Morgunblaðið - 20.05.2014, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014
FYLGIFISK Á GRILLIÐ
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
Pantaðu tilbúna grillpakka
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur)
Lágmarkspöntun er fyrir 4 - grillpakka þarf að panta fyrirfram
Pakki 1 - spjót
Kryddlegið fiskispjót
Fyllt kartafla
Grískt salat
Grillsósa
1.495 kr/manninn
Pakki 2 - steik
Kryddlegin laxasteik
Kartöflusalat
Grænmeti á grillið
Grillsósa
1.695 kr/manninn
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þinn helsti kostur núna er hversu
gott þú átt með að trúa á getu þína og horfa
með bjartsýni fram á veginn. Farðu varlega í
samskiptum þínum við vini og vandamenn.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef verkefnið sem blasir við þér er eitt-
hvað sem þú hefur gert þúsund sinnum, leið-
ist þér sem aldrei fyrr. Ef þú breytir hugs-
unarhættinum, gætir þú skemmt þér betur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér hættir til að lifa í sjálfsblekk-
ingu varðandi ástarsamband. Enginn er ey-
land og þú þarft félagsskap eins og aðrir.
Láttu það eftir þér að líða vel.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt einstakar uppákomur haldi lífinu
spennandi, þá þarf sönn hamingja ekki á ut-
anaðkomandi örvun að halda. Segðu það sem
þér býr í brjósti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Djúpt innra með þér er vera sem langar
til þess að spígspora. Sinntu þínum áhuga-
málum og njóttu þess að vera ein/n með
sjálfum/ri þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú veist betur en að bíða eftir því að
hlutirnir gerist. Allt sem þú ert í dag, er af-
leiðing þess sem þú varst í gær. Mundu að
hver er sinnar gæfu smiður.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert eins falleg/ur og þér finnst þú
vera – það eru góðar fréttir þar sem þér
finnst þú æði í dag. Gæfa tengist nýjum vin-
um, samskiptum við útlönd og ferðalagi um
netið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að halda þig sem mest
við skipulagða dagskrá en vertu um leið
sveigjanleg/ur ef eitthvað kemur upp á. Hvað
sem þú segir í dag, verður orðið breytt á
morgun.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er tímabært að safna kröft-
um og endurskipuleggja sig fyrir það sem eft-
ir er af árinu. Gefðu þér líka tíma til að eiga
samverustundir með fjölskyldunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gerir miklar kröfur til þín og
annarra og setur þér oft ströng skilyrði. Not-
aðu daginn og farðu í leikhús, á íþrótta-
viðburð eða í bíó.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er á hreinu að þú verður að
taka á málum af fullri alvöru. Annars nærðu
litlum eða engum árangri í starfi. Fáðu aðra
með þér í lið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Farðu varlega í að kaupa hluti að óat-
huguðu máli. Viðbrögðin sem þú færð eru til-
finningaríkari en endranær.
Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum, þar sem hann sólaði
sig niðri á Austurvelli með ölglas
í hendi. Einhvern veginn atvik-
aðist það svo, að við fórum að
tala um „aðkomu-bragarhætti“
eins og hækur. Ég kenndi honum
þessa:
Saman á þingi
sátum heilan mannsaldur
Jóhanna og ég.
Hann brosti og bætti við:
„Krían er komin!“
Skúli Alexandersson
gáir til veðurs.
Skúli er frá Hellissandi og sat
lengi á þingi. Þar í hlaðvarpanum
upp af Keflavíkurbjargi er mesta
kríuvarp á Íslandi, ef ekki í heim-
inum.
Þá var röðin komin að mér:
Vor er í lofti.
Margæs sést á túnunum
á Bessastöðum.
Og karlinn:
Kerlingin viðrar
sjalið sitt á holtinu
þar sem varðan stóð
Og ég:
Húsameistarinn
hleypur Hofsvallagötu
á eftir starra.
Og karlinn.
Á Lækjartorgi
sá ég lögreglukonu
hjóla á hjóli.
„Glerhús“ kallast skemmtilegur
háttur innfluttur og skýrir sig
sjálfur, – línur eru fjórar og ríma
saman tvær og tvær. Það er ein-
kenni glerhúss að það hefur sagn-
fræðilega skírskotun og/eða teng-
ist nafnkunnri persónu lífs eða
liðinni. Karlinn er kirkjurækinn
og þekkir vel til:
Séra Hjálmar
dómkirkjugólfið skálmar
og guðs orð gjörir að ríma
við síðustu og verstu tíma.
Ég var með hugann við næsta
hús:
Hún er þrálát og lífseig sú sögn
að fjarvera forsætisráðherra sé
æpandi þögn:
- ég legg við eyra
og langar að heyra.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á kvöldgöngu með karl-
inum á Laugaveginum
Í klípu
„JÁ, ÉG FÉKK TÖLVUPÓSTINN FRÁ ÞÉR.
VAR HANN Á DULMÁLI, EÐA ERTU BARA
SVONA LÉLEGUR Í STAFSETNINGU?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ER KVÖLDMATURINN SEMSAGT TIL?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að þykjast vera að
dansa við hann.
ÞAÐ ER MAÐUR
ÚTI AÐ SPYRJAST
FYRIR UM STARF.
HVAÐ KANN
HANN FYRIR
SÉR?
HANN VINNUR
VIÐ NIÐURRIF.
HVAÐ ÆTLI ÉG GETI
LABBAÐ LANGT?
VIÐ KOMUMST
ALDREI AÐ ÞVÍ.Eyðimerkurgöngu Arsenal laukum helgina þegar þetta forn-
fræga enska knattspyrnufélag vann
sinn fyrsta bikar í níu ár. Lagði Hull
City 3:2 í úrlitaleik bikarkeppni
enska knattspyrnusambandsins.
Frá því Arsenal vann sinn fyrsta tit-
il, enska meistaratitilinn 1930 undir
stjórn Herberts heitins Chapmans
er þetta næstlengsta þurrkatíðin í
sögu félagsins. Sú lengsta stóð í heil
sautján ár, frá 1953, þegar Arsenal
varð enskur meistari, til 1970 að svo-
nefndur Borgabikar Evrópu (Inter-
Cities Fairs Cup) kom í hús.
x x x
Að vísu liðu tíu ár milli meistara-titla 1938-48 en þess á milli fóru
aðeins fram tvö mót vegna heims-
styrjaldarinnar síðari.
Þetta var ellefti bikarmeistaratit-
ill Arsenal sem jafnaði þar með met
Manchester United. Fimm af þess-
um titlum hafa unnist í tíð núverandi
knattspyrnustjóra, Arsènes Weng-
ers. Frakkann vantar nú aðeins einn
sigur í viðbót til að jafna met Skot-
ans George Ramsays sem vann bik-
arinn sex sinnum með Aston Villa á
árunum 1887 til 1920.
x x x
Enginn leikmaður hefur skoraðfyrir Arsenal í fleiri en einni úr-
slitaviðureign um enska bikarinn.
Ian Wright skoraði að vísu í báðum
leikjum gegn Sheffield Wednesday
1993 en það var sama viðureignin. Á
þeim árum var úrslitaleikurinn end-
urtekinn lyki honum með jafntefli.
Fredrik Ljungberg skoraði í
tveimur bikarúrslitaleikjum í röð,
gegn Liverpool 2001 og Chelsea
2002, en sá fyrrnefndi tapaðist.
x x x
Einn leikmaður hefur þó afrekaðað skora fyrir Arsenal í tveimur
úrslitaleikjum, Skotinn Eddie Kelly.
Hann gerði fyrsta mark Arsenal í
3:0 sigri á Anderlecht í síðari úrslita-
leiknum í Borgakeppni Evrópu 1970
og fyrra markið í sigrinum á Liver-
pool í úrslitum enska bikarsins ári
síðar. Varð þar með fyrsti varamað-
urinn til að skora í úrslitaleik þeirrar
ágætu keppni sem er sú elsta í heim-
inum. Kelly starfar nú við rúðuein-
angrun í Torquay.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Augu Guðs hvíla á vegferð mannsins,
hann horfir á hvert hans spor.
(Jobsbók 34:21)