Morgunblaðið - 15.05.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 15.05.2014, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 5. M A Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  114. tölublað  102. árgangur  GÓÐIR GUÐ- SPJALLAMENN EFTIRSÓTTIR VALDA SLÆM SAMSKIPTI FJARVISTUM? ÁTJÁN MYNDIR KEPPA UM GULL- PÁLMANN VIÐSKIPTABLAÐ KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Í CANNES36TENÓRINN BENEDIKT 34 FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is Morgunblaðið/Andrés Skúlason Á förum Höfuðstöðvar Vísis á Djúpavogi.  „Það var ekki auðvelt að ákveða að flytja frá Djúpavogi til Grinda- víkur,“ segir Delia Homecillo Dic- dican, starfsmaður Vísis á Djúpa- vogi. Hún er í hópi þeirra starfs- manna fyrirtækisins sem hafa ákveðið að taka tilboði um vinnu í Grindavík og flytjast þangað bú- ferlum. „Mér þykir vænt um Djúpa- vog. Hér á ég vini. Þegar ég flyt þarf ég að byrja upp á nýtt.“ Í dag býður Vísir starfsmönnum frá Djúpavogi í vettvangsferð til Grindavíkur. Í kjölfarið mun skýr- ast hversu margir munu flytja. „Við sem eftir erum þurfum að standa saman,“ segir Jóna Kristín Sigurðardóttir, starfsmaður Vísis, sem hefur ákveðið að búa áfram á Djúpavogi. „Við þurfum að hafa trú á okkur sjálfum og þessum stað.“ » 14-15 „Þurfum að hafa trú á okkur sjálfum og Djúpavogi“ Haft til hliðsjónar » Í frumvarpinu er verksvið gerðardóms afmarkað. » Hann skal hafa kjör sam- bærilegra stétta til hliðsjónar, s.s. varðandi menntun, sem og nýlega kjarasamninga. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Búist er við því að frumvarp um lög- bann á verkfall flugmanna hjá Ice- landair verði samþykkt í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra mælti fyrir frum- varpinu að loknum eldhúsdagsum- ræðum í gærkvöldi. Sagði hún „gríðarleg samfélagsleg og efnahags- leg verðmæti í húfi“. Í frumvarpinu segir að telja verði að verkfalls- aðgerðir Félags íslenskra atvinnu- flugmanna gegn Icelandair hafi svo víðtæk og alvarleg efnahagsleg áhrif að löggjafanum sé heimilt að ganga inn í kjaradeiluna með lagasetningu. Er þar lagt til að hafi ekki náðst samkomulag 15. júlí nk. skuli gerðar- dómur fyrir 15. september ákveða kaup og kjör. Í gerðardómnum munu eiga sæti þrír dómendur og tilnefnir Hæstiréttur Íslands einn, FÍA einn og Samtök atvinnulífsins einn. Magnús Pétursson ríkissáttasemj- ari segir sjaldgæft að sett sé lögbann á verkföll á Íslandi. Enn fátíðara sé að gerðardómur með endanlegt úr- skurðarvald fylgi í kjölfar þess að frestur til að semja rennur út. MFá frest til 15. júlí »6 Hafa sjö vikur til að semja  Ráðherra leggur fram frumvarp um lögbann á flugmannaverkfall hjá Icelandair  Deilan til gerðardóms, takist ekki að semja  Ríkissáttasemjari segir það fátítt Sjálfstæðisfl. 60,3% Björt framtíð 17,3% Samfylkingin 10,1% Framsóknarfl. 5,7% Vinstri - græn 3,2% Fólkið í bænum 1,3% Annar fl. eða listi 2,2% Fylgi flokka í bæjarstjórn Garðabæjar Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 5.-11. maí 2014 60,3% 17,3% 10,1% 5,7% 3,2% 2,2% 1,3% Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ fengi átta bæjarfulltrúa af ellefu, ef gengið væri til kosninga nú sam- kvæmt nýrri könnun Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka í sveitar- félaginu. Björt framtíð, sem ekki hefur boðið fram áður, fengi tvo fulltrúa. Samfylkingin og óháðir fengju einn. Önnur framboð næðu ekki inn manni. M-listi, Fólkið í bænum, sem á einn fulltrúa í núverandi bæjar- stjórn, tapar miklu samkvæmt könn- uninni. Fylgi hans mælist aðeins 1,3% en var 15,9% í kosningunum fyrir fjórum árum. Samkvæmt könnuninni er Sjálf- stæðisflokkurinn með 60,3% fylgi í Garðabæ. Björt framtíð mælist með 17,3% og fylgi Samfylkingarinnar og óháðra er 10,1%. Kosningarnar í vor eru hinar fyrstu til sveitarstjórnar eftir að Álftanes og Garðabær sameinuðust í eitt sveitarfélag. Bæjarfulltrúar í Garðabæ verða ellefu, en voru sjö í hvoru sveitarfélagi á yfirstandandi kjörtímabili. »16-17 Með hreinan meirihluta í Garðabæ  Ný könnun sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn er með 60,3% fylgi Þegar skiptast á sól og rigning eins og verið hef- ur undanfarna daga á suðvesturhorninu, þá tek- ur gróðurinn heldur betur við sér. Margir hafa nú þegar farið fyrstu umferð með sláttuvél yfir gras í görðum við heimahús og borgarstarfs- menn í höfuðstaðnum eru komnir á kreik með rafmagnsorf og hrífu, til að snyrta þau grænu svæði sem finnast í borginni við sundin blá. Ein- hverjum finnst sumarið ekki komið fyrr en vélarhljóðið í sláttuorfinu berst til eyrna og ilm- ur af nýslegnu grasi fyllir vitin. Þá vaknar jafn- vel söngur í brjóstum um grundir sem gróa. Græn svæði borgarinnar fá fyrstu sumarsnyrtinguna Morgunblaðið/Golli Nú tekur hýrna um hólma og sker  Vinnustöðvun grunnskólakenn- ara gekk í gildi á miðnætti, en samninganefndir kennara og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hugðust freista þess að ná samn- ingum í nótt. Tímabundið eins dags verkfall sjúkraliða og félagsmanna í SFR á hjúkrunarheimilum og öðrum stofnunum innan Samtaka fyrir- tækja í velferðarþjónustu (SFV) mun standa yfir í dag. »4 Kennarar funduðu fram á nótt Grunnskólabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.