Morgunblaðið - 15.05.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Þú færð
brúðar-
undirfatnaðinn
hjá okkur
Laugavegi 82,á horni Barónsstígs,
sími 551 4473 - www.lifstykkjabudin.is
Atli Vigfússon
Húsavík
„Við erum aldir upp með kindum og
höfum gaman af kindum. Þetta er
frábær félagsskapur og það er mjög
gefandi að vera í þessu,“ segir Torfi
Aðalsteinsson, frístundabóndi og fé-
lagi í Fjáreigendafélagi Húsavíkur.
Mikið er um að vera þessa dagana
hjá sauðfjárbændum á Húsavík og
sauðburður stendur sem hæst. Alltaf
eru einhverjir að koma og krakkarnir
víkja ekki úr fjárhúsunum eftir að
skóla lýkur á daginn. Það er nóg að
sjá og skemmtilegt fyrir þau að taka
þátt í ævintýrinu sem svo margir
hafa gaman af.
Torfi býr með nokkrar kindur í
Lækjarbrekku á Húsavík ásamt föð-
ur sínum, Aðalsteini Þórólfssyni, og
bróður sínum, Trausta Aðalsteins-
syni. Þá er Óskar Karlsson þarna
einnig með kindur og í næstu húsum
eru aðrir húsvískir fjárbændur. Það
er því ekki langt á milli manna og oft
er farið í húsin hjá nágrönnunum og
litið á lömbin og fleira sem gleður
augað.
Fjáreigendafélag Húsavíkur hef-
ur verið starfandi í áratugi, en nú
eru þar yfir tuttugu frístundabænd-
ur sem eru með kindur. Áherslur
eru mismunandi í ræktuninni, en
víða má sjá mjög fjölbreytta liti og
vel aldar kindur. Hátíðisdagar eru
nokkrir svo sem réttardagurinn og
alltaf er fjöldi fólks á hrútasýningu
sem haldin er á Mærudögum þ.e.
bæjarhátíð Húsvíkinga.
Frístundabúskapur
er frábært líf
Mismunandi áherslur í ræktuninni
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Frístundabóndi Torfi ásamt syni
sínum, Gunnari Kjartani Torfasyni,
og Hildi Önnu Brynjarsdóttur.
Húsnæðismál og
frístundakort eru
stærstu kosn-
ingamál Samfylk-
ingarinnar í
Reykjavík fyrir
komandi borgar-
stjórnarkosn-
ingar. Flokkurinn
kynnti stefnumál
sín á nýrri kosn-
ingaskrifstofu í
Brautarholti í gær þar sem Dagur B.
Eggertsson, oddviti framboðsins, og
Björk Vilhelmsdóttir, sem er í öðru
sæti listans, höfðu framsögu.
Björk sagði að Samfylkingin
stefndi að því að hækka frístunda-
styrk í 50 þúsund krónur en hann er
nú 25 þúsund krónur. Þá væri stefn-
an að fjölga þeim fjölskyldum sem
njóta systkinaafsláttar og taka upp
afslátt fyrir foreldra sem eiga bæði
börn í leikskóla og á frístundaheimili.
Dagur ítrekaði áform um að fjölga
leigu og búsetaíbúðum í Reykjavík
um 2.500–3.000 á næstu 3-5 árum um
leið og hann benti á þá uppbyggingu
sem einkaaðilar standa að í Reykja-
vík. „Við viljum að íbúðirnar rísi inn-
an fimm ára. En við erum að bíða
eftir því að Alþingi muni klára laga-
ramma um búsetusamvinnufélögin,“
sagði Dagur. annalilja@mbl.is
Húsnæði og
frístundir
Dagur B.
Eggertsson.
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/