Morgunblaðið - 20.05.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.05.2014, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2014 Hafðu samband í síma 564-5520 eða bilajoa@bilajoa.is og bókaðu tíma. með allt fyrir bílinn Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is 564 5520 bilajoa.is Opið mánudaga til fimmtudaga 8-17 föstudögum 8-15 Fáðu okkur til að yfirfara bílinn fyrir sumarið Ef þú kemur til okkar í maí með bílinn í smurþjónustu eða hjólastillingu þá áttu möguleika á að vinna Ipad mini með tösku og bílfestingu. Dregið verður 2. júní Ipad er skemmti- legur í ferðalagið. –– Meira fyrir lesendur : Morgunblaðið gefur út glæsilegt sumarblað um Tísku og förðun föstudaginn 6. júní 2014 Tíska & förðun Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 2. júní. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna sumarið 2014 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira SÉRBLAÐ Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Morgan Kane var stofnuð árið 2008 og sendi nú í byrj- un árs frá sér sex laga skífu sem ber þann hvetjandi titil The way to sur- vive anything. Hljómsveitina skipa Magnús Þór Magnússon, gítarleik- ari og söngvari, Baldur Sigur- geirsson gít- arleikari, Stefán Örn Sveinsson trommuleikari, Jakob Veigar Sigurðsson bassaleikari og á plötunni leikur einnig Tinna Katrín Jónsdóttir á hljómborð og syngur. Blaðamaður hafði samband við Magnús og spurði hann fyrst út í nafn hljómsveitar- innar sem heitir í höfuðið á hinum eitursvala kúreka sem er söguhetja einhverra mest lesnu reyfara Ís- landssögunnar. Hefur ekki lesið Morgan Kane „Nafnið kom út frá því að félagi minn var að segja mér eitthvert nafn á bandi sem hann ætlaði að stofna, mér misheyrðist og hélt að hann hefði sagt Morgan Kane. Ég bar þetta undir félaga mína sem leist vel á að kalla bandið eftir þess- um svala karakter. Það hljómar vel og auðvelt að muna. Þunglyndur, drykkfelldur og kvensamur karakt- er á vel við okkur,“ segir Magnús. – Er einhver sérstök Morgan Kane-bók í uppáhaldi hjá þér? „Ég hef vitað af þessum karakter og bókum frá mínum unglingsárum en aldrei lesið neina af bókunum. Þarf kannski að fara að bæta úr því. Held þó að tveir úr bandinu hafi eitthvað lesið Morgan Kane.“ – Hljómsveitin var stofnuð fyrir sex árum og nú fyrst kemur plata. Hvernig stendur á því? „Við höfðum þrisvar áður tekið upp „demo“ af nokkrum lögum, en við vildum bíða með útgáfu þangað til við værum fullsátt með útkom- una. Þegar við fórum að vinna með upptökustjóranum Finnbirni Finn- björnssyni fannst okkur þetta hljóma eins og við vildum. Við höf- um tekið góðan tíma í þetta. Þó að platan sé nýkomin út þá voru upp- tökur gerðar 2012 og hljóðblöndun fullkláruð 2013. Eftir að hafa klárað upptökur á sex lögum voru pælingar að bæta við lögum og gera stóra plötu en okkur fannst rétti tíminn núna að koma þessu frá okkur og gefa út EP plötu,“ segir Magnús. -Segðu mér aðeins frá stofnun hljómsveitarinnar og meðlimum og hvers konar tónlist þið flytjið? „Á undan Morgan Kane var ég síðast í hljómsveit 1997-2001 sem kallaði sig Port. Árin þar eftir hafði ég lítinn áhuga á að vera í hljóm- sveit, en var alltaf að semja tónlist. Það var svo haustið 2008 sem ég og nokkrir félagar ákváðum að stofna hljómsveit. Við fórum að æfa upp lög og bæta við nýjum. Við höfum tekið okkur ágætis pásur inná milli og einhverjar mannabreytingar orð- ið eins og gengur og gerist.“ Melódískt en kraftmikið Tónlist Morgan Kane er undir áhrifum frá ýmsum tegundum rokk- tónlistar, blanda af „alternative/ indie“ rokki og nýbylgju, að sögn Magnúsar sem lýsir henni sem mel- ódískri og kraftmikilli. En um hvað fjalla textarnir? „Textarnir fjalla um upplifanir í lífinu, alkóhólisma, þunglyndi og depurð en líka um von. Titillinn á plötunni, The way to survive any- thing, er skírskotun í að tónlist hef- ur alltaf verið bjargvættur fyrir mér.“ – Nú heitir eitt lagið „Kill the cri- tic“. Er það óður til einhvers ákveð- ins gagnrýnanda? „Pælingin bakvið „Kill the critic“ var sú að ég sá einhverntíma mjög slæma gagnrýni sem íslensk hljóm- sveit fékk en ákvað nú að hlusta á plötuna sjálfur og fylgja ekki þess- ari gagnrýni, því ég hafði oft séð þessa hljómsveit á tónleikum og fannst hún frábær. Það kom svo í ljós að þetta var mjög góð plata, að mínu mati. Allavega voru nokkur lög á henni mjög góð og ég hlusta regu- lega á hana. Sjálfur hef ég ekki lent í lélegri gagnrýni þannig að þetta er ekki einhver gremja til ákveðins gagnrýnanda. Heldur er þetta sam- ið um að smekkur manna er misjafn. Gagnrýnendur geta haft mikið eyði- leggingarafl og fá borgað fyrir það,“ segir Magnús. Villandi að hafa kúreka -Af hverju er Morgan Kane ekki á plötuumslaginu? „Þó að nafnið sé fengið hjá ákveðnum karakter þá er fólki frjálst að tengja það eins og það vill. Þetta er í raun bara nafn, en við vildum alls ekki hafa mynd af kú- reka á umslaginu. Það er ekki eins og við séum að spila kántrítónlist. Því gáfum við hönnuði frjálsar hend- ur til að koma með hugmyndir að umslagi og okkur fannst takast mjög vel til þar sem umslagið fangar innihald og stefnu tónlistarinnar.“ „Drykkfelldur og kvensam- ur karakter á vel við okkur“  Morgan Kane sendi frá sér plötu sex árum eftir stofnun hljómsveitarinnar Morgan Kane Hljómsveitina skipa Magnús Þór Magnússon, Baldur Sigurgeirsson, Stefán Örn Sveinsson og Jakob Veigar Sigurðsson og á plötunni leikur einnig Tinna Katrín Jónsdóttir á hljómborð og syngur. Stjórn Reykjavíkur Bókmenntaborg- ar UNESCO hefur sent frá sér álykt- un vegna þess ófremdarástands að gestir sem koma til landsins geti ekki skoðað hand- rit Árnastofn- unar. Í ályktun- inni segir: „Árið 2011 hlaut Reykjavík útnefn- ingu sem ein af Bókmenntaborg- um UNESCO. Þessi vegtylla gefur höfuðborginni og landinu öllu aukna möguleika á því að kynna hið merka sköpunar- starf sem hér er unnið undir merkj- um orðlistar og bókmenningar. Veigamikill þáttur í umsókn Reykjavíkurborgar fólst í því að benda á að í borginni er varðveittur stór hluti af handritasafni Árna Magnússonar, gersemar sem eru á skrá UNESCO yfir Minni heimsins – og að hér sé miðstöð rannsókna á þessum mikilvæga arfi. Það skýtur því skökku við að frá síðasta hausti hefur verið nánast ómögulegt fyrir þá sem sækja borgina heim að fá að skoða þessi merku handrit, sem vekja þó aðdáun og eftirtekt allra sem komast í návígi við þau. Stjórn Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO skorar á ríkisstjórn Íslands að vinda bráðan bug að því að gera þessar heimsgersemar sýnilegar á nýjan leik, þar til þær eignast fram- tíðarheimili við hæfi á Melunum. Með stórri hugsun er hægt að leysa þetta hratt og vel.“ Heimsgersemar undir huliðshjálmi Nokkur handrit Torfi Ásgeirsson myndlistar- maður hefur opnað málverka- sýningu í Galleríi Ormi í Sögusetr- inu á Hvolsvelli. Í myndum hans eru dregnar fram tilvísanir til eiginda íslenskr- ar náttúru, horft til hafs og fjalla þar sem er heima- land fugla og friðsældar, eins og segir í tilkynningu. Sýningin stend- ur til 28. júní. Torfi í Galleríi Ormi Hluti málverks eftir Torfa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.