Morgunblaðið - 15.05.2014, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2014
Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær og er
hún sú 67. í röðinni. Opnunarmynd hátíðarinnar í
ár var Grace of Monaco og að venju var mikið um
dýrðir á rauða dreglinum fyrir sýningu hennar,
kvikmyndastjörnur og leikstjórar stilltu sér upp
í sínu fínasta pússi fyrir ljósmyndaramergðina.
Grace of Monaco, eftir leikstjórann Olivier
Dahan, fjallar um leikkonuna Grace Kelly og
hjónaband þeirra Rainier III prins af Mónakó.
Myndin hefur hlotið heldur neikvæða gagnrýni
það sem af er, m.a. í tímaritinu Empire þar sem
segir að myndin sé oft sprenghlægileg þó hún
eigi alls ekki að vera það. Þá hefur fursta-
fjölskyldan í Mónakó einnig lýst yfir andúð sinni
á myndinni, m.a. Stefanía prinsessa sem telur
ranga mynd dregna upp af sambandi foreldra
sinna í henni.
18 kvikmyndir munu keppa um aðalverðlaun
hátíðarinnar, Gullpálmann og er myndin um
Kelly ekki þeirra á meðal. Gullpálminn verður
afhentur við lok hátíðarinnar, 24. maí, ásamt
öðrum verðlaunum og meðal leikstjóra sem
myndir eiga í aðalkeppninni eru þungavigtar-
mennirnir Mike Leigh, Ken Loach og David
Cronenberg. Í flokkinum Un Certain Regard
verður sýnd fyrsta kvikmynd Ryan Gosling leik-
stýrir, Lost River, en hún var klippt hér á landi
af Valdísi Óskarsdóttur, eins og frægt er orðið.
Leikstjórinn Quentin Tarantino mun loka há-
tíðinni með sérstakri sýningu á endurbættri út-
gáfu spagettívestra Sergio Leone, A Fistful of
Dollars, sem á 50 ára afmæli.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær með sýningu á kvikmyndinni Grace of Monaco
Umdeild opnunarmynd
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Stjörnur Leikararnir Nicole Kidman og Tim Roth (lengst til hægri) á rauða dreglinum ásamt leikstjóranum Olivier Dahan prýddur höfuðfati.
Skrautbúin Kvikmyndaleikkonan Jane
Fonda skartaði sínu fegursta í tilefni dagsins.
Pósur Sýningarstúlkur frá L’Oréal komu fram í glæsilegum kjólum og kepptust um athygli
ljósmyndaranna á staðnum. Aðrir kvikmyndagestir létu sér fátt um finnast um allt tilstandið.
Dómarar Meðal þeirra sem sitja í dómnefndinni í Cannes þetta árið eru Gael
García Bernal, Jane Campion, Sofia Coppola og Leila Hatami.
Sem drottningu sæmir Viðeigandi var að sjá
íburðarmikla kórónu á rauða dreglinum.
Aðdáun Augljóst var að aðalleikkonan, Nicole Kidman, átti hug
og hjörtu áhorfenda sem fylgdust hugfangnir með.