Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þessi hópur var strax ein-róma um að fara alla leiðog safna fyrir prentunbókarinnar, en okkur var í sjálfsvald sett hvort við létum duga að fullvinna hana á rafrænu formi,“ segja þær Sigríður Ásta Árnadóttir og Ingibjörg Magnadóttir, en þær tilheyra hópi sem hefur nýlokið kúrs við Háskóla Íslands þar sem tvö fög mætast, ritlist og ritstjórn. Útkoman er bókin Flæðarmál sem inniheldur ljóð, prósa og smásögur eftir átta meistaranema í ritlist, en þeim var ritstýrt af sex meistara- nemum í ritstjórn. Sigríður Ásta er nemandi í ritstjórn en Ingibjörg í ritlist. „Það er gott fyrir þessa ólíku hópa að fá að kynnast vinnu hvor annars. Við vorum paraðar saman og samvinnan gekk mjög vel,“ segir Ingibjörg en þær Sigríð- ur Ásta voru samt ekki alltaf sam- mála. „Hún tók til dæmis út ljóð eftir sig sem ég vildi hafa með í bókinni,“ segir Sigríður Ásta og hlær. „Þær skiluðu fullt af textum sem við fórum í gegnum og við völdum það sem okkur leist á, en þessi vinna er fyrst og fremst sam- tal á milli þeirra sem skrifa og þeirra sem ritstýra. Höfundar texta áttu síðasta orðið.“ Það var grátið og hlegið Þær segja innihald bókarinnar einskonar bland í poka, þótt vissu- lega séu einhverjir þræðir sem tengist í gegnum alla bókina. „Eina sem er sameiginlegt er að við höf- undarnir erum allar konur,“ segir Ingibjörg. Sigríður Ásta segir að textarnir séu mjög ólíkir innbyrðis; allt frá því að vera fíngerðir og ljóðrænir upp í að vera þyngri vís- indaskáldskapur, og þarna séu líka hráar, kaldar og grófar frásagnir. „En við reyndum í uppsetningunni að búa til ákveðinn blæ í gegnum bókina. Hafið virðist koma víða við, í líkingamáli eða öðru, og þaðan kemur einmitt titill bókarinnar, Flæðarmál. Heitið vísar líka í að þetta er flæði af textum sem eru látnir mynda takt eða tónlist.“ Ingi- björg segir að ritlistarhópurinn hafi farið í vetur á námskeið hjá Vigdísi Grímsdóttur í Norðurfirði. „Þar er nú aldeilis haf, og textarnir sem urðu til á þessum slóðum voru und- ir áhrifum frá sjónum. Þessi dvöl hafði mikil áhrif á hópinn, við vor- um þarna í fjóra daga og skrifuðum stanslaust. Textana lásum við upp í hádeginu og á kvöldin og það var grátið og hlegið. Þetta var mögnuð galdraferð.“ Gæti opnað fyrir ýmislegt Þær Ingibjörg og Sigríður Ásta segjast vissulega stundum finna fyrir því ólseiga viðhorfi Ís- Sköpunarkraftur flóir í Flæðarmáli Nokkrar upprennandi skáldkonur fóru í galdraferð til Vígdísar Gríms í Norður- fjörð í vetur þar sem þær skrifuðu dagana langa. Hluta af þeim afrakstri má finna í bókinni Flæðarmál sem kemur út í lok mánaðar. Konurnar að baki bók- inni mættust í ritlist og ritstjórn í Háskóla Íslands. Þarna eru fíngerðir ljóðrænir textar, þyngri vísindaskáldskapur sem og hráar, kaldar og grófar frásagnir. Flæðarmál Mikið af efni bókarinnar varð til þegar hópurinn dvaldi í Norðurfirði hjá Vigdísi Grímsdóttur. Þar hafði nálægðin við hafið sín áhrif. Norðanmenn hafa löngum verið kall- aðir miklir söngmenn og nú er lag fyrir landsmenn bæði norðan heiða og sunnan að njóta radda þeirra sem syngja í Karlakórnum Heimi, því þeir verða með tvenna tónleika næstu helgi, í Skagafirði og í Hörpu. Enginn annar en hinn ástsæli Kristinn Sig- mundsson ætlar að syngja með þeim þetta vorið og því má búast við hörkutónleikum. Fyrri tónleikarnir verða laugardagskvöldið 3. maí í Menningarhúsinu Miðgarði í Skaga- firði og verða hluti af Sæluviku- dagskrá Skagfirðinga. Síðari tónleik- arnir verða sunnudaginn 4. maí í Eldborgarsal Hörpu við sundin blá. Þar hafa Heimismenn ekki sungið áð- ur en segjast munu verða líkt og á heimavelli þar sem litaval salarins tóni við einkennislit kórsins. Miða- sala á tónleikana fer fram á harpa.is, miði.is og í afgreiðslu Hörpu. Vefsíðan www.heimir.is Morgunblaðið/Kristinn Kristinn Hann ætlar að syngja af sinni alkunni snilld með kórnum um helgina. Heimismenn hljóma í Hörpu Sumarkomunni á Seltjarnarnesi er fagnað með fjölskyldudegi í Gróttu í dag frá kl. 13-15. KK spilar og syngur, harmonikkutónar óma um eyjuna, vöfflukaffi og flugdrekasmiðja. Í fræðasetrinu geta börn rannsakað og skoðað fjölbreyttar sjávarlífverur sem finna má í Gróttufjöru, það verð- ur andlitsmálun og hönnunarsýning. Opið verðu upp í vita. Ljósmynda- keppni verður um frumlegustu Gróttumyndina, hægt að senda hana: ljosmyndakeppni.selt@gmail.com Björgunarsveitin Ársæll sér um að ferja fólk sem ekki á auðvelt með að komast fótgangandi út í Gróttu. Endilega... ...njótið fjölskyldudags í Gróttu Morgunblaðið/Sverrir Gróttuviti Þangað er gaman að fara. Nóatún Gildir 02.- 04. maí verð nú áður mælie. verð Lambalærissneiðar úr kjötborði ........................ 2.098 2.398 2.098 kr. kg Lambalærissn. kryddaðar úr kjötb..................... 2.098 2.398 2.098 kr. kg Ungnauta-entrecode úr kjötborði ...................... 4.768 5.298 4.768 kr. kg Bleikjuflök úr fiskborði ..................................... 1.798 1.998 1.798 kr. kg Klausturbleikja úr fiskborði............................... 1.798 2.198 1.798 kr. kg ÍM kjúklingur ................................................... 798 969 798 kr. kg Ostakaka m/bláberjum ................................... 998 1.199 998 kr. stk. Krónan Gildir 01.- 04. apr verð nú áður mælie. verð Lúxus grísakótelettur úrb. erl............................. 1.299 2.198 1.299 kr. kg Grísahryggur úrb. erl. ....................................... 1.299 2.198 1.299 kr. kg Grísalundir erl. ................................................ 1.598 2.197 1.598 kr. kg Ungnautainnlæri erl......................................... 2.098 2.898 2.098 kr. kg Ungnauta rostbeef erl. ..................................... 2.098 2.898 2.098 kr. kg Ungn. hamborgarar 2x120g ............................. 459 498 459 kr. pk. Kjarval Gildir 01.- 04. maí verð nú áður mælie. verð Goða súpukjöt í poka frosið.............................. 798 998 798 kr. kg BN þorskblokkir frosnar ................................... 1.198 1.398 1.198 kr. kg SS Ítalskar lambalærissneiðar .......................... 2.958 3.698 2.958 kr. kg Bláberjaostakaka ............................................ 1.189 1.299 1.189 kr. kg Rose kjúklingalæri úrb. 70 g pk ........................ 1.498 1.598 1.498 kr. pk. Helgartilboðin Morgunblaðið/Árni Sæberg Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. SÍMI: 426 5560 WWW.BRYN.IS NETFANG: BRYN@BRYN.IS VORSÝNING BRYN 2014 LISTDANSSKÓLI REYKJANESBÆJAR BRYNBALLETT AKADEMÍAN Inntökupróf Framhaldsskóladeild Einnig er í boði að panta dýrari eintök sem eru árituð og við bjóðum fólki upp á að panta höfundana með bókinni heim í hús þar sem þeir lesa upp. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.