Morgunblaðið - 15.05.2014, Page 17
Fylgi flokka eftir því hvað var kosið síðast (2010)
Fra
ms
ókn
arfl
.
Kýs nú:
Kaus þá:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Ann
an
flok
k
eða
fram
b.
?
Björt framtíð Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Samfylkingin Vinstri-græn Aðrir flokkar
Flokkur ef kosið yrði á morgun til Alþingis
Myndi
kjósa í
sveitar-
stjórn:
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 5.-11. maí 2014.
Fra
ms
ókn
arfl
.
Myndi
kjósa á
Alþingi:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Bjö
rt f
ram
tíð
Sam
fylk
ing
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
Álft
ane
shr
eyfi
ngi
n
Fól
kið
í bæ
num
6% 6%
39% 41%
80%
20%
4%
3%
7%
45%
25%
15%
21%
1%
1% 2%
90%
69%
25%
78%
4% 1%
14% 6%
15%
4%
4%
51%
26%
27%
18%
49%
19%
63%
99%
5%
5%
44%
42%
4%
13%
5%
2%
2%
Morgunblaðið/Kristinn
Garðabær Sjálfstæðismenn eru öflugir í sveitarfélaginu. Áslaug Hulda Jónsdóttir skipar fyrsta sæti á framboðslista
flokksins. Hér er hún með Gunnari Einarssyni bæjarstjóra.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur yfirburðafylgis
í Garðabæ samkvæmt nýrri könnun Félags-
vísindastofnunar Háskóla Íslands á fylgi flokka í sveitarfélaginu. Fengi flokkurinn átta af ellefu bæjarfulltrúum
ef kosið væri nú. Björt framtíð fengi tvo bæjarfulltrúa og Samfylkingin einn. Fólkið í bænum myndi tapa sínum
manni. Álftanes sameinaðist Garðabæ í ársbyrjun í fyrra og ganga nú íbúar í fyrsta sinn til sveitarstjórnar
kosninga í sameinuðu sveitarfélagi.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
flokksins myndu geta náð góðu sam-
starfi við aðra í bæjarstjórn.
Baráttan rétt að hefjast
„Mér líst ekki vel á þessar tölur,“
sagði Steinþór Einarsson, oddviti
Samfylkingarinnar. „En það er ljóst
að það er töluverð breyting hér í
bæjarfélaginu frá því síðast. Nú eru
fleiri framboð og það hefur áhrif. At-
kvæði dreifast víða og sterkur aðili
sem hefur verið við völd lengi hagn-
ast á því hve mörg atkvæði detta
dauð niður,“ sagði hann.
Steinþór benti á að kosningarbar-
áttan í Garðabæ væri rétt að hefjast.
Margt ætti eftir að gerast fram að
kjördegi og þessi staða gæfi því líka
tækifæri sem Samfylkingin myndi
nýta sér. gudmundur@mbl.is
Gunnar
Einarsson
Steinþór
Einarsson
Guðrún Elín
Herbertsdóttir
Garðabær og Álftanes samein-
uðust í eitt sveitarfélag í upphafi árs
í fyrra. Sameiningin var samþykkt í
íbúakosningu haustið 2012. Aðdrag-
andinn var hinar miklu skuldir sem
sveitarstjórn Álftaness stofnaði til í
góðærinu. Urðu þær sveitarfélaginu
óviðráðanlegar og ollu falli þess. Íbú-
ar í hinu sameinaða sveitarfélagi eru
rúmlega fjórtán þúsund.
Sameiningunni var háttað svo að
bæjarstjórn Garðabæjar tók við yf-
irstjórn mála á Álftanesi, en gamla
sveitarstjórnin þar sat áfram sem
hverfisstjórn eins og heimilt er sam-
kvæmt sveitarstjórnarlögum. Lítil
fækkun varð á starfsfólki bæjarins
við sameininguna, enda flestir þeirra
kennarar við grunnskólana og leik-
skólana. Stöðugildum á bæjarskrif-
stofunni fækkaði þó úr sex í tvær og
hálfa.
Í kosningunum í vor verða bæjar-
fulltrúar í sameinaðri bæjarstjórn ell-
efu að tölu. Þeir voru sjö í Garðabæ
og sjö á Álftanesi.
Tekjur hins sameinaða sveitarfé-
lags voru í fyrra vel á níunda milljarð
króna. Gjöld án fjármagnsliða voru
um 8,1 milljarður. Heildarskuldastaða
sameinaðs sveitarfélags nam í fyrra
um 9,8 milljörðum. Vega skuldir
Álftaness þyngst. Skuldirnar eru inn-
an þeirra marka sem sveitarfélög-
unum eru sett. Fjárhagsstaða Garða-
bæjar er traust og er það eitt þriggja
sveitarfélaga á landinu sem ekki
leggja á íbúa sína hámarksútsvar.
Bæjarfélagið skilaði 490 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári sam-
kvæmt ársreikningi, sem er umfram
fjárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir að
niðurstaðan yrði jákvæð um 225
milljónir.
Garðabær og Álftanes samein-
uðust í eitt sveitarfélag 2013
Í umfjöllun um fylgi flokka í Kópavogi hér í blaðinu á
þriðjudaginn kom ekki fram að framboð Vinstri grænna er
að þessu sinni sameiginlegt með félagshyggjufólki. Í til-
kynningu frá framboðinu segir að það telji að brýnt sé fyrir
allt vinstrafólk að sameinast í einum flokki undir merki fé-
lagshyggjunnar. Á framboðslistanum sé fólk sem komi víða
að og sé annt um velferð bæjarbúa og þeirra sem minna
megi sín. Fyrsta sæti listans skipar Ólafur Þór Gunnarsson,
núverandi bæjarfulltrúi VG.
Ólafur Þór
Gunnarsson
VG og félagshyggjufólk