Morgunblaðið - 15.05.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Þunglyndi er helsta orsök veikinda og örorku
meðal unglinga og sjálfsvíg eru þriðja helsta
dánarorsök ungmenna í heiminum, samkvæmt
nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar,
WHO. Skýrslan byggist á fjölda rannsókna auk
viðtala við ungmenni á aldrinum 10-19 en Flavia
Bustreo, yfirmaður þeirrar deildar stofnunar-
innar sem fjallar um heilsu fjölskyldna, kvenna
og barna, segir að ríki heims hafi ekki sinnt heil-
brigði ungmenna sem skyldi.
Samkvæmt skýrslunni benda sumar rann-
sóknir til þess að helmingur alls fólks sem
greinist með geðsjúkdóma sýni einkenni fyrir
14 ára aldur. „Ef ungmenni sem þjást af geð-
sjúkdómum fá þá umönnun sem þau þarfnast,
má koma í veg fyrir dauðsföll og þjáningar á
lífsleiðinni,“ segir í skýrslunni.
Í rannsókn WHO var litið til fjölda þátta, s.s.
tókabs-, áfengis- og fíkniefnaneyslu, HIV,
meiðsla, geðheilbrigðis, næringar, kynheil-
brigðis og ofbeldis. Meiðsl af völdum umferð-
arslysa voru annar stærsti orsakavaldur veik-
inda og örorku á eftir þunglyndi en dánartíðni
pilta var þrisvar sinnum hærri en hjá stúlkum.
Stofnunin segir brýnt að ríki dragi úr áhættu í
umferðinni með því að auka aðgengi að áreiðan-
legum og öruggum almenningssamgöngum,
bæta regluverk um hraðatakmarkanir t.d. og
tryggja öruggar leiðir fyrir gangandi vegfar-
endur ummhverfis skóla.
Samkvæmt WHO létu 1,3 milljónir unglinga
lífið árið 2012 en helstu dánarorsakirnar voru
áverkar eftir umferðarslys, alnæmi og sjálfsvíg.
Fjöldi HIV-smitaðra ungmenna er að aukast en
fjölgunin virðist bundin við Afríku. Meðal
stúlkna var sjálfsvíg algengasta dánarorsökin
en næststærsti hópurinn lést við barnsburð.
Brotna undan gríðarlegu álagi
Ríkisfjölmiðlar í Kína sögðu frá því í gær að
ný rannsókn benti til þess að sjálfsvíg meðal
skólabarna mætti í flestum tilfellum rekja til
þess gríðarlega álags sem lagt væri á börnin.
Opinber gögn benda til þess að um 500 börn
svipti sig lífi í Kína á ári hverju en samkvæmt
niðurstöðum rannsóknar á 79 sjálfsvígum
barna, áttu 93% sér stað eftir rifrildi milli nem-
anda og kennara eða eftir að barnið upplifði
mikið álag í tengslum við nám sitt.
Fyrr í þessum mánuði hengdi 13 ára drengur
sig í Jiangsu eftir að honum tókst ekki að ljúka
við heimalærdóm sinn. Viðverutími í kínversk-
um skólum er allt að 12 klukkustundir og oft er
gert ráð fyrir að nemendur verji tveimur til
fjórum tímum í heimalærdóm. Samkvæmt
rannsókninni áttu tveir þriðju sjálfsvíganna sér
stað á prófatíma. Sérfræðingur í kennslumálum
sagði í samtali við China Daily að auka þyrfti
samskipti milli nemenda, foreldra og kennara.
Þunglyndi helsta orsök sjúkleika
Sjálfsvíg eru þriðja helsta dánarorsök ungmenna í heiminum Ríki heims hafa vanrækt heil-
brigði ungmenna Bæta þarf umferðarmenninguna til að draga úr meiðslum og dauðsföllum
AFP
Æska Samkvæmt skýrslunni stafar fjölda ungmenna bráð hætta af smitsjúkdómum.
Vonir manna um lausn í málefnum
Sýrlands fara þverrandi eftir að
Lakhdar Brahimi, sérlegur sendi-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sagði
af sér á þriðjudag. Þá segja sér-
fræðingar að yfirvofandi endurkjör
Bashar al-Assad Sýrlandsforseta
gefi ekki tilefni til að ætla að
stjórnvöldum sé alvara með við-
ræðum við stjórnarandstöðuna um
nýja bráðabirgðastjórn.
Brahimi mun láta af embætti
sendifulltrúa 31. maí nk. en honum
tókst m.a. að koma á viðræðum full-
trúa stríðandi fylkinga í Genf fyrr á
árinu, sem var slitið eftir tvær
fundarlotur. Brahimi sagðist afar
hryggur yfir því að skilja við Sýr-
land í svo slæmu ástandi og sendi
afsökunarbeiðni til sýrlensku þjóð-
arinnar, fyrir að hafa ekki getað
veitt henni þá hjálp sem hún verð-
skuldaði.
Ásakanir á báða bóga
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði hins
vegar að klofningi meðal sýrlensku
þjóðarinnar, Mið-Austurlanda og al-
þjóðasamfélagsins í heild væri um
að kenna.
Fjölmiðlar í Sýrlandi virðast ekki
syrgja afsögn Brahimi og hafa
ásakað hann um að ganga erinda
Sádi-Arabíu en þarlend stjórnvöld
hafa veitt uppreisnarmönnum í Sýr-
landi ötulan stuðning. William
Hague, utanríkisráðherra Bret-
lands, segir hins vegar að það sé
sýrlenskum stjórnvöldum að kenna
að engar viðræður standi yfir, þar
sem þau hafi neitað að taka á rót
vandans.
Utanríkisráðherra Frakklands,
Laurent Fabius, sagði á þriðjudag
að sýrlensk stjórnvöld hefðu beitt
efnavopnum, þ.á m. klórgasi, fjór-
tán sinnum síðan seint á síðasta ári
og harmaði að Bandaríkjamenn
hefðu ekki látið verða af hernaðar-
aðgerðum í refsingaskyni í fyrra.
holmfridur@mbl.is
Væntingar þverra
um lausn í Sýrlandi
Sérlegur sendi-
fulltrúi segir af sér
AFP
Hættur Brahimi bað sýrlensku þjóð-
ina afsökunar á afrakstursleysinu.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Gotti
Staflanlegur fjölnota stóll
með eða án arma
Fáanlegur í mörgum litum
Verð frá kr. 28.500
Gerum tilboð í stærri verk
www.facebook.com/solohusgogn
Íslensk hönnun og framleiðsla
Ný hönnun frá
Sturlu Má Jónssyni
Flokkunarílát
sem einfalda ferlið
Viðarhöfða 2 110 Reykjavík | Sími 577 6500 | www.takk.is | takk@takk.is
ýmsar stærðir
og gerðir