Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 11
Kraftakonur Sigríður Ásta og Ingibjörg voru paraðar saman í vinnunni við bókina og gekk það vel. lendinga að ekki sé hægt að læra að verða rithöfundur. „Fólk trúir því að annaðhvort búi fólk yfir þessari náðargáfu eða ekki, sem er undarlegt, því í öllum öðrum list- greinum finnst fólki eðlilegt að viðkomandi listamenn mennti sig og læri sitt fag, hvort sem það er myndlist, dans eða tónlist.“ Sigríður Ásta segir að eftir þessa samvinnu dauðlangi hana í ritlist. „Ég hef skrifað helling, blaða- greinar og handbækur, skemmti- efni og fleira, en ég hef aldrei leyft mér að gerast skáldleg. Ég er ekki frá því að það gæti opnað fyrir ým- islegt ef ég skellti mér í ritlistina,“ segir Sigríður Ásta sem kláraði meistaranám í hagnýtri menningar- miðlun í febrúar sl., þar sem hún skrifaði, tók upp og klippti heimild- armynd, gerði útvarpsþætti, lærði vefritstjórn, markaðsfræði og fleira. Ingibjörg er myndlistar- menntuð og hefur verið að skrifa gjörninga. Hún segist ekki hafa vit- að fyrirfram hvort ritlistarnámið hentaði sér. „Ég hefði einfaldlega hætt ef þetta hefði ekki hentað mér. En ég hef eingöngu skrifað ljóð og leikrit í þessu námi, ég get ekki hugsað mér að skrifa skáld- sögur. Ég fer þá leið sem hentar mér.“ Hægt að panta höfunda heim til að lesa upp Ein af konunum í ritlistar- hópnum, Halla Þórlaug Óskars- dóttir, sá um að brjóta bókina um og hanna kápu, en hún er með bak- grunn í myndlist eins og fleiri í hópnum. Einnig er ein leikkona í hópnum. „Krafturinn í þessum hópi er alveg ótrúlegur. Sköpunin flæðir fram,“ segir Sigríður Ásta og bætir við að til að geta prentað bókina hafi þær farið af stað með hóp- fjármögnun í gegnum Karolina Fund. „Söfnunin gekk vonum fram- ar og fyrir vikið getum við gefið bókina út harðspjalda. Ef fólk vill tryggja sér eintak á lágu verði, að- eins 2.500 kr., er hægt að panta eintak inni á Karolina Fund. Einnig er í boði að panta dýrari eintök sem eru árituð og við bjóðum fólki líka upp á að panta höfundana með bókinni heim í hús þar sem þeir lesa upp. Útgáfuhófið verður í lok maí þar sem fólk getur sótt bæk- urnar sem það hefur keypt og pantað á netinu.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Hin árlega kaffisala Kristniboðs- félags kvenna verður haldin í Kristni- boðssalnum á Háaleitisbraut 58-60 í dag og hefst kl. 14. Þar verða að vanda ljúfar kræsingar á boðstólum sem gott er að renna niður með kaffi- sopanum. Ágóði kaffisölunnar mun renna til kristniboðs, hjálpar- og þró- unarstarfs í Keníu og Eþíópíu. Mennt- un hefur alltaf verið mikilvægur þátt- ur í starfi Kristniboðssambandsins, um það vitna um 70 grunnskólar og níu framhaldsskólar í Pókothéraði í Keníu. Í Eþíópíu er áhersla á lestr- arkennslu í Ómó Rate þar sem ólæsi er mikið og götubörnum í Addis Abeba er hjálpað til náms. Kristni- boðsfélag kvenna er elsta kristni- boðsfélag á landinu, rúmlega hundr- að ára. Ein af mörgum fjáröflunar- leiðum þess er hin árlega kaffisala. Allir eru velkomnir í kaffið og að styðja um leið gott málefni. Kaffisala Kristniboðsfélags kvenna verður í dag Kenía Menntun skiptir miklu máli. Ljúfar kræsingar til styrktar góðu málefni kolaportid.is KOLAPORTIÐ Einstök stemning í 25 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 Opið í dag 1. maí kl. 11-17 Í bókinni Flæðarmáli eru höfundar: Árný Elínborg Ásgeirsdóttir, Bjargey Ólafsdóttir, Helga Ágústsdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Jó- hanna Friðrika Sæmundsdóttir, Júlía Margrét Einarsdóttir, Þuríður Elfa Jónsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir. Með ritstjórn fara: Ingibjörg Valsdóttir, Jóda Elín Valgerður Margrétardóttir, Ragna Ólöf Guðmundsdóttir, Rannveig Garðarsdóttir, Sigríður Ásta Árna- dóttir og Inga Rósa Ragnarsdóttir. Nánar á Facebooksíðu Flæðar- máls. Hægt er að panta bækur á vefsíðunni: www.karolinafund.com/project/view/319 Konurnar í Flæðarmáli BÓKIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.