Morgunblaðið - 20.05.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.05.2014, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014 Afmælisdagurinn verður óvenjulegur í ár því hann fer í aðverja ritgerðina mína en ég er að útskrifast með meistara-gráðu í lögfræði. Ætli ég slaki ekki á um kvöldið og við fjölskyldan borðum eitthvað gott,“ segir Hanna Björg Konráðs- dóttir, sem er 31 árs í dag. Hanna hlakkar til sumarsins og stefnan er sett á að veiða í nokkrum ám enda þykir henni fátt skemmtilegra en að vera úti í náttúrunni og renna fyrir fisk. Í sumar verður það í Flekkudalsá, Geir- landsá og Brynju- dalsá. Í æsku fór hún alltaf með föður sín- um að veiða, en eftir að hún kynntist eigin- manni sínum, Jóhann- esi Þórhallssyni, þá kviknaði veiðiáhuginn á ný. Hanna er mikið fyrir útivist og stefna þau hjónin á að ferðast um óbyggðir landsins í sumar með dætrunum tveimur El- ísabetu 7 ára og Ey- dísi 3 ára. Tónlistaráhugi Hönnu er mikill en hún spilar á fiðlu og hefur á undanförnum árum spilað mikið í Keflavíkurkirkju með organistanum Arnóri Vilbergssyni. Hanna ólst upp í Keflavík og er búsett þar. Hún vill hvergi annars staðar vera, en við sjóinn, þrátt fyrir að hjónin keyri bæði til Reykjavíkur í vinnu. Undanfarið hefur Hanna einnig unnið að prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ en hún skip- ar 12. sætið. „Að taka þátt í prófkjörinu hefur kveikt pólitíska ástríðu. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og áhugavert og ekki eins strembið eins og ég hafði búið mig undir.“ thorunn@mbl.is Hanna Björg Konráðsdóttir er 31 árs Fjölskyldan Afmælisbarnið Hanna ásamt eiginmanni sínum, Jóhannesi og dætrum þeirra tveimur, Elísabetu og Eydísi. Ver meistararit- gerð í lögfræði Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Nýir borgarar Hafnarfjörður Alexandra Björk fædd- ist 13. mars kl. 17.05. Hún vó 13 merk- ur og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Dana Björk Erlingsdóttir og Einar Líndal Aðalsteinsson. Akureyri Rannveig Rut fæddist 25. ágúst. Hún vó 3.545 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Helga Rut Sæmundardóttir og Reynir Sverrir Sverrisson. Þ ór Bæring Ólafsson fæddist í Reykjavík 20.5. 1974 en ólst upp í Garðabæ. Þór var í Hof- staðaskóla, Flataskóla og Garðaskóla í Garðabæ, stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Garða- bæ og útskrifaðist 1995. Árið 2007 útskrifaðist Þór úr Háskóla Reykja- víkur sem rekstrarfræðingur og þá tók við nám í Háskólanum á Akur- eyri í viðskiptafræði með áherslu á ferðaþjónustu en þaðan útskrifaðist Þór 2010. Starfsferill Þór byrjaði snemma að vinna en 10 ára var hann byrjaður að bera út Morgunblaðið í Holtsbúð í Garðabæ. „Það var kannski þar sem fjölmiðla- bakterían fór að láta kræla á sér en stuttu síðar eða þegar ég var 13 ára var ég með minn fyrsta útvarpsþátt Þór Bæring Ólafsson, framkvæmdastjóri Gaman Ferða – 40 ára EM kvenna í fótbolta Þór Bæring, Tinna Sól og Benjamín Bæring á leiðinni á landsleik Íslands og Noregs 2013. Útvarpsmaður og ferðaskipuleggjandi Hlaupahópurinn MassaRun Þór Bæring, Valgeir Bergmann og Jón Óli Ólafsson eftir maraþon sem þeir hlupu í Kaupmannahöfn árið 2012. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Örvar vöðva, styrkir þá og lyftir. Meðferðin tekur 30-45 mínútur. HYDRADERMIE LIFT Andlitslyfting án skurðaðgerðar! Snyrtistofur sem bjóða Hydradermie Lift meðferð og Guinot vörur: Snyrtistofan Gyðjan – s. 553 5044 Snyrtistofan Ágústa – s. 552 9070 Snyrtistofan Hrund – s. 554 4025 Snyrtistofan Ársól – s. 553 1262 Snyrtistofa Marínu – s. 896 0791 GK snyrtistofa – s. 534 3424 Snyrtistofan Garðatorgi – s. 565 9120 Dekurstofan – s. 568 0909 Guinot-MC stofan – s. 568 9916 Snyrtistofan Þema – s. 555 2215 Snyrtistúdíó Önnu Maríu – s. 577 3132 SG snyrtistofa – s. 891 6529 Landið: Snyrtistofa Ólafar, Selfossi – s. 482 1616 Snyrtistofan Abaco, Akureyri – s. 462 3200 Snyrtistofan Lind, Akureyri – s. 462 1700 Snyrtistofa Guðrúnar, Akranesi – s. 845 2867 Snyrtistofan Sif, Sauðárkrókur – s. 453 6366 www.guinot.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.