Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014
Frídagur í miðri viku kemur sér vel núna þegar ég er í miðritörn við að skrifa lokaritgerð í náminu mínu. Samt ætla égað taka mér einhverja pásu og baka, ef vera skyldi að góðir
gestir litu hingað í heimsókn. Raunar er hefð fyrir slíku í minni fjöl-
skyldu,“ segir Soffía Magnúsdóttir sem er 31 árs í dag. Hún stundar
nám í sálfræði við Háskóla Íslands og brautskráist í júní næstkom-
andi ef allt fer að óskum.
Lokaverkefni Soffíu fjallar um líkamsskynjunarröskun, sem felur
í sér að þeir sem glíma við hana eru uppteknir af vægu lýti eða jafn-
vel lýti, sem er ekki til staðar, í útliti sínu, sem veldur vanlíðan og
hömlun. „Sálfræðileg meðferð er talin hafa góð áhrif á þessa líðan,
sem getur haft víðtæk neikvæð áhrif á líf, störf og lífsgæði,“ segir
Soffía sem er að ljúka námi sem veitar starfsréttindi sálfræðings.
Áhugamálin segir Soffía meðal annars tengjast sálfræðinni, í frí-
stundum lesi hún gjarnan bækur sem fræðunum tengjast. Sér þyki
einnig gaman að hlusta á tónlist.
„Mér finnst sérstaklega gaman að hlusta á gamlar eðalsveitir í
rokkinu eins og Led Zeppelin og Pink Floyd,“ segir Soffía sem er í
sambúð með Salvari Guðgeirssyni. Þau eru barnlaus og eiga heima í
Reykjavík. sbs@mbl.is
Soffía Magnúsdóttir er 31 árs í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sál „Mér finnst sérstaklega gaman að hlusta á gamlar eðalsveitir í
rokkinu,“ segir Soffía Magnúsdóttir sem á afmæli einmitt í dag.
Frídagurinn góður
til ritgerðarskrifa
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kristíne E. Jóhanns-
dóttir og Þorsteinn
G. Húnfjörð áttu 60
ára brúðkaupsafmæli
26. apríl.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barna-
barnabörn senda
innilegar ham-
ingjuóskir.
Árnað heilla
Demants-
brúðkaup
Ísafjörður Mario fæddist 6. júlí kl.
8.47. Hann vó 3.360 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans eru Pane og
Nikica Ilievski.
Nýir borgarar
Hveragerði Emilía Guðbjörg fæddist
12. febrúar kl. 22.59. Hún vó 3.395 g
og var 51 cm löng. Foreldrar hennar
eru Hjördís Harpa Wíum Guðlaugs-
dóttir og Tryggvi Hofland Sigurðsson.
G
unnar fæddist í Reykja-
vík 1. maí 1964 og flutt-
ist í Árbæjarhverfið
1966, ólst þar upp og
býr þar enn þann dag í
dag og er auðvitað mikill Fylkis-
maður.
„Það var gott að alast upp í Ár-
bænum, til þess að gera lítið sam-
félag þar sem allir þekkja alla líkt
og víða úti á landi. Hérna var allt til
alls, öllum leið vel og auðvitað mikið
líf í hverfinu þegar það var að
byggjast upp, stútfullt af krökkum
alls staðar. Þéttur vinahópur sem
heldur góðu sambandi enn í dag
segir margt.“
Foreldrar Gunnars eru ættaðir
austan úr Rangárvallasýslu og
þangað sótti hann mikið. „Sumrin í
æsku voru þó nokkur á Fit undir
Eyjafjöllum þar sem ég á skyldfólk
og góða vini og vildi heimsækja oft-
ar en ég geri. Að fá tækifæri til að
vera í sveit og kynnast og vinna al-
menn bústörf eru í raun forréttindi
og góður undirbúningur fyrir lífið.
Og því ekki skrítið þótt maður hafi
sótt mikið í Eyjafjöllin síðan því
Gunnar Viggósson, rafiðnfræðingur í Reykjavík – 50 ára
Á heimsmeistaramóti í ralli Gunnar og félagar ásamt Petter Solberg, fyrrverandi heimsmeistara í rallakstri.
Alparnir eru himnaríki
Á skíðum Hjónin Gunnar og Elsa Kristín á björtum degi í Hlíðarfjalli.
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is