Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 121. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Öllum starfsmönnum sagt upp 2. Rifust heiftarlega fyrir morðið 3. Magnús Scheving kominn á fast 4. Gjaldþrot heillar blokkar í Árbæ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  EVE Fanfest, hátíð og ráðstefna fyrirtækisins CCP sem kennd er við tölvuleik þess, EVE Online, hefst í dag í Hörpu og stendur til og með 3. maí. Búist er við því að um 1.500 er- lendir gestir sæki hátíðina í ár, þar af yfir 90 blaðamenn og hafa þeir aldrei verið svo margir á hátíðinni. Búist er við því að 3.000 manns sæki hátíðina sem haldin er í tíunda sinn í ár. Leik- menn EVE Online eru þar í meirihluta og eru áskrifendur leiksins nú orðnir rúm hálf milljón. Dagskrá hátíð- arinnar verður sýnd í beinni útsend- ingu á vefjunum EVE TV og Twitch- tv.com. Um 280.000 manns horfðu á útsendinguna frá hátíðinni í fyrra. Á myndinni sjást nokkrir vígalegir gest- ir á hátíðinni árið 2009. Morgunblaðið/Golli 1.500 erlendir gestir og yfir 90 blaðamenn RIFF fer fram að hluta í Kópavogi Á föstudag Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en suðaustan 5-10 m/s með suðvesturströndinni og skýjað. Hiti 4 til 10 stig, en allvíða næturfrost um landið norðan- og austanvert. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða létt- skýjað, en skýjað við suðurströndina. Hiti 5 til 11 stig yfir daginn, svalast suðaustantil á landinu. VEÐUR „Ég man eftir því að þegar ég lék með Njarðvík á sínum tíma þá varð eitt sinn 77 stiga sveifla á milli leikja okkar við Keflavík um Ís- landsmeistaratitilinn. Mikl- ar sveiflur þekkjast vel á milli leikja í úrslitakeppn- inni þar sem spennustigið er hátt,“ segir Teitur Ör- lygsson sem spáir því að oddaleikur verði um Ís- landsmeistaratitilinn í körfuknattleik. »2 Rimmunni lýkur ekki í Grindavík Emil Atlason, sóknarmaður Íslands- meistara KR í knattspyrnu, er kominn til Leicester City þar sem hann verð- ur til skoðunar næstu dagana en Leicester tryggði sér fyrir nokkru sæti í ensku úrvalsdeildinni. Emil mun missa af fyrsta leik KR-inga í Pepsi-deildinni sem hefst á sunnudaginn. »1 Emil Atlason spreytir sig hjá Leicester Það verður leikið til þrautar í dag í oddaleikjunum tveimur í undan- úrslitum Íslandsmóts karla í hand- knattleik. Þá mætast Haukar og FH annarsvegar og ÍBV og Valur hins- vegar. Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Fram, spáir í spilin og reiknar með að heimaliðin vinni leiki dagsins. „Eyja- menn eru komnir á bragðið,“ segir Guðlaugur. »4 Leikið til þrautar á tvennum vígstöðvum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Líney Arnórsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, er fyrsta íslenska konan sem er tekin inn í meistara- nám í viðskiptafræði (Master of Business Administration) við Stan- ford-háskólann í Kaliforníu í Banda- ríkjunum, en hún byrjar í náminu í haust. „Íslandsstofa er eflaust einn besti vinnustaður á landinu og ég hef öðlast ómetanlega reynslu með því að eiga hlut í uppbyggingu ferða- þjónustunnar,“ segir hún. „Eftir að hafa unnið að þessari kynningu á Ís- landi finnst mér beinlínis að ég hafi náð toppnum í almannatengslum hérlendis. Því sótti ég um þetta nám til þess að geta haldið áfram að vaxa.“ Líney segir að fyrirhugað nám í Stanford sé það besta sem boðið er upp á á þessu sviði í heiminum. „Yfir 7.000 manns sækja um árlega og um 400 þeirra eru teknir inn eða um 6% umsækjenda. Engin íslensk kona hefur verið tekin inn í námið til þessa en þrír íslenskir karlmenn.“ Missti af símtalinu Líney gekk frá samningi við skól- ann um nýliðna helgi, en nemendur sem voru teknir inn fengu að vita það fyrir skömmu. Hún vissi hvaða dag hringingarnar ættu sér stað og þegar klukkan var 12 á hádegi hugs- aði hún með sér að hún gæti farið í mat því klukkan væri bara fimm að morgni í Kaliforníu og maðurinn ekki byrjaður að hringja. „Ég fór frá símanum í 15 mínútur og þegar ég kom aftur hafði ég misst af einu sím- tali – frá skólanum. „Nei, sagði ég við sjálfa mig, ég trúi þessu ekki!“ En hann hafði lesið inn skilaboð og tilkynnti þar að ég hefði verið tekin inn. „Það tók mig langan tíma að átta mig en ég varð auðvitað himin- lifandi. Draumurinn hafði ræst.“ Líney hefur búið erlendis lengst af. Hún er dóttir hjónanna Guðrúnar Matthíasdóttur og Arnórs Sigur- jónssonar, starfsmanns utanríkis- ráðuneytisins og nú varnarmálafull- trúa Íslands hjá NATO í Brussel. „Á Íslandi er oft litið á mig sem amer- íska, en í Bandaríkjunum er ég svo gjarnan sú íslenska. Ég passa samt inn í hvaða umhverfi sem er þar sem mér hefur verið hent inn í nýtt sam- félag á þriggja ára fresti. Ég bjarga mér alls staðar en mér líður best í borgum þar sem menn eru flökku- hundar með mismunandi bakgrunn og/eða koma frá mörgum löndum eins og ég. Það var mjög gott fyrir mig að koma til Íslands og vinna hérna, ekki síst til þess að læra tungumálið almennilega og kynnast landinu og náttúrunni, en draum- urinn er að vinna að markaðsmálum hjá fyrirtækjum eins og Disney eða Paramount. Ég er heimsborgari og heimurinn er heimili mitt.“ Heimurinn er hennar heimili  Fyrsta íslenska konan í MBA-námi í Stanford Morgunblaðið/Þórður Atorkukona Líney Arnórsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu og annar framkvæmdastjóra Iceland Naturally. Líney Arnórsdóttir, verkefn- isstjóri hjá Íslandsstofu og ann- ar framkvæmdastjóra Iceland Naturally, er mikil námskona. Hún hóf skólagöngu erlendis, var í alþjóðaskóla í Brussel í Belgíu og tók síðan stúdentspróf 17 ára eftir tveggja ára nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð 2001. Hún nam sálfræði við Há- skóla Íslands og útskrifaðist sem semidúx 2007. Þaðan lá leiðin til Flórída í Bandaríkj- unum, þar sem hún fékk Fulbrightstyrk vegna tveggja ára náms í almannatengslum við Há- skólann í Miami og varð þar dúx. Hún kenndi jafnframt við skól- ann en þaðan lá leiðin í sam- keppni 10 nýútskrifaðra ung- menna um eitt starf hjá Ketchum í New York, einu stærsta almannatengslafyrirtæki heims. Að loknum 10 vikna reynslutíma fékk hún starfið og vann þar í þrjú ár, en hefur verið hjá Íslandsstofu síðan 2012, þar sem hún hefur haft umsjón með umfjöllun um Ísland og verið tengiliður við Norður-Ameríku. Mikil námskona hér og þar LÍNEY ARNÓRSDÓTTIR VERKEFNISSTJÓRI  Dagskrá Alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í Reykjavík, RIFF, mun fara fram að hluta í menningarhúsum Kópavogsbæjar í haust. Samkomulag um samstarf Listhúss Kópavogs- bæjar, lista- og menningarráðs og RIFF var undirritað í Kópavogi í gær og nemur framlag lista- og menning- arsjóðs til hátíðarinnar 3,5 milljónum króna. Í Bókasafni Kópavogs verða sýndar kvikmyndir fyrir börn og við- burðir tengdir kvikmyndum verða á fleiri stöðum, m.a. í Salnum og Tón- listarhúsi Kópavogs. Þá verða haldin námskeið í kvikmyndagerð fyrir ungt fólk. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, segist afar þakklát og ánægð með samvinnuna við Kópavogsbæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.