Morgunblaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 12
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnt er að draga nokkuð úr sjónrænum áhrifum
áformaðrar háspennulínu um Sprengisand með því
að leggja hluta hennar í jörðu.
Ef 25 kílómetrar á mikilvæg-
asta hluta hálendis færu í jörðu
myndu 30% línunnar í heild
verða sýnileg frá Sprengi-
sandsleið í stað 40% ef loftlína
yrði eingöngu notuð. Línan
myndi ekki verða lýti frá veg-
inum séð alveg frá Kvíslaveit-
um í suðri og norður undir
Bárðardal.
Kom þetta fram í erindi sem
Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri
Landsnets, hélt um uppbyggingu raforkukerfisins
á vorfundi Samorku sem haldinn var á Akureyri í
gær.
Þarf að styrkja flutningskerfið
Meirihluti svarenda í könnun sem Landsnet lét
gera er fylgjandi virkjun og nýtingu endurnýjan-
legrar orku og vill áframhaldandi uppbyggingu
fjölbreytts iðnaðar, allsstaðar á landinu. Guð-
mundur telur þessa niðurstöðu ríma ágætlega við
stefnu Landsnets um að byggja upp sterkt raf-
orkukerfi sem tryggi jafnan aðgang sem flestra
landsmanna að raforku og að vandað verði til und-
irbúnings og framkvæmda.
Í erindinu áréttaði Guðmundur að knýjandi þörf
væri á styrkingu meginflutningskerfis raforku og
nefndi að byggðalínan væri komin að þanmörkum.
Í könnuninni kom fram að fólki er illa við að há-
spennulínur sjáist, ekki síst í nágrenni náttúru-
perlna. Jarðstrengjahópur sem Landsnet hefur
sett á fót er að kanna sjónræn áhrif háspennulínu
sem lögð yrði í tengslum við breytingu á ferða-
mannaveginum um Sprengisand. Í upphaflegum
tillögum sést loftlínan ekki í 60% tilvika. Guðmund-
ur segir að athugun á því að leggja línuna á við-
kvæmasta hluta leiðarinnar í jörð, 25 eða 50 kíló-
metra, hafi leitt í ljós að draga mætti meira úr
sýnileika línunnar í heild frá veginum séð. Ef til
dæmis 25 kílómetrar yrðu lagðir í jörðu, nálægt
Nýjadal þar sem línan og vegurinn skarast, yrðu
ekki veruleg sjónræn áhrif á 70% leiðarinnar. Ekki
er talið tæknilega mögulegt að vera með lengri
jarðstrengskafla af þessari gerð og því var hætt við
að meta sýnileika línu með 75 km jarðstrengskafla.
Frumáætlun bendir til að lagning 25 km jarð-
strengs myndi auka kostnað við háspennulínuna
um 7 milljarða, úr 14 milljörðum í 21 milljarð. Til að
standa undir því þyrfti að hækka gjaldskrá um
4-5% umfram það sem þegar er áætlað.
Línan sýnileg á 30% leiðar
Unnt að draga talsvert úr sýnileika háspennulínu um Sprengisand með 25 km
jarðstreng Verkefnishópur Landsnets greinir hagkvæmustu kosti jarðstrengja
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Hjólreiðafélag Reykjavíkur, í sam-
starfi við Bílabúð Benna, efnir til
Porsche Criterium-hjólreiðamóts-
ins í dag, fimmtudaginn 15. maí.
Mótið fer fram á Völlunum í Hafn-
arfirði og hefst kl. 19.00. Áhorf-
endur eru velkomnir. Criterium-
keppnisformið (Racer) á sér langa
sögu erlendis og hefur verið stund-
að hérlendis í nokkur ár. „Það
gengur út á stuttar vegalengdir og
er annálað fyrir mikinn hraða og
spennu og einmitt þess vegna kem-
ur Porsche við sögu,“ segir í til-
kynningu.
Keppt er á götuhjólum, í nokkr-
um flokkum karla og kvenna.
Veitt verða sérstök sprettmeist-
araverðlaun, þar sem sprettharð-
asti einstaklingur mótsins er heiðr-
aður. Allar nánari upplýsingar um
skráningu og framkvæmd er að
finna á hfr.is
Sprettharðir hjól-
reiðamenn spreyta
sig á Völlunum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Verulegar breytingar verða frá og
með næstu áramótum á embættum
sýslumanna og lögreglustjóra sam-
kvæmt lögum
sem Alþingi sam-
þykkti í gær.
Þannig verður
embættum sýslu-
manna fækkað úr
24 í níu og lög-
regluumdæmin
sem voru fimm-
tán verða einnig
níu. Þá verða
sýslumenn ekki
lengur stjórn-
endur lögreglu, eins og tíðkast hefur
til þessa.
Breytingar í þessa veru hafa verið
í deiglunni um árabil. Lögin sem
voru samþykkt voru frumvarp frá
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innan-
ríkisráðherra. Raunar tók hún við
málinu frá fyrirrennara sínum, Ög-
mundi Jónassyni, og í ræðu á Al-
þingi í gær þakkaði hún honum fyrir
að hafa staðið vel að undirbúningi
þessa máls.
„Við höfum náð afar góðri sátt um
útfærsluna,“ segir Hanna Birna.
Hún segir starfsmannamál við-
kvæman þátt í þessu sambandi. Nú
fari af stað ferli við að ráða fólk í ný
embætti. Þar sé, eins og lögin nýju
kveða á um, tryggt að þeir sem fyrir
eru lögreglustjórar eða sýslumenn
njóti forgangs um skipan. Ef ekki,
verði viðkomandi tryggð sambæri-
leg staða hjá stofnunum innanríkis-
ráðuneytis. Allt eigi þetta að skila
hagræði í fyllingu tímans.
„Ég tel að með þessari breytingu
muni fólk ná skýrari fókus á verk-
efni sín. Þá er líka til bóta fyrir borg-
arana að þjónusta sýslumanna ann-
ars vegar og lögreglustjórn hins
vegar, séu hvor á sinni hendi. Lög-
reglan getur líka betur sinnt sínum
verkefnum, en kröfurnar þar verða
æ meiri,“ segir Hanna Birna.
Ráðherrann telur að eftir því sem
sýslumannsembættin verði öflugri
verði þeim betur kleift að taka að sér
ný verkefni. Í dag sinni starfsfólk
nokkurra hinna smærri ákveðnum
opinberum verkefnum, til dæmis út-
gáfu leyfa, sektainnheimtu, útgáfu
Lögbirtingablaðsins og fleira. Stefn-
an sé að halda áfram á þessari braut.
Eyjarnar áfram sjálfstæðar
Meðan frumvarpið var til umfjöll-
unar á Alþingi var í fyrstu gert ráð
fyrir að Vestmannaeyjar féllu undir
embætti sýslumanns og lögreglu-
stjóra á Suðurlandi. Á síðari stigum
var ákveðið að Eyjarnar skyldu
áfram verða sjálfstæðar með tilliti til
landfræði og samgangna.
Sátt um málið og fókusinn skýrari
Lög um nýja skipan sýslumanna og lögreglustjóra samþykkt í gær Níu embætti yfir landið
Skilar hagræði í fyllingu tímans Fleiri verkefni til sýsluskrifstofa Þeir sem fyrir sitja fá forgang
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Eftir breytingu:
Vestmannaeyjar
Sýslumenn: 9 (eru 24)
Lögreglustjórar: 8 (eru 15)
Lögreglustjórar og sýslumenn
Vesturland
Höfuðborgarsvæðið
Suðurnes
Austurland
Norðurland eystra
Norðurland vestra
Vestfirðir
Suðurland
Með lögunum sem samþykkt voru
í gær skiptist landið í níu embætti
sýslumanna. Þau verða höfuð-
borgarsvæðið, Vesturland, Vest-
firðir, Norðurland vestra, Norður-
land eystra, Austurland, Suður-
land, Vestmannaeyjar og
Suðurnes.
Embætti lögreglustjóra ná yfir
sömu svæði, en umdæmamörk
þeirra og sýslumanna verða út-
færð frekar með reglugerð, sem
ráðherra kemur með. Þar verður
höfð hliðsjón af skipulagi ann-
arrar opinberrar þjónustu og
heimamenn verða með í ráðum og
þeirra vilja og sjónarmiðum að
einhverju leyti fylgt.
Ráðherra kemur með útfærslu
LANDINU VERÐUR SKIPT UPP Í NÍU SVÆÐI
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Lögreglan fékk í upphafi þessa árs
500 milljóna króna inngjöf úr ríkis-
sjóði, svo fjölga mætti lögreglu-
mönnum. Þar var einkum horft til
embætta úti á landi, sem þóttu van-
megnug.
Lögreglan á Selfossi fékk 34,5
milljóna króna viðbót og með því var
hægt að fjölga í liðinu þannig að
vaktir eru að jafnaði mannaðar fjór-
um mönnum en fimm yfir sumar-
mánuðina. Þá gerir fjárveitingin
mögulegt að bæta við mönnum á
aukavaktir til þess að sinna álags-
toppum, til dæmis um helgar á sumr-
in þegar þúsundir ferðamanna eru á
svæðinu, að sögn Odds Árnasonar
yfirlögregluþjóns.
Aukinni fjárveitingu er ætlað að
gera lögreglunni á Húsavík mögu-
legt að fjölga um þrjá menn. Að sögn
Svavars Pálssonar sýslumanns var
einn maður ráðinn strax um áramót-
in og annar hóf
störf í aprílmán-
uði. Vonir standa
svo til að fastráða
megi þriðja
manninn í haust.
„Einmennings-
varðstaða heyrir
nú sögunni til,“
segir Svavar.
Bætir við að
stærð umdæmis-
ins og miklar vegalengdir hafi áhrif á
rekstur vegna aksturskostnaðar.
Forsenda sýnilegrar löggæslu í um-
dæminu sé aukin yfirferð lögreglu,
ekki síst þar sem varðsvæði Húsa-
víkurlögreglunnar sé það víðfeðm-
asta á landinu. Það nær allt frá
Vaðlaheiði í vestri og norður á Mel-
rakkasléttu og alveg inn að Vatna-
jökli í suðri.
sbs@mbl.is
Fjölgað með fjárveitingu
Oddur
Árnason