Morgunblaðið - 15.05.2014, Side 14

Morgunblaðið - 15.05.2014, Side 14
SVIÐSLJÓS Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Um helmingur starfsmanna Vísis á Djúpavogi, eða um 30 manns, hefur lýst áhuga á að flytja til Grindavíkur og hefja þar störf fyrir fyrirtækið. Sumir hafa þegar tekið ákvörðun um að flytja og hafa jafnvel tekið tilboði um atvinnu í Grindavík fagnandi. Aðr- ir hafa ákveðið að búa áfram fyrir austan, þrátt fyrir að óvissan sé mikil um hvað taki við þegar Vísir hættir þar starfsemi. Í dag fer hópur starfs- manna í boði fyrirtækisins í vettvangs- ferð til Grindavíkur. Eftir þá heim- sókn munu hlutirnir skýrast. Velji starfsmennirnir að flytja býðst Vísir m.a. til að aðstoða við búslóðarflutn- ingana. Þegar svo stórt fyrirtæki, í um 470 íbúa sveitarfélagi, ákveður að flytja starfsemina í burtu, hríslast áhrifin um allt samfélagið. Breytingin snertir ekki aðeins starfsmenn Vísis og fjöl- skyldur þeirra heldur einnig alla verslun og þjónustu. Börnum í skól- unum mun fækka. Færri munu taka upp veskið í kaupfélaginu. Draga mun úr verkefnum iðnaðarmanna sem þar búa. Bæjarbragurinn mun breytast. Vísir hefur rekið fiskvinnsluna á staðnum í fimmtán ár. Starfsmenn- irnir eru fimmtíu talsins og á aldrinum 17-68 ára. Margir þeirra eru með langa starfsreynslu. Sumir eru frá Djúpavogi, aðrir aðfluttir. Stjórn- Áhrifin hríslast um allt samfélagið Vonast þeir til að annað fyrirtæki sjái hag í því að halda áfram fiskvinnslu í bænum. Ekkert fyrirtæki hefur þó enn sem komið er lýst yfir áhuga á slíku. Djúpavogsbúar eru þó þekktir fyr- ir annað en að leggja árar í bát þótt á móti blási. Þeir hafa gripið til nýstár- legra aðferða til að koma sínum mál- stað á framfæri. Meðal þess sem unn- ið er að er kynningarmyndband um Djúpavog. „Snúum vörn í sókn og sýnum úr hverju við erum gerð,“ seg- ir í frétt um kvikmyndagerðina á heimasíðu hreppsins. Rúmlega 150 íbúar í sveitarfé- laginu hafa skrifað undir áskorun til Alþingis um að tryggja og treysta byggð þar til framtíðar. Undirskrift- irnar verða afhentar forsætisráð- herra á morgun. endur Vísis segja að ekki verði pakk- að saman einn daginn og skellt í lás. Vonast þeir til þess að næstu mánuði verði áfram vinna í fiskvinnslunni fyr- ir um 25-30 manns, allt þar til skýrist hvað taki við. En ákvörðunin stendur: Það mun koma að því að Vísir segi skilið við Djúpavog. Engin töfralausn Sjávarútvegsráðherra ákvað í vik- unni að auka aflaheimildir sveitarfé- laga í vanda, m.a. á Djúpavogi. Sveit- arstjórnin á eftir að fara yfir þá niðurstöðu en segir hana þó í engu samræmi við kröfur hennar. Íbúar á Djúpavogi eru margir hverjir slegnir yfir tíðindunum. Þeir spyrja hvað taki við og benda á að ferðaþjónustan, þrátt fyrir að vera vaxandi í bænum, sé engin töfralausn.  Mikil óvissa á Djúpavogi í kjölfar ákvörðunar Vísis að hætta þar starfsemi  Margir þegar ákveðið að flytja  Sumir taka tilboði um atvinnu í Grindavík fagnandi Hætta Vísir hefur ákveðið að hætta starfsemi sinni á Djúpavogi. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014 www.utkall.is ÚTKALL Í ÞÁGU VÍSINDA ÞESSA DAGANA ERU BJÖRGUNARSVEITIRNAR AÐ GANGA Í HÚS Þær sækja tilbúin skilaumslög til þeirra sem ákveða að taka þátt. Umslögin má einnig setja ófrímerkt í póst. „Það var ekki auðvelt að ákveða að flytja frá Djúpavogi til Grindavík- ur,“ segir Delia Homecillo Dicdic- an, starfsmaður Vísis á Djúpavogi. Hún er í hópi þeirra starfsmanna fyrirtækisins sem hafa ákveðið að taka tilboði um vinnu í Grindavík og flytjast þangað búferlum. „Mér þykir vænt um Djúpavog. Hér á ég vini. Þegar ég flyt þarf ég að byrja upp á nýtt. Það er ekki einfalt.“ Delia vinnur langan vinnudag og stólar á tekjur sem hún fær fyrir yf- irvinnu til að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Hún segist hafa fengið vilyrði frá Vísi um að hún verði ekki fyrir tekjuskerðingu við flutninginn. Allt breyttist Delia flutti til Djúpavogs frá Fil- ippseyjum fyrir fimmtán árum. Hún hefur allan þann tíma unnið hjá Vísi. Eiginmaður hennar og tvö börn urðu eftir í heimalandinu en hún heimsótti þau á hverju ári. Fyr- ir þremur árum breyttist þó allt. Eiginmaður hennar lést og hún vildi því fá börnin hingað. Það tók sinn tíma. Það var ekki fyrr en í fyrra að Útlendingastofnun gaf sitt leyfi fyrir komu þeirra og fluttu þau beint til Djúpavogs og hófu að vinna hjá Vísi. Þau eru nú 16 og 17 ára, sonurinn Judel og dóttirin Jade Marie. Delia hefur mikinn metnað fyrir hönd barna sinna og vill að þau gangi menntaveginn. Hún segir hins vegar dýrt, sér- staklega þegar einstætt foreldri á í hlut, að senda börn sín í skóla. Því verði þau að vinna um hríð og safna sér pening. Delia hefur aldrei komið til Grindavíkur. Hún þekkir engan sem býr þar. „Ég tek ákvörðunina um að flytja með framtíð barnanna minna í huga. Draumur minn er að koma þeim í háskóla.“ Hún segir það hafa verið mikil viðbrigði fyrir börnin að flytja til Íslands. Djúpivogur sé lítill bær en smám saman fóru þau að kunna betur við sig. Þau hafa einnig ákveðið að halda áfram að vinna fyrir Vísi í Grindavík. „Kannski verður líf okkar betra í Grindavík,“ segir hún. Delia mun líklega flytja í ágúst, á meðan lokað er hjá Vísi á Djúpa- vogi vegna sumarfría. „Þetta er stór ákvörðun. Og ég er hrædd því að ég er einstæð móðir. En ég verð að flytja til að komast af. Ég verð að komast af.“ Verð að hafa vinnu Hún segir of mikið óöryggi felast í því að búa áfram á Djúpavogi. Vinnsla verður áfram á staðnum í einhverja mánuði en hvað svo? „En ég verð að hugsa um börnin mín. Ég verð að hafa vinnu. Ég er að flytja því ég vil hafa vinnu, ég vil ekki bætur frá hinu opinbera,“ seg- ir Delia. Vísir býðst til að aðstoða fólk við að finna húsnæði í Grindavík og einnig að greiða fyrir búferlaflutn- ingana. Það segir Delia mikinn létti. En myndi Delia vera að flytja frá Djúpavogi ef Vísir væri ekki að hætta starfsemi sinni þar? „Nei, ég myndi vera áfram.“ Delia Homecillo Dicdican „Ég verð að komast af“ Nýtt upphaf „Þegar ég flyt þarf ég að byrja upp á nýtt,“ segir Delia. „Það er gott að búa á Djúpavogi en ég hef ákveðið að flytja til Grindavíkur,“ segir Jacek Ptak, starfsmaður Vís- is, sem hefur bú- ið á Djúpavogi í sjö ár. Hann langar að prófa að búa á nýjum stað, en útilokar ekki að snúa aftur. Jacek á fjölskyldu á Djúpavogi, móður og bróður. Móðir hans vinn- ur hjá Vísi og hefur líka ákveðið að flytja. Bróðir hans ætlar að búa áfram á Djúpavogi. „Ég er spennt- ur að prófa eitthvað nýtt,“ segir Ja- cek sem er einhleypur og barnlaus. „Kannski ég skoði aðeins konur í Grindavík,“ segir hann og hlær. Jacek Ptak Vill prófa eitthvað nýtt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.