Morgunblaðið - 20.05.2014, Síða 9

Morgunblaðið - 20.05.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014 Fundurinn verður haldinn í Fákafeni 9, 108 Reykjavík Dagskrá fundarins Venjuleg aðalfundarstörf Aðalfundur Blátt áfram verður haldinn þriðjudaginn 27. maí kl: 16:00 Fallegar peysur toppar, bolir, buxur, leggings og pils fyrir konur á öllum aldri Stærðir S-XXXL Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Ný sending Verið velkomin Einnig eigum við alltaf vinsælu velúrgallana í stærðum S-XXXXL 15% kynningar afsláttur Verð aðeins kr. 49.467 m. vsk. Fullt verð kr. 58.197 Framleiðir 15kg. á sólarhring Stuttur framleiðslutími á klökum Alvöru klakavél fyrir heimilið Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Frábær í sumar- bústaðinn Stuttermabolir Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Str: 40-56/58 Fleiri litir kr. 4.900 Dr. Eyjólfur Guð- mundsson verður næsti rektor Há- skólans á Akur- eyri. Mennta- og menningamála- ráðherra hefur samþykkt tillögu þess efnis frá há- skólaráði. Alls bárust sjö umsóknir um starfið. Ráð- ið er til fimm ára í senn og má gera ráð fyrir að rektorsskiptin fari fram 1. júlí nk. Stefán B. Sigurðsson, frá- farandi rektor, mun starfa áfram við Háskólann á Akureyri sem prófessor. Dr. Eyjólfur Guðmundsson hefur undanfarin ár starfað sem sviðsstjóri greiningar og sem aðalhagfræðingur CCP hf. Áður starfaði hann í tæpan áratug við Háskólann á Akureyri, undir lokin sem deildarforseti við- skipta- og raunvísindadeildar og hef- ur þaðan reynslu á sviði kennslu og rannsókna. Eyjólfur valinn rektor Háskólans á Akureyri Eyjólfur Guðmundsson 365 miðlar hafa tekið yfir alla hluti í Konunglega kvikmyndafélaginu samkvæmt samkomulagi sem fyrir- tækið hefur gert við hluthafa síðar- nefnda félagsins. Það hefur rekið sjónvarpsstöðvarnar Bravó og Miklagarð. Fjölmiðillinn Bravó heldur áfram en ákveðið hefur verið að Mikligarð- ur fari í sumarfrí frá og með 1. júní á meðan nýir eigendur endurhugsa grundvöll þeirrar stöðvar. Konunglega kvikmyndafélagið til- kynnti 30. apríl að félagið leitaði aukins hlutafjár til að styrkja rekst- ur félagsins. Um leið var öllum starfsmönnum þess sagt upp. Ástæðan var sögð sú að kostnaður við uppsetningu fjölmiðlanna hefði reynst meiri en áætlað var og hlut- hafar hefðu ekki viljað skuldsetja áframhaldandi rekstur. Niðurstaðan varð sú að 365 miðlar tækju yfir alla hluti í félaginu. Sigmar Vilhjálmsson, einn af stofnendum Konunglega kvik- myndafélagsins, mun víkja sæti en hann segist bjartsýnn á að starfs- fólkið komi til með að halda störfum sínum. „Þetta er kannski ekki það sem við lögðum upp með í upphafi, en það er ljóst að 365 mun geta unnið með þessa miðla eins og við ætluðum að vinna með þá, allavega Bravó. Það er að minnsta kosti nokkuð ljóst. Þeir munu örugglega ná fyrr settu marki,“ segir Sigmar. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir í tilkynningu að áhugi sé á að nýta tæknibúnað Konunglega kvik- myndafélagsins og samþætta hluta af starfsemi þess við starfsemi 365 miðla. Konunglega rennur inn í 365 miðla  Mikligarður settur í sumarfrí frá 1. júní Friðlýsing fólk- vangs í Bringum í Mosfellsbæ verður staðfest af um- hverfis- og auðlind- aráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni, í dag kl. 17. Athöfnin fer fram í Bringum. Markmiðið með friðlýsingu hluta jarðarinnar Bringna sem fólkvangs er að vernda svæðið til útivistar almennings, nátt- úruskoðunar og fræðslu. Friðlýs- ingin verndar auk þess sérstakar náttúru- og menningarminjar. Við sama tækifæri munu bæjar- stjóri Mosfellsbæjar og forstjóri Um- hverfisstofnunar undirrita samning um umsjón fólkvangsins. Að athöfn lokinni mun Bjarki Bjarnason, for- maður umhverfisnefndar Mosfells- bæjar, leiða fræðslugöngu um fólk- vanginn og að henni lokinni verður boðið upp á hressingu. Friðlýsing fólkvangs í Mosfellsbæ Helgufoss í Bring- um í Mosfellsdal. Björn R. Einarsson, hljómsveitarstjóri er látinn, 91 árs gamall. Björn fæddist í Reykja- vík 16. maí árið 1923. Hann var sonur hjónanna Ingveldar Rósenkranz Björns- dóttur, húsfreyju og kjólameistara, og Ein- ars Jórmanns Jóns- sonar, hárskurðar- meistara og tónlistarmanns. Meistaraprófi í rak- araiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík lauk Björn vorið 1945 og stundaði hann píanó- og básúnunám á árunum 1936-53, meðal annars við Tónlistarskólann í Reykjavík. Björn lék með Hljómsveit Reykja- víkur, Hljómsveit Ríkisútvarpsins og Hljómsveit FÍH og var fyrsti bás- únuleikari Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands frá stofnun hennar 1950. Hann lék með sinfóníuhljómsveitinni til ársloka 1994 er hann lét af störfum fyrir aldursakir. Þá lék Björn með danshljóm- sveitum frá stríðslokum, ýmist með hljómsveitum undir eigin nafni eða annarra við miklar vinsældir. Björn kenndi hljóð- færaleik m.a. við tón- listarskólana í Reykja- vík og Garðahreppi. Hann var um árabil formaður Lúðrasveitar Reykjavíkur og stjórn- aði sveitinni einnig í nokkur ár. Björn sat um hríð í stjórn FÍH og einnig í starfs- mannastjórn sinfón- íuhljómsveitarinnar. Hann var sæmdur gullmerki FÍH á 50 ára afmæli fé- lagsins og riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu árið 2007. Árið 2010 hélt Jazzhátíð Reykjavíkur honum heiðurstónleika og var hon- um um leið þakkað frumkvöðlastarf í þágu djassins á Íslandi. Eiginkona Björns var Ingibjörg Gunnarsdóttir húsmóðir og hár- greiðslukona sem lést árið 1999. Þau eignuðust fimm börn; Gunnar, Björn, Ragnar, sem er látinn, Ragn- heiði og Odd. Fyrir átti Björn soninn Jón. Andlát Björn R. Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.