Morgunblaðið - 01.05.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014
„Ég fagna þeirri samstöðu sem loks-
ins náðist, bæði um baráttuaðferðir
og um það að fá heimild til að útvíkka
framboðið, til flugvallarsinnanna, sem
nú heita að vísu flugvallarvinir,“ sagði
Guðni Ágústsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins og land-
búnaðarráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hann sat fund stjórnar kjördæm-
issambands Framsóknarflokksins í
Reykjavík í fyrrakvöld, þar sem fram-
boðslisti flokksins var kynntur undir
nafninu „Framsókn og flugvallarvin-
ir“. Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, héraðsdómslögmaður, formað-
ur Landssambands framsóknar-
kvenna og varaþingmaður flokksins,
skipar fyrsta sæti listans, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í gær
og þrjár konur skipa næstu þrjú sæt-
in á listanum.
Sveinbjörg Birna sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gær vera mjög
ánægð með niðurstöðu fundarins í
fyrrakvöld. Hún hefði komið til lands-
ins aðfaranótt sl. laugardags og á
sunnudagskvöldið hefði henni verið
veitt umboð til þess að leiða listann.
„Ég frétti fyrst af tillögu Guðna
Ágústssonar á laugardaginn, í fjöl-
miðlum og leist strax mjög vel á hug-
mynd hans um flugvallarsinna, sem
ég kýs að kalla flugvallarvini. Ég held
að mér sé óhætt að segja að mér hafi
tekist að sannfæra stjórn kjördæm-
issambands Framsóknarflokksins um
að við ættum að fara að tillögu Guðna,
opna framboðið og bjóða til liðs við
framboðið hér í Reykjavík flugvallar-
vinum,“ sagði Sveinbjörg Birna.
Hef aldrei gagnrýnt konur
Guðni leggur áherslu á að það sé
eitt stærsta hagsmunamál landsins,
að Reykjavíkurflugvöllur fái áfram að
vera í Vatnsmýrinni. Aðspurður hver
hafi verið ástæðan fyrir því að stjórn
kjördæmissambandsins hafi snúist
hugur og ákveðið að ekki yrði um
„hreint Framsóknarframboð“ að
ræða, heldur framboð „Framsóknar
og flugvallarvina“ sagði Guðni:
„Menn læra af reynslunni. Vitrir
menn hafa auðvitað knúið fram þessa
niðurstöðu með því að segja að það
væri mjög heppilegt fyrir flokkinn að
opna sitt framboð, eins og Framsókn-
arflokkurinn gerir víða um land, og fá
fleiri hagsmunaaðila og baráttufólk til
liðs við sig.“ Guðni er ánægður með
þá áherslu sem framboðið ætlar að
leggja á áframhaldandi veru Reykja-
víkurflugvallar í Vatnsmýrinni, sem
sé eitt brýnasta hagsmunamál þjóð-
arinnar. Guðni var spurður hvort
hann teldi heppilegt fyrir framboðið
að fjórar konur skipuðu efstu fjögur
sæti framboðslistans í Reykjavík.
„Ég hef aldrei gagnrýnt konur og
stend með þeim,“ svaraði Guðni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gær
náðist ekki í Þóri Ingþórsson, for-
mann stjórnar kjördæmissambands-
ins. agnes@mbl.is
Guðni segir menn
læra af reynslunni
Nýr oddviti Framsóknar kveðst hafa sannfært stjórnina
Guðni
Ágústsson
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
Vinsælu broste Copenhagen vörurnar komnar aftur!
Fást í næstu blóma- og gjafavöruverslun
www.danco.is
Heildsöludreifing
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
M
b
l1
49
71
85
föstudag og langan laugardag
30% afsláttur
af sumarblússum, leðurjökkum,
hálfermaskyrtum og pólóbolum
Laugavegi 54, sími 552 5201
Fleiri myndir á facebook
Helgarbrjálæði
30% afsláttur
af öllum vörum föstud. og laugardag
Túnikka áður 11.990 kr.
Nú 7.990 kr.
Kjóll áður 14.990 kr.
Nú 9.990 kr.
Framboðslisti Framsóknar og flug-
vallarvina í Reykjavík var kynntur á
blaðamannafundi á Reykjavík-
urflugvelli í gær. Það var gert til að
undirstrika áherslu framboðsins á
að flugvöllurinn verði áfram í Vatns-
mýri. Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir skipar efsta sætið, Guðfinna
Jóh. Guðmundsdóttir er í öðru sæti
og Gréta Björg Egilsdóttir er í því
þriðja.
Eftir að listinn hafði verið kynnt-
ur stigu þrír efstu frambjóðendurnir
upp í flugvélar og hófu sig á loft
ásamt flugkennara. Floginn var
hringur yfir höfuðborgarsvæðið.
Frambjóð-
endur á flug
Morgunblaðið/Þórður
Flug Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir fer í loftið á Reykjavíkurflugvelli.
Samtökin Hjartað í Vatnsmýri
fagna því að þrjú framboð hafi tek-
ið afstöðu með meirihluta borg-
arbúa og landsmanna í máli flug-
vallarins í Vatnsmýri. „Átökin um
flugvöllinn hafa sjaldan verið eins
skýr og er flugvöllurinn stærsta
mál komandi kosninga,“ segir í yf-
irlýsingu samtakanna. Tekið er
fram að Hjartað styðji hvern þann
sem leggur vellinum lið í pólitískri
baráttu og hvetur alla frambjóð-
endur til þess að taka sér varðstöðu
með borgarbúum og landsmönnum
öllum um mikilvægasta flugvöll
landsins í Vatnsmýri.
Flugvöllurinn stærsta mál kosninganna