Morgunblaðið - 05.04.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2014
Leggðu grunn að
framtíðinni og
Landsbankinn bætir
6.000 krónum við
Þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn
Landsbankans greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag inn á sama reikning.
Þannig viljum við hvetja til sparnaðar.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Sjötíu fyrirtæki
og stofnanir hafa
nú bæst í hóp
þeirra sem bjóða
viðskiptavinum
sínum að auð-
kenna sig í gegn-
um farsíma. Ríf-
lega þúsund
viðskiptavinir
Símans hafa
þegar virkjað
SIM-kortin sem persónuskilríki.
Meðal þeirra fyrirtækja sem nú
bjóða viðskiptavinum sínum að
auðkenna sig í gegnum farsíma eru
Orkuveita Reykjavíkur, Trygg-
ingastofnun, Rafræn Reykjavík og
Vinnumálastofnun. Tugir fram-
haldsskóla bjóða nemendum sínum
að auðkenna sig með þessum
hætti.
Öll ný SIM-kort frá Símanum
urðu skilríkjahæf í nóvember –
rétt eins og debetkort eru. Tutt-
ugu þúsund viðskiptavinir Símans
hafa réttu SIM-kortin fyrir auð-
kenninguna, samkvæmt upplýs-
ingum Símans. Flestir þurfa að
virkja þau sérstaklega til að nýta
skilríkin í viðskiptum á netinu.
Einfalda viðskipti á netinu
Persónuskilríki í símanum eru
talin öruggt auðkenni og þau ein-
falda viðskipti á netinu þar sem
þau gera öll notenda- og lykilorð
óþörf. Aðeins þarf að muna eitt
pin-númer, sama hvert þjónustan
er sótt. Þau má nota bæði sem auð-
kenningu og til undirritunar.
Ekki þarf kortalesara, sérstakan
hugbúnað eða öpp til að nýta far-
símaskilríkin, aðeins þarf að hafa
farsímann við höndina.
Sjötíu taka
farsíma-
skilríki gild
Skilríki Fólk notar
farsímana.
Öll ný símakort
Símans skilríkjahæf
Fríkirkjan í
Hafnarfirði efnir
til kvöldvöku í
kirkjunni næsta
sunnudagskvöld
kl. 20 í tilefni
þess að 400 ár
eru liðin frá
fæðingu sálma-
skáldsins Hall-
gríms Péturs-
sonar. Karl
Sigurbjörnsson biskup mun flytja
hugleiðingu um ævi Hallgríms og
verk. Kirstín Erna Blöndal söng-
kona og Gunnar Gunnarsson org-
anisti flytja tónlist við ljóð Hall-
gríms ásamt kór kirkjunnar.
Kvöldvakan er öllum opin og fólk
hvatt til að mæta, nú þegar stytt-
ist í lok föstunnar, þar sem Pass-
íusálmarnir hafa fylgt þjóðinni í
gegnum aldirnar, segir í tilkynn-
ingu.
Kvöldvaka í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
Karl
Sigurbjörnsson
Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri fjárfestinga-
bankasviðs Glitnis, var á meðal
vitna í Aurum-málinu í gær, en
tölvupóstar hans til samstarfs-
manna sinna um Aurum voru til um-
fjöllunar hjá héraðsdómi. Hlutverk
Einars hjá Glitni var meðal annars
að leggja mat á virði óskráðra hluta-
bréfa, en mundi ekki eftir neinni að-
komu að lánveitingunni.
Saksóknari spurði Einar hvort að
hann hefði skoðað virði Aurum.
Sagðist hann ekki hafa gert það
nema mjög hrátt. Hann hefði verið
á fundi í bankanum þar sem fulltrúi
Baugs hefði einnig verið og forstjóri
bankans, þar sem málið hefði verið
rætt ásamt fleiri málum. Einar Örn
sagði að sér hefðu verið rétt gögn
sem hann blaðaði í og hann hefði
myndað sér skoðun á virði Aurum í
kjölfarið. Hann mundi ekki hver sú
skoðun var. Hins vegar kom fram
að Einar hafði sent tölvubréf til
Lárusar Welding, þáverandi banka-
stjóra Glitnis, þar sem virði Golds-
mith (Aurum) var áætlað nær einum
og hálfum milljarði en fjórum. Sagði
í bréfinu að hinn „góði eigandi“ væri
að setja Lárus í erfiða stöðu með því
að halda öðru fram. Var þar átt við
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Í öðru tölvubréfi til Lárusar, sem
sent var kl. 23.35 daginn eftir að
lánveitingin var samþykkt, spurði
Einar Örn hvort ekki væri einfald-
ara að lána Pálma Haraldssyni tvo
milljarða til að fela á Cayman-
eyjum í stað þess að fara í þessar
Aurum-æfingar.
Óttar Pálsson, verjandi Lárusar,
spurði hvort tölvubréfin væru sett
fram í hálfkæringi. Þá sagði Einar
að það mætti segja að hann hefði
haft óvenjulegan stíl í bæði ritmáli
og talmáli til þess að vekja athygli
á því sem hann vildi koma á fram-
færi. „Þannig að það má ekki taka
allt bókstaflega sem ég er að
segja,“ sagði Einar og bætti við að
hann væri þekktur fyrir að vera
svolítið hvatvís. Spurður beint
hvort ekkert væri þá að marka
verðmatið upp á 1,5 milljarða sagði
Einar þetta ekki hafa verið „grun-
digt verðmat“, heldur hvatningu til
Lárusar til að skoða málið gaum-
gæfilega. Með Cayman-eyja póst-
inum hefði Einar svo verið að brýna
Lárus til góðra verka. Hann hefði
verið að benda á að ekki hefði allt
verið í blóma hjá þessum aðilum og
það þyrfti því að fara varlega.
sgs@mbl.is
„Hvatvísir“ tölvupóstar til umfjöllunar
Fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs mat Aurum nær 1,5 milljörðum en fjórum