinni og
þess vegna langaði mig til þess að
halda sýningu, þar sem ég er með
svo margar myndir og mér finnst að
þær þurfi að njóta sín einhvers
staðar.“
Margir segja að börn séu bestu
málararnir, því þau máli hlutina eins
og þau sjá þá án þess að vera bundin
af einhverjum reglum. Þórir segir að
hann hafi strax ánetjast listinni.
„Þegar ég fékk blýant og blað byrj-
aði ég strax að teikna og fannst það
ótrúlega skemmtilegt,“ segir hann.
Hann bætir við að hann hafi haldið
mörgum gömlum myndum til haga
og til dæmis séu til mjög flottar
abstraktmyndir, sem hann gerði í
æsku, eins og til dæmis mynd af
hesti sem eigi að vera maður. Mynd-
irnar á sýningunni eru þó allar ný-
legar en hann segir að það hafi verið
töluverður vandi að velja þær bestu
úr til þess að hengja upp.
Málar úti í náttúrunni
Jóhannes Kjarval var þekktur
fyrir að setjast með sjálfum sér úti í
hrauni og mála umhverfið á staðn-
um. Þórir segist líka kunna best við
sig að mála úti í ósnortinni nátt-
úrunni. „Mér finnst skemmtilegast
að mála landslag,“ segir hann. „Ég
vil helst fara út fyrir borgarsvæðið,
á staði þar sem er engin byggð eins
og til dæmis í Straumsvík og Gálga-
hrauni, þar sem maður nær að fanga
landslagið án þess að fólk sé fyrir
manni. Það er líka leiðinlegt að mála
þar sem hús skyggja á landslagið.
Ég er ekki svona húskarl.“
Þórir vinnur með þurrkrít og
blýant. Hann segist gera útlínurnar
á vettvangi en vinni síðan betur úr
verkinu heima. „Ég mála aldrei eftir
ljósmynd því það er óekta,“ segir
hann. Þórir bætir við að hann hafi
lært að beita pastellitum á nám-
skeiði í myndlistarskóla en annars
hafi hann þróað listina með sjálfum
sér. „Þessir litir eru ómissandi.“
Sýninguna kallar hann „Það sem
augun sjá og hugurinn skynjar“ og
stendur hún til 29. mars.
Skemmtilegast að teikna
Þórir Kolka 14
ára opnar sýningu
á Café Haití
Ungur listamaður Þórir Kolka Ásgeirsson er 14 ára og opnar sína fyrstu einkasýningu á Café Haití í dag.
Málverk Þórir segir skemmtilegast að mála landslag í ósnortinni náttúru.
LAUGARDAGUR 15. MARS 74. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fékk 12 fullnægingar á dag
2. Var vélinni lent?
3. „Nýjar upplýsingar“ og leit …
4. Þeir flugu farþegaþotunni
Í tilefni af Mottumars hefur þunga-
rokkssveitin DIMMA ákveðið að gefa
sérsmíðaðan hljóðnemastand
Stefáns Jakobssonar söngvara á
uppboð til styrktar baráttunni gegn
krabbameini.
Hljómsveitin Dimma
styrkir Mottumars
Bernd Ogrodnik
brúðulistamaður
er nú kominn
heim eftir tveggja
mánaða leikferð
yfir endilangt
Kanada. Í för með
Bernd voru Pétur,
úlfurinn og annað
frítt föruneyti og
skemmtu þau um 40.000 börnum á
um 100 sýningum.
Af þessu tilefni verður sýningin um
Pétur og úlfinn í boði um næstu helgi
á Brúðuloftinu en eingöngu er um
þennan eina dag að ræða.
Pétur og úlfurinn
mæta á Brúðuloftið
Síðasta sýning á Ómar æskunnar
með Ómari Ragnarssyni verður í Gafl-
araleikhúsinu á morgun, sunnudaginn
16. mars kl. 20.00. Sýningin er bráð-
fyndin úttekt Ómars á æskuárum sín-
um, Reykjavík stríðs- og eftirstríðs-
ára og alveg einstaklega
skemmtilegum og sér-
kennilegum ein-
staklingum sem höfðu
áhrif á hann í æsku og
mótuðu viðfangsefni
hans, fólk og
fyrirbæri, síðar
meir.
Síðasta sýning Ómar
æskunnar á morgun
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 10-18 m/s fyrst á Suðvesturlandi en hægari annars
staðar. Snjókoma á Norður- og Austurlandi fram eftir degi, annars rigning eða súld.
Á sunnudag Vestan 8-15 m/s, en hægari nyrst. Úrkomulítið á Suðausturlandi og Aust-
fjörðum, annars snjókoma eða él. Kólnandi veður, frost víða 1 til 5 stig síðdegis.
Á mánudag Norðan 5-13 m/s, en vestlægari sunnanlands. Él fyrir norðan og vestan,
annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum.
Handknattleiksmaðurinn Róbert
Aron Hostert hjá ÍBV mun að öllum
líkindum spila með Mors-Thy í Dan-
mörku næsta vetur. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
Róbert gert upp hug sinn, en aðeins á
eftir að skrifa undir samninginn. Það
verður þó væntanlega gert strax um
helgina. Fyrir hjá Mors-Thy er Guð-
mundur Árni Ólafsson. »1
Róbert Aron á leið til
Mors-Thy í Danmörku
Á síðustu dögum hafa hand-
boltamenn rætt um hugsan-
lega fjölgun keppnisliða í úr-
valsdeild karla, Olís-deildinni, í
handknattleik á næsta keppn-
istímabili. Umræður um fjölg-
un í deildinni hafa verið árlegar
undanfarin ár og á tíðum hafa
menn hreinlega viljað gera
breytingar eftir á, yfirleitt af
því að það hefur þjónað hags-
munum félaga þeirra að fjölg-
að verði í efstu deildinni. »4
Þörf breyting eða
stundarhagsmunir?
Handboltamaðurinn Agnar Smári
Jónsson var lánaður frá Val til ÍBV í
haust og hann hefur látið til sín taka
með Eyjamönnum. Agnar skoraði 10
mörk gegn FH í fyrrakvöld og er
leikmaður umferðarinnar hjá
Morgunblaðinu. „Það kom mér
hrikalega á óvart hversu gott það
er að búa í Eyjum,“ segir Agnar
Smári sem stundar þar nám og
þjálfar yngri flokka.
»2-3
Kom á óvart hversu gott
er að búa í Eyjum