Morgunblaðið - 15.05.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
SÓLPALLAR!
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Erum að fara af stað í nýsmíði
og endurbætur. Komum á staðinn
og gefum fast verðtilboð.
100% VINNUBRÖGÐ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Ég held að þetta hafi sjaldan verið
eins lélegt,“ sagði Sigþór Kjartans-
son, skipstjóri á Mánabergi ÓF, í gær
um upphaf karfaveiða á Reykjanes-
hrygg djúpt suðvestur af landinu. Sjö
íslensk skip voru innan íslenskrar lög-
sögu austast á miðunum. Auk Mána-
bergs voru það Örfirisey, Arnar,
Barði, Snæfell, Málmey og Þerney.
Íslensku skipin máttu byrja veið-
arnar á laugardag og mun eitt þeirra
þegar vera hætt veiðum. Um fimmtán
erlend skip voru á veiðisvæðinu utan
íslensku lögsögunnar og voru Rússar
fjölmennastir í þeim hópi. Sigþór seg-
ir að menn hafi siglt fram og aftur,
innan og utan lögsögu, en eftirtekjan
verið rýr og sums staðar aðeins nokk-
ir fiskar eftir að hafa togað í 4-5 tíma.
Flotinn mættur, fiskurinn ekki
„Best hafa menn fengið 8-10 tonn
eftir einar 30 klukkustundir og það er
óhætt að segja að það sé mikið haft
fyrir þessu með stór og þung troll á
340-380 föðmum. Í hnotskurn er þetta
þannig að flotinn er mættur, en það er
enginn fiskur,“ sagði Sigþór. Hann
segir að frést hafi af skárri veiði þegar
fyrstu rússnesku skipin komu á miðin
upp úr miðjum apríl, en síðan hafi afli
dregist saman. Á síðustu vertíð voru
aflabrögð hins vegar góð og voru
margir búnir með kvótann fyrir sjó-
mannadag.
Kristinn Gestsson, skipstjóri á
Þerney RE, sagði í samtali við Morg-
unblaðið fyrir réttu ári að þeir hefðu
þá verið að fá 4-6 tonn á klukkutím-
ann og hefðu skammtað sér afla til að
ráða vel við vinnsluna. Síðustu daga
hefur sólarhringsafli verið svipaður
og á klukkustund í fyrra.
Í mikilli lægð
Efri stofn úthafskarfa í Græn-
landshafi hefur verið í mikilli lægð
undanfarin ár og mælingin á stofn-
inum í fyrrasumar var sú lægsta frá
upphafi. Mæling á neðri stofninum er
jafnframt sú lægsta síðan mælingar
hófust árið 1999. Kvóti Íslendinga í ár
er um sex þúsund tonn.
„Sjaldan verið eins lélegt“
Morgunblaðið/Ómar
Dræm veiði í upphafi karfavertíðar á Reykjaneshrygg
Hanna Birna Kristjánsdóttir, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði
í ræðu sinni við eldhúsdagsumræður
á Alþingi í gær að margt hefði áunn-
ist á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar.
„Fyrir rétt rúmu ári sendi þjóðin
þinginu skýr skilaboð. Í kosningum
birtist krafa um breytingar – von um
betri tíma, bjartari framtíð og for-
gangsröðun í þágu fólksins í landinu.
Að þessu hefur verið unnið ötul-
lega síðastliðið ár og árangurinn er
nú að birtast,“ sagði Hanna Birna og
nefndi það sem dæmi um bata í hag-
kerfinu að fjögur þúsund ný störf
hefðu skapast á síðastliðnu ári.
Tekið að vora
Sigurður Ingi Jóhannsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins,
ræddi einnig stöðu efnahagsmála.
„Það er tekið að vora á ný. Með
vorinu eykst okkur bjartsýni og þor
og brúnin léttist þegar birtan tekur
völdin,“ sagði Sigurður Ingi.
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingar, vék að Evrópumálum,
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
ræddi um stjórnmál og réttlæti,
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksfor-
maður Pírata, ræddi vinnu stjórn-
lagaráðs. Hvar er nýja stjórnarskrá-
in sem þjóðin kaus að leggja sem
grunn að nýja Íslandi?“ spurði
Birgitta m.a. í ræðu sinni.
Guðmundur Steingrímsson, for-
maður Bjartrar framtíðar, nýtti sér
ræðutímann til að kynna fyrir hvað
flokkur hans stendur. Björt framtíð
væri „óbundin af gömlum, rót-
grónum hagsmunum“.
Morgunblaðið/Eggert
Glatt á hjalla Ragnheiður Elín
Árnadóttir og Hanna Birna Krist-
jánsdóttir stinga saman nefjum.
Segja
landið
að rísa
Eldhúsdags-
umræður á þingi
MMeira á mbl.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Isavia hefur óskað eftir því að stað-
reyndavillur í umsögn skipulagsfull-
trúa Reykjavíkurborgar varðandi
breytingar á deiliskipulagi Reykja-
víkurflugvallar verði leiðréttar.
Forstjóri Isavia, Björn Óli Hauks-
son, skrifaði skipulagsyfirvöldum í
Reykjavík 23. apríl sl. vegna málsins.
Um er að ræða umsögn skipulags-
fulltrúa frá 10. mars sl. sem ber yfir-
skriftina: „Samantekt á athugasemd-
um vegna breytingar á deiliskipulagi
Reykjavíkurflugvallar.“
Vakin er athygli á tveimur stað-
reyndavillum sem koma fram í svör-
um skipulagsfulltrúans í samantekt á
athugasemdum vegna breytinga á
deiliskipulagi flugvallarins. Svörin
varða umsögn Samgöngustofu um
breytingar á deiliskipulaginu og er
hún frá 3. febrúar sl. Fyrri liðurinn
varðar þessi orð Samgöngustofu:
„Reykjavíkurflugvöllur gegnir afar
þýðingarmiklu hlutverki í sjúkra-
flugi.“
Í svari byggingarfulltrúa við þessu
atriði (liður 1 c) segir að „samkvæmt
niðurstöðu áhættumatsnefndar
Isavia „Nothæfisstuðull fyrir sjúkra-
flugvélar á Reykjavíkurflugvelli og
Keflavíkurflugvelli“ sé stuðullinn
fyrir tvær flugbrautir í Reykjavík og
tvær í Keflavík fyrir sjúkraflugvélar
af tegundinni Beechcraft King Air
200 samanlagt 99,5% yfir allt árið…“
Isavia segir að í svarinu sé ranglega
vísað til „áhættumatsnefndar Isavia“
með tilvísun í bréf forstjóra Isavia til
innanríkisráðherra í desember sl.
Það fól í sér ábendingu um nothæf-
isstuðul fyrir sjúkraflugvélar miðað
við ákveðnar forsendur, m.a. tvær
flugbrautir á Reykjavíkurflugvelli og
tvær á Keflavíkurflugvelli til vara.
„Áhættumat og nothæfisstuðull
eru tveir óskyldir þættir sem þarna
er blandað saman. Segja má að not-
hæfisstuðull sé þjónustustig flugvall-
ar en áhættumat er mat á áhrifum
breytinga og lýtur fyrst og fremst að
mati á öryggi (safety). Áhættumat er
alveg óháð notkunarstuðli þótt stuð-
ulinn [svo] geti skipt máli við áhættu-
mat,“ segir í bréfi Isavia. Þá kemur
fram í bréfinu að unnið sé að gerð
áhættumats vegna fyrirhugaðrar
lokunar suðvestur-norðausturflug-
brautar Reykjavíkurflugvallar. Það
verður sent Samgöngustofu sem
mun taka afstöðu til niðurstöðunnar.
Isavia telur réttara að segja:
„Samkvæmt ábendingu Isavia til
innanríkisráðherra er nothæfisstuð-
ull fyrir tvær flugbrautir í Reykjavík
og tvær í Keflavík.“
Síðari staðreyndavillan, að mati
Isavia, kemur fram í svari skipulags-
stjóra (1 d) við þessari setningu í um-
sögn Samgöngustofu: „Kennslu- og
æfingaflug er að mati Samgöngu-
stofu nauðsynlegur þáttur í að styðja
við þróun flugstarfsemi á Íslandi.“ Í
svari skipulagsstjóra við þessu segir
m.a.: „Stefna um þessa þætti flug-
starfseminnar í Vatnsmýri rímar
einnig við áform um lokun NA-SV
brautar sem hefur verið mikið notuð
fyrir æfinga- og kennsluflug á
undanförnum áratugum.“
Isavia segir að hér sé ranglega
fullyrt að umrædd flugbraut hafi ver-
ið mikið notuð fyrir æfinga- og
kennsluflug. „Staðreyndin er sú að
notkun hennar í þessu skyni hefur
ekki verið meiri en annarra flug-
brauta á undanförnum áratugum og
miklu minni eftir að notkun hennar
var eingöngu miðuð við lendingar í
hvössum vindi.“
Isavia leggur því til að umrædd
setning verði felld úr málsgreininni.
Vilja láta leiðrétta villur
Isavia óskaði leiðréttingar á villum í umsögn skipulagsfulltrúa Reykjavíkur-
borgar um deiliskipulag flugvallarins Ranglega fullyrt um ákveðna flugbraut
Morgunblaðið/ÞÖK
Reykjavíkurflugvöllur Horft eftir NA-SV flugbrautinni sem á að hverfa.
Um 8.000 manns frá 700 fyrir-
tækjum taka þátt í átakinu Hjól-
að í vinnuna sem nú stendur yfir.
„Fólk hjólar inn í sumarið,“ seg-
ir Sigríður Inga Viggósdóttir
hjá ÍSÍ. Í tilefni átaksins voru í
gærmorgun sett upp kaffitjöld á
nokkrum stöðum á Reykjavíkur-
svæðinu. Þar gat hjólafólk feng-
ið hressingu, viðgerðarmenn
buðu upp á lagfæringar og
fulltrúar hjólreiðafélaga kynntu
starfsemi sína. „Þegar við byrj-
uðum fyrir rúmum áratug voru
þátttakendur 530 en nú skipta
þeir þúsundum, sem sýnir lífs-
stílsbreytinguna,“ segir Sigríður
Inga.
Þúsundir
hjóla inn í
sumarið
Morgunblaðið/Golli
Reiðhjólafólki á leið til vinnu var boðið upp á kaffi og kynningar