Morgunblaðið - 20.05.2014, Síða 22
Elsku mamma
mín. Ég á fallega
minningu í mínum
huga. Ég mun aldr-
ei gleyma þegar ég
sá þig í síðasta skipti í apríl . Ég
fór að heimsækja þig á Grund til
að kveðja þig áður en ég færi
heim til Malmö næsta dag. Ég
varð að byrja á því að leita að
þér. Ég hélt að þú værir í þínu
Halldóra Ólafía
Guðlaugsdóttir
✝ Halldóra ÓlafíaGuðlaugsdóttir
fæddist 16. sept-
ember 1922. Hún
lést 10. maí 2014.
Útför hennar fór
fram 19. maí 2014.
herbergi og þyrftir
að hvíla þig. Þú
varst alls ekki í þínu
herbergi. Ég fann
þig eftir nokkra leit
í einum af sölunum
á Grund. Þú varst
orðin veik en samt
sast þú eins og
drottning, vel til-
höfð að venju, að
spila vist á fullu með
góðum vinkonum og
með bros á vör. Þetta lýsir þér
svo vel. Sofðu rótt, elsku
mamma, þú munt alltaf verða í
mínu hjarta.
Þinn sonur
Óli Valur.
✝ Ásdís Vigfús-dóttir fæddist
26. október 1926.
Hún lést 30. apríl
2014.
Ásdís fæddist
og ólst upp á
Flókastöðum í
Fljótshlíð, dóttir
hjónanna Vigfúsar
Ísleifssonar og
Jónínu Steinunnar
Einarsdóttur, ábú-
enda og bænda þar. Ásdís var
þriðja yngst tíu systkina en nú
er aðeins eftir lifandi Sig-
mundur bóndi á Flókastöðum.
Látin eru Þorsteinn, Helgi,
Gunnar, Ísleifur, Albert, Héð-
inn, Guðríður Svava og Karl
Fyrri eiginmaður Ásdísar
var Birgir Hákon Valdimars-
son, þau skildu. Börn þeirra
eru 1) Sigfús, f. 1946. Kona
Sólveig Eva. Maður Ásdísar
Ólafar er Stefán Einar Matt-
híasson. Börn þeirra eru
Thelma Eir og Björn Thor en
fyrir á Stefán Einar þau Jó-
hönnu Klöru, Matthías og
Tómas Helga. 3) Valdimar Há-
kon, f. 1949. Kona hans er
Kristjana Sigríður Hjálmars-
dóttir og börn þeirra Rakel
Rut, f. 1971, Birgir Hákon, f.
1976, og Berglind Magdalena,
f. 1989, en fyrir átti Valdimar
Martein. Maður Rakelar Rutar
er Jón Svan Sigurðsson. Sam-
an eiga þau Guðlaugu Díönu
og Söru Ísabellu, en fyrir á
hún Birgittu Ásbjörnsdóttur,
Valdimar Brynjar og Krist-
jönu Rut Atlabörn. Börn Birg-
is Hákonar eru Arngrímur
Alex, Christopher Aron og
Karlotta Marie. Maður Berg-
lindar Magdalenu er Sölvi
Guðmundsson. Valdimar á síð-
an þrjú langafabörn sem eru
einu langalangömmubörn Ás-
dísar. Seinni eiginmaður Ás-
dísar var Kristinn Ólafsson út-
gerðarmaður. Þau bjuggu
lengst af í Grindavík og er
sonur þeirra Ólafur, f. 1965.
Kona hans er Þorbjörg Inga
Jónsdóttir og börn þeirra
Kristín Arndís (Kittý) og Jón
Kristinn. Fyrir átti Kristinn
synina Þorvald Jón, en dætur
hans eru Ragnheiður og Rakel
Eyja, og Ragnar Heiðar sem
féll frá fyrir nokkrum árum.
Ásdís kom sem ung kona til
Reykjavíkur. Hún skildi við
fyrri mann sinn eftir nokkurra
ára hjúskap og ól ein upp
eldri börn sín sem voru orðin
mikið til uppkomin þegar hún
tók saman við seinni eigin-
mann sinn. Ásdís og Kristinn
bjuggu mest af sínum búskap í
Grindavík en byggðu sér hús
við Hamratanga í Mosfellsbæ
við starfslok og bjó Ásdís þar
til þess að hún flutti á hjúkr-
unarheimilið Skógarbæ í
Reykjavík í byrjun árs 2013
og síðan hjúkrunar- og dvalar-
heimilið Hamra í Mosfellsbæ
sl. haust, en Kristinn lést
1998.
Útför Ásdísar fór fram frá
Lágafellskirkju í Mosfellsbæ
13. maí 2014.
hans er Guðríður
Þórðardóttir.
Saman eiga þau
Tryggva Þór, f.
1976, Þórð, f.
1978, og Ingi-
björgu, f. 1983, en
fyrir átti Sigfús
Svanhildi Björk, f.
1969. Maður henn-
ar er Ásgeir
Sverrisson og eru
börn þeirra Ás-
gerður Ósk og Sverrir. Kona
Tryggva Þórs er Helena Rós
Rúnarsdóttir og eiga þau Írisi
Tinnu. 2) Sigríður Guðrún,
eða Dídí, f. 1948. Maður henn-
ar er Gestur Bjarnason og
börn þeirra Bjarni, f. 1966, og
Ásdís Ólöf, f. 1971. Kona
Bjarna er Edda Guðrún
Guðnadóttir og börn þeirra
Guðni Ágúst, Guðrún María og
Kæra tengdamóðir mín, mig
langar að kveðja þig með örfá-
um orðum.
Ég sá þig fyrst þegar ég
kom heim til þín með syni þín-
um, Valdimari, þá 18 ára göm-
ul. Þú tókst vel á móti mér og
frá þeim tíma mynduðust með
okkur góð kynni og vinátta.
Frá þeim tíma urðum við góð-
ar vinkonur, sú vinátta entist
alla tíð og er ég þakklát fyrir
það.
Sérstaklega áttum við góðar
„prívat“-stundir á stofunni
minni á meðan hársnyrting
stóð yfir, mikið skrafað og
hlegið.
Þú varst traust og ákveðin
kona, en kaust að vera ekki í
sviðsljósinu.
Ég gleymi því aldrei hvað
þú varst hamingjusöm og glöð
þegar þið Kristinn fluttuð inn í
nýja húsið ykkar í Mosfellsbæ.
Í nálægð við Ólaf son ykkar og
Ingu tengdadóttur, en því mið-
ur urðu árin ykkar Kristins
saman þar ekki mörg. Þegar
Kristinn lést, þá dróst þú þig
til hlés. Á sama tíma fór
heilsa þín að bresta allt þar
til yfir lauk og þú lést á
Hjúkrunarheimilinu Hömrum
í Mosfellsbæ.
Bið ég guð að varðveita þig
að eilífu og styrkja aðstand-
endur þína.
Kveðja, þín tengdadóttir,
Kristjana
Hjálmarsdóttir.
Elsku fallega amma mín,
ákveðin, góð og klár,
voru einkennismerkin þín.
Skoðunum lástu ekki á,
og þú sást hlutina fyrir þér.
Þér leið ekki vel eftir að afi dó,
lokaðir gluggar og dimma settust að,
nú sameinst þið aftur á ný,
guð geymi þig.
Berglind Magdalena
Valdimarsdóttir.
Ásdís
Vigfúsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA MARGRÉT CORTES,
Silfurteigi 6,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 12. maí, verður jarðsungin frá
Laugarneskirkju miðvikudaginn 21. maí kl. 13.00.
Björg Cortes Stefánsdóttir, Halldór I. Elíasson,
Steinunn Guðbjörg Stefánsdóttir,
Stefán Valdimar Halldórsson,
Anna Margrét Halldórsdóttir, Haraldur Darri Þorvaldsson,
Steinar Ingimar Halldórsson, Xue Li,
Halldór Alexander, Jökull Ari
og Hugrún Eva Haraldsbörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HILMAR ÁGÚSTSSON,
fv. útgerðarmaður,
Herðubreið,
Raufarhöfn,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri miðvikudaginn 14. maí,
verður jarðsettur frá Raufarhafnarkirkju
laugardaginn 24. maí kl. 14.00.
Þóra Jones, Axel Alan Jones,
Kristbjörg Hilmarsdóttir, Ingólfur Sveinsson,
Valgeir Hilmarsson, Elín Högnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÖRN ERNST ELÍSSON,
lést á gjörgæsludeild FSA 7. maí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð.
Ingibjörg Elísdóttir,
Hafsteinn Elí Arnarson, Bethsaida Rún Arnarson,
Stefán Þór Arnarson, Ingibjörg Óskarsdóttir,
Anna Snjólaug Arnardóttir, Hafsteinn Linnet,
Líney Björk Arnardóttir, Guðmundur Ágúst Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, sonur, tengdasonur,
mágur og bróðir,
JÓN HÁKON ÁGÚSTSSON,
lést á Bíldudal fimmtudaginn 15. maí.
Útför fer fram frá Bíldudalskirkju fimmtu-
daginn 29. maí kl. 14.00.
Guðbjörg J. Theódórs,
Veronika Karen Jónsdóttir,
Sylvía Björt Jónsdóttir,
Kristjana Maja Jónsdóttir,
Jóna Maja Jónsdóttir,
Ragnheiður K. Benediktsdóttir, Jón Theódórs,
systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Yndisleg móðir okkar,
KRISTÍN ÁRNADÓTTIR,
Sporðagrunni 14,
Reykjavík,
er látin.
Árni Björn,
Ólafur,
Björg,
Auður
og Einar Stefánsbörn.
✝ Sigríður Mar-grét Jónsdóttir
fæddist hinn 22.
janúar 1934 í Holti
við Dalvík. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akureyrar hinn 21.
apríl 2014.
Hún var sjöunda
barn þeirra hjóna
Jóns Emils Ágústs-
sonar, f. 1888, d.
1947, frá Sauða-
neskoti á Upsaströnd og Jó-
hönnu Sigurbjargar Halldórs-
dóttur, f. 1891, d. 1975, frá
Litlu-Hámundarstöðum á Ár-
skógsströnd. Systkini Sigríðar
voru Páll Sigurvin, f. 1912, d.
1982, Óli Arelíus, f. 1914, d.
1963, Halldór Ragnar, f. 1919,
d. 1996, Ágúst Árni, f. 1924, d.
1999, Almar Guðlaugur, f. 1927,
d. 2006, og Kristján Sigurberg,
f. 1931, búsettur í Hafnarfirði.
Sigríður bjó með Gunnlaugi
Sigvaldasyni í Hofsárkoti á ár-
unum 1968-1999, þá slitu þau
samvistir og hún flutti til Dal-
víkur. Barn hennar er Jón Emil
Ágústsson Gentry, f. 7. október
1954, börn hans eru Jóhann,
hans maki er Jóna
Sigurðardóttir,
börn þeirra eru
Lovísa Lea, Ívan
Logi og Sigurður
Nói; Jean Paul
Ragnar og Stephan
Almar. Börn Sig-
ríðar og Gunnlaugs
eru Jóhanna Krist-
ín, f. 29. mars
1967, maki hennar
er Þorvar Þor-
steinsson, börn þeirra eru Jón
Stefán og Eyþór Þorsteinn. Sig-
valdi, f. 29. maí 1969, maki
hans er Lára Jóhannesdóttir,
börn hans af fyrri samböndum
eru Gunnlaugur, dóttir hans
Krista Mist, og Alexander Elí.
Ólöf, f. 7. ágúst 1970, eigin-
maður hennar er Þórarinn
Gunnarsson, börn þeirra Sigríð-
ur Linda, Gunnar og Konkordía
Guðrún. Elín Hólmfríður, f. 28.
október 1971, maki hennar
Ólafur Haraldsson, börn þeirra
eru Helga María, Arnar Freyr
og Haraldur Andri.
Útför Sigríðar Margrétar var
gerð frá Dalvíkurkirkju 3. maí
2014.
Til okkar elskulegu móður:
Þótt móðir mín
sé nú aðeins minningin ein
mun ég ávallt minnast hennar
með glöðu geði
og dýpstu virðingu,
hugheilu þakklæti
og hjartans hlýju,
fyrir allt og allt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þú varst alltaf svo nærgætin
og skilningsrík,
umhyggjusöm og hjartahlý.
Þú varst skjól mitt og varnarþing.
Við stóðum saman í blíðu og stríðu,
vorum sannir vinir.
Mér þótti svo undur vænt um þig,
elsku mamma mín.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Jón Emil, Jóhanna,
Sigvaldi,Ólöf og Elín.
Sigríður Margrét
Jónsdóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
REIMAR SNÆFELLS,
fyrrverandi yfirsímaverkstjóri,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist laugardaginn 17. maí.
Inga G. Magnúsdóttir,
Kristinn Jakob Reimarsson, Ásdís Sigurðardóttir,
Guðrún Kristín Reimarsdóttir, Aðalsteinn Víglundsson,
Inga Snæfells Reimarsdóttir, Jens Snævar Sigvarðsson,
Linda Reimarsdóttir, Sveinn Ómar Grétarsson,
Pétur Reimarsson, Hera Sigurðardóttir,
Gréta R. Snæfells,
Fríða Sigurðardóttir, Þórður Þ. Þórðarson,
Erling Viðar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014
Að skrifa minningagrein
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum.
Minningargreinar