Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Skátarnir bjóða gestum í miðbæ Reykjavíkur upp á skemmtilegan ratleik í kringum Tjörnina í dag, fimmtudag 1. maí kl. 12.00- 18.00, í tengslum við Barnamenn- ingarhátíð. Þeir sem taka þátt leysa 10 skátaþrautir sem reyna á útsjón- arsemi, samvinnu og að hugsa út fyrir kassann. „Við hvetjum fjöl- skyldur, börn og fullorðna til að koma saman í Ævintýrahöllina í Iðnó og taka þátt í skemmtuninni með skátunum okkar,“ segir í til- kynningu. Boðið upp á ratleik kringum Tjörnina Háskólinn á Bifröst verður með op- inn dag fimmtudaginn 1. maí, milli 14.00-17.00. Á opna deginum verð- ur námsframboð skólans kynnt og boðið verður upp á fjölskyldu- skemmtun á sama tíma. Þá verður boðið upp á göngu- ferðir um þorpið og skólann þar sem hægt verður að fræðast um sögu skólans. Einnig verður hægt að skoða allar byggingar skólans, aðstöðu nemenda og umhverfið í kringum skólann. Sviðsstjórar allra deilda munu vera á staðnum til að kynna námið ásamt kennurum, nemendum og starfsmönnum. Skólinn var stofnaður 1918 í Reykjavík og hét þá Samvinnuskól- inn. Þúsundir Íslendinga hafa menntað sig í skólanum í gegnum áratugina en skólinn hefur þróast og breyst eftir þörfum hvers tíma. Háskólinn á Bifröst heldur opinn dag STUTT Landvernd, önnur umhverfisvernd- arfélög og ferða- og útivistarfélög efna til grænnar göngu 1. maí í samstarfi við stéttarfélög. Efnt er til göngunnar til að krefjast þess að almenningur hafi áfram eins og hingað til frjálsan aðgang að nátt- úru Íslands. Gengið verður aftast í 1. maí göngu stéttarfélaganna sem hefst kl. 13.30. Að dagskrá lokinni á Ingólfstorgi verður gengið að Al- þingishúsinu þar sem þúsund græn- um fánum verður stungið niður. Grænum fánum stungið niður Föstudaginn 2. maí verður „Reykjavík Got Talent“ í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er hæfi- leikakeppni fyrir unglinga á aldr- inum 13-16 ára en til þess að vera gjaldgeng í keppnina þurftu þau að fara í gegnum undankeppni í sinni félagsmiðstöð. Keppnin er byggð á „Breiðholt Got Talent“ sem hefur slegið í gegn hjá unglingum í Breiðholti í nokkur ár. Nafnið og hugmyndin er byggð á „Britain‘s Got Talent“ en útfærslan er með öðru sniði og fá áhorfendur í sal til að mynda að kjósa um besta atriðið. Unglingar og starfsmenn fé- lagsmiðstöðva í Reykjavík skipta með sér hlutverkum og eru starfs- menn í hlutverkum dómara en ung- lingarnir sjá um að kynna atriðin fyrir jafnöldrum sínum. Keppni verður kl. 19.30-22.30 og eru allir velkomnir á staðinn. Hæfileikaríkir ung- lingar í Ráðhúsinu Hæfileikar í Ráð- húsinu á morgun. Tveggja manna hljómsveitin Hund- ur í óskilum á tuttugu ára starfs- afmæli í ár en hún er skipuð þeim Ei- ríki Stephensen og Hjörleifi Hjartarsyni. Samstarfið er búið að vera óvenjulega farsælt af hljóm- sveit að vera, að sögn Hjörleifs. En hvernig varð sveitin til? „Þetta var nú svona eins og hljóm- sveitir verða til, í einhverju partíi sem hefur svo staðið í 20 ár. Við byrj- uðum í kringum Leikfélag Dalvíkur á sínum tíma og þá sem dinn- erhljómsveit. Valva Gísladóttir flautuleikari var með okkur í blá- byrjun og þá hét sveitin Valva og drengirnir. Svo þróaðist þetta og við breyttum um nafn eftir því hvaða tónlist við vorum að spila; Blóm og kransar var eitt nafn og Börn hins látna annað. En svo létum við prenta nafnspjöld og þá hét sveitin Hundur í óskilum og við erum ekki búnir með nafnspjöldin ennþá,“ segir Hjörleif- ur. „Við höfum aldrei tekið okkur mjög alvarlega en einhvernveginn höfum við verið að spila öll þessi ár, gefið út tvær hljómplötur en aðallega spilað tónlist eftir aðra í undarlegum útsetningum. Við höfum spilað mikið á árshátíðum og í skólum og á síðustu árum höfum við spilað í leikhúsum og verið með eigin leiksýningar.“ Framhald af Sögu þjóðar Hundur í óskilum hefur tvívegis fengið Grímuverðlaun fyrir tónlist í leikverki, fyrst 2010 fyrir tónlist í Ís- landsklukkunni í Þjóðleikhúsinu og árið 2012 fyrir tónlist í sýningunni Saga þjóðar sem þeir sýndu lengi í Borgarleikhúsinu. Áform eru uppi um að gera framhald af Sögu þjóðar. Þeir hafa sinnt Hundi í óskilum í aukavinnu en Eiríkur er skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar og Hjör- leifur hefur verið í kennslu en meira sinnt ritstörfum á seinni árum. Hafa þeir alltaf jafngaman af þessu? „Já, við höfum það. Annars erum við voða latir við að halda tónleika, orðnir miðaldra menn. Við spilum svolítið á árshátíðum en tókum okkur tak núna og bókuðum Rósenberg í nokkur skipti þetta árið svo við neyð- umst til að halda nokkra tónleika,“ segir Hjörleifur. Hundur í óskilum er með tónleika á Rósenberg á morgun, 2. maí, kl. 22. Hjörleifur segir enga plötu vera í bígerð í tilefni af tímamótunum en það sé jafnvel von á lagi í spilun. Spurður hvort hann sjái fyrir sér að Hundur í óskilum starfi í önnur tutt- ugu ár telur Hjörleifur það öruggt. „Þetta er orðinn hluti af lífi manns og því verður ekkert breytt á meðan heilsan leyfir.“ ingveldur@mbl.is Partíið hefur staðið í 20 ár Hundur í óskilum Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen.  Hljómsveitin Hundur í óskilum hefur starfað óslitið í 20 ár  Aldrei tekið sig mjög alvarlega  Tónleikar um helgina ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf. AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.