Morgunblaðið - 15.05.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Garðverkfæri í frábæru úrvali
1.395
frá 495
Stunguskófla
STRÁ-
KÚSTA
R
SUMA
R
TILBOÐ
795,-
Ruslapokar stórir,
sterkir 10 & 50 stk. rúllur
Yfirbreiðslur
margar stærðir
1.195
Malarskófla
frá 995
frá 250
Garðhanskar
í miklu úrvali
4.995
Bílabónvél
frá 995
Úðabrúsar
margar stærðir, 1L
Fötur
frá 395
3.995
Sláttuorf
frá 1.995
Bílamottur
frá 95
Gróðurskóflur
Hrífur
Greinaklippur
Græðlingaklippur
Klórur og garðskóflur
í úrvali
485
Garðverkfæra-
sett
frá 999
frá 685
Dómarinn í máli suðurafríska
spretthlauparans Oscars Pistoriusar
hefur ákveðið að hann skuli gangast
undir mánaðarlangt geðheilbrigðis-
mat. Pistorius hefur verið sakaður
um að hafa myrt kærustu sína,
Reevu Steenkamp, á Valentínusar-
dag í fyrra en saksóknarar fóru
fram á geðheilbrigðismatið eftir að
sérfræðingur verjenda Pistoriusar
bar vitni um að íþróttamaðurinn
þjáðist af kvíðaröskun.
Sérfræðingar segja að niður-
staðan í málinu kunni að velta á
skilningi dómarans á hugarástandi
Pistoriusar þegar hann tók í gikk-
inn. Þeir segja saksóknarann leitast
við að sýna fram
á hvernig verj-
endurnir hafa
gefið ólíkar
ástæður fyrir því
að Pistorius
hleypti af byss-
unni á mismun-
andi stigum máls-
ins; sjálfsvörn,
slysaskot og nú,
eitthvað sem tengist kvíðasjúkdómi
hans.
Pistorius á yfir höfði sér lífstíðar-
fangelsi verði hann fundinn sekur
um morð og 15 ár ef hann verður
fundinn sekur um manndráp.
SUÐUR-AFRÍKA
Pistorius skikkaður í geðheilbrigðismat
Oscar Pistorius
Mótmælendur í
Binh Duong-
héraði í Víetnam
kveiktu á þriðju-
dag í nokkrum
verksmiðjum í Ví-
etnam-Singapore
iðngörðum I og II
til að mótmæla ol-
íuborunum Kín-
verja nærri hin-
um umdeildu
Paracel-eyjum í Suður-Kínahafi.
Fregnir herma að flestar verksmiðj-
urnar séu í eigu Kínverja en sam-
kvæmt heimildum CNN voru einnig
unnin spjöll á fasteignum í eigu kór-
eskra, taívanskra og japanskra
fyrirtækja. Yfirvöld í Singapore
segjast líta málið alvarlegum augum
og hafa biðlað til stjórnvalda í Víet-
nam um að bregðast tafarlaust við.
Utanríkisráðuneyti Kína hafði áður
farið þess á leit við stjórnvöld í
Hanoi að hagsmunir Kínverja í Víet-
nam yrðu tryggðir og ítrekað yfir-
ráð Kína yfir eyjunum, sem Víet-
namar hafa gert tilkall til.
Þúsundir mótmæltu við kínverska
sendiráðið í Hanoi á sunnudag en ol-
íuborun Kínverja við Paracel-eyjar
hófst á föstudag. Víetnamar segja að
borpallinum hafi fylgt 60 kínversk
skip, þar á meðal herskip, og saka
Kínverja um að sigla viljandi utan í
víetnömsk skip á svæðinu.
VÍETNAM
Kveiktu í kínverskum verksmiðjum
Reykur frá
verksmiðjunum.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Forsætisráðuneyti Tyrklands lýsti í
gær yfir þriggja daga þjóðarsorg
vegna námuslyssins í borginni Soma
á þriðjudag. Forsætisráðherrann
Recep Tayyip Erdogan sagði að
a.m.k. 238 hefðu látið lífið þegar
sprenging varð í spennubreyti og
allt að 120 væru enn fastir í nám-
unni. Tölur varðandi slysið eru á
reiki en orkumálaráðherrann Taner
Yildiz sagði á þriðjudag að 787 hefðu
verið í námunum þegar slysið varð.
CNN sagði í gær að 88 hefðu komist
upp úr námunum en New York Tim-
es hafði eftir tyrkneskum fjölmiðlum
að 360 hefði verið bjargað, þar af ein-
hverjum sem lifðu sprenginguna af.
Þúsundir skyldmenna námu-
mannanna söfnuðust saman við
námuna og nærliggjandi spítala í
gær. Þá voru hundruð björgunar-
manna að störfum. Lofti var dælt inn
í þann hluta ganganna þar sem eng-
inn eldur var en einn starfsmaður
námunnar í Soma sagði að gasgrím-
urnar sem námamennirnir bæru
dygðu aðeins í 45 mínútur. Orku-
málaráðherrann sagði í gær að vonir
manna um björgun þeirra sem enn
væru í námunni færu dvínandi en
ekki væri hægt að útiloka að ein-
hverjum hefði tekist að finna lítil
rými þar sem þeir gætu hafst við og
dregið andann.
Pólitískt bitbein?
„Þetta var ekki slys, þetta var
vanræksla,“ sagði ein fyrirsögn í
tyrknesku dagblaði í gær. Þá sögðu
gagnrýnisraddir að verkafólk hefði
verið skilið eftir við illan aðbúnað í
velmegunarkapphlaupi Tyrklands.
Erdogan varaði stjórnmálamenn við
því að notfæra sér harmleikinn í póli-
tískum tilgangi en í aprílmánuði
höfnuðu stjórnvöld tillögu stjórnar-
andstöðunnar um að stofna til rann-
sóknar á tyrkneskum námum í kjöl-
far ítrekaðra dauðaslysa. Sagði
forsætisráðherrann að umrædd
náma í Soma hefði staðist öryggis-
skoðun í mars síðastliðnum.
Lítil von að fleiri finnist á lífi
AFP
Harmleikur Björgunarmenn bera látna námuverkamenn úr námunni.
Sorg Kona grætur í örmum björgunarmanns eftir að hafa fengið þær fregn-
ir að bróðir hennar hafi látið lífið í námuslysinu í Soma á þriðjudag.
Að minnsta kosti 238 látnir eftir sprengingu í námu í Tyrklandi Eldar geisa í námunni en allt að
120 var enn saknað í gær Gætu mögulega hafst við í litlum rýmum Vekur spurningar um öryggi
Reiði Lögregla beitti táragasi og vatnsbyssum gegn um 800 mótmælendum
sem söfnuðust saman við orkumálaráðuneytið í Ankara í gær.