Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð HD 6/16-4 M HD 6/16-4 MX ■ Vinnuþrýstingur 30-160 bör ■ 230-600 ltr/klst ■ 15 m slönguhjól ■ Stillanlegur úði ■ Sápuskammtari ■ Túrbóstútur + 50% HD 10/25-4 S ■ Vinnuþrýstingur 30-250 bör ■ 500-1000 ltr/klst ■ Stillanlegur úði ■ Sápuskammtari ■ Túrbóstútur + 50% Ætlaðir til daglegrar notkunar Háþrýstidælur sturtusett Hitastýrt Verð frá kr. 66.900 Gæði fara aldrei úr tísku Stóra blöffið, til- lögur framsóknar- og sjálfstæðismanna, er núna að springa fram- an í kjósendur. Nið- urstaðan er ljós. Út- koman er hrærigrautur af út- þynntum skuldaleið- réttingum sem fáum gagnast. Allra síst þeim sem á þurfa að halda. Hitt er hins vegar alveg ljóst að þær tillögur sem Hægri grænir settu fram eiga ennþá fullan rétt á sér. Þær eru skýrar og vel útskýrðar og þær hafa verið framkvæmdar í Bandaríkjunum með góðum árangri. Lendir alls ekki á ríkissjóði Skuldaleiðrétting Hægri grænna kostar almenning ekki krónu. Hún gengur út á það í stuttu máli að stofnaður verður sjóður í Seðla- banka Íslands sem kaupir allar íbúðaskuldir almennings, leiðréttir þær um allt að 45% til 50%, eftir því hvenær lánið var tekið, og breytir þeim í óverðtryggð lán á föstum vöxtum til allt að 75 ára. Íbúðareig- andinn einfaldlega velur árafjöldann sem passar honum, en markmiðið er að ekki meira en 20% af ráðstöf- unartekjum fólks fari í greiðslu á íbúðaláninu. En hvernig er þetta fjármagnað? Við gerum þetta eins og Bandaríkjamenn gerðu þetta. Seðlabankinn einfaldlega prentar peninga í þennan sjóð og lánar sjálf- um sér á til dæmis á 0,1% vöxtum. Vaxtamunurinn á þessum og inn- heimtum vöxtum sér um að fjár- magna sjóðinn. Skynsamlegar hliðarráðstafanir En hvað verður þá um peningana sem greiddir verða fjár- málastofnununum fyrir íbúðalánin? Skapar það ekki verðbólgu að af- henda bönkunum alla þessa milljarða? Nei, því þannig verður búið um hnútana að greiðsl- an til bankanna verður með 100% bindiskyldu til að byrja með. Það er að segja, bankarnir fá peningana greidda inn á reikning í Seðlabank- anum en geta ekki ráðstafað þeim nema með samþykki Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar. Áframhaldandi aðgerðir Í framhaldi af þessu skiptum við um gjaldmiðil og tökum upp ríkisdal og tengjum við dollar. Þar af leið- andi afnemum við verðtryggingu á neytendalánum á Íslandi. Síðan höf- um við Hægri grænir í hyggju að bjóða hrægammasjóðunum að skipta sínum gömlu krónum yfir í nýjar með til dæmis 75% afföllum og í framhaldi af því hrekja þá úr landi og endurskipuleggja íslenskt banka- kerfi. Skuldaleiðrétting Hægri grænna Eftir Helga Helgason Helgi Helgason » Íbúðareigandinn ein- faldlega velur ára- fjöldann sem passar honum, en markmiðið er að ekki meira en 20% af ráðstöfunartekjum fólks fari í greiðslu á íbúða- láninu. Höfundur er formaður Hægri grænna, flokks endurreisnar- og sjálfstæðissinna. Eftir 40 ára störf við verslun vann ég undirritaður á skrif- stofu borgarverkfræð- ings til starfsloka 1998. Á hans vegum var mér meðal annars falið að kanna eign- arheimildir ýmissa bygginga frá stríðs- árunum á flugvall- arsvæðinu, og einka- flugskýlanna sem leyfi fengust eftir stríð til að byggja nálægt Tí- volí-svæðinu. Þá sá ég að ríkið á mestan hluta flugvallarsvæðisins. Fram að því vissi ég ekki til að rætt hefði verið um annað, en að Reykjavíkurborg ætti allan flug- völlinn. Samkvæmt pappírum emb- ættisins og korti frá mælingadeild- inni merkti ég inn á kort úr símaskránni eignarhlut ríkisins af flugvallarsvæðinu. Þar kom í ljós að mesti hluti flugvallarins, ásamt mörgum byggingum hans, er á landi íslenska ríkisins. Fyrir fjórum árum völdu Reyk- víkingar það fólk sem þeir treystu best allra til að vinna að hags- munamálum höfuðborgarinnar og þar með þjóðarinnar allrar. Nú þegar ráðningartíminn er á enda telur hópurinn að stjórn hans á málefnum borgarinnar hafi tekist það vel að hann verði örugglega kosinn aftur. Borgarstjórnin er bú- in að skipuleggja og samþykkja byggingalóðir fyrir fjögur þúsund og fjögur hundruð íbúðir á svæði Reykjavíkurflugvallar. Fengið var álit erlends fyr- irtækis, á „Hagrænni og sam- félagslegri arðsemi“ af að reka flugvöllinn í burtu af svæðinu og allt sem honum tilheyrir. Með þessum glæsilegu framkvæmdum fullyrðir foringinn að Reykvíkingar græði 45 þúsund milljónir króna. Hann veit að landsvæðið sem helmingur íbúðanna á að vera á er alls ekki í eigu Reykjavíkurborgar og hann veit að það land er ekki til sölu – og verður ekki selt. Þegar blaðamaður benti for- ingjanum á að borgin ætti ekki landið, sagði hann eðlilegt að fulltrúi eigandans hefði athugasemdir við það, en þar væri um fyrirvara að ræða, og hann þyrfti að láta sérfræðinga sína ræða við fulltrúa eigenda og lagfæra orðalag og svo væri allt í lagi. Þegar spurt er: Hvert fer flugvöllurinn? Hver greiðir kostnaðinn við bygg- ingu nýs flugvallar? Hvað tekur mörg ár að byggja hann? Þurfum við kannski engan flugvöll? Þá virðist borgarstjórn Reykjavíkur ekki þurfa að svara. Þó skal þess getið að þrír borgarfulltrúar greiddu atkvæði gegn eyðileggingu Reykjavíkurflugvallar. Hvaða dulin öfl eru það sem hafa rænt þetta fólk heilbrigðri skynsemi? Reykvíkingar og Íslendingar allir Hér er langt kominn undirbún- ingur að gífurlegu skemmdarverki gegn þjóðfélaginu. Það mun leggja í rúst þá einstöku aðstöðu innan- landsflugs sem Reykjavíkur- flugvöllur er. Aldrei yrði sá skaði bættur, hversu miklum fjármunum sem til þess yrði varið. Aldrei munu afkomendur okkar geta fyr- irgefið okkur að horfa aðgerðar- laus á skemmdarvargana fram- kvæma það. Engan tíma má missa! Strax verður að hefjast handa og koma í veg fyrir þessi afglöp. Hafi einhverjar aðgerðir verið sam- þykktar, sem gætu falið í sér trufl- un á starfsemi Reykjavíkur- flugvallar, skal þess krafist að stjórnvöld felli þær nú þegar úr gildi. Ég er sannfærður um að það sé nauðsynlegt, öruggast, fyrirhafn- arminnst og ódýrast að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um Reykja- víkurflugvöll samhliða sveit- arstjórnarkosningum í maí. Þjóðin verði spurð hvort hún samþykki algert bann við öllum fram- kvæmdum sem gætu truflað starf- semi Reykjavíkurflugvallar á nokkurn hátt. Reykjavíkurflugvöllur og eign- arhlutur ríkisins í landi hans Eftir Óskar Jóhannsson »Hér er langt kominn undirbúningur að gífurlegu skemmdar- verki gegn þjóðfélag- inu. Óskar Jóhannsson Höfundur er fyrrverandi kaupmaður. Reykjavíkur- flugvöllur Landareign ríkisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.