Morgunblaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Rósa Braga
Vallarstræti Hjálmar Sveinsson segir að tekið hafi verið tillit til sjónarmiða
þeirra sem mótmæltu deiliskipulagi við Landsímareit.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Hjálmar Sveinsson, varaformaður
skipulagsráðs í Reykjavík og vara-
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
segir ekki óeðlilegt að lóðareigandi
Landsímareits hafi skipað eitt af sjö
sætum í dómnefnd í samkeppni um
skipulag Landsímareits og Ingólfs-
torgs. Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu á miðvikudag gagnrýna
samtökin Björgum Ingólfstorgi og
Nasa (BIN) fyrirkomulagið harð-
lega. Telja þau fordæmalaust að
hagsmunaaðili komi að skipulagi al-
mannarýmis. „Hin sætin 6 voru skip-
uð pólitískum fulltrúum borgar-
stjórnarflokkanna og þremur
fulltrúum frá Félagi íslenskra arki-
tekta. Það er eðlilegt fyrirkomulag.
Samkeppnin snerist ekki síst um
fyrirkomulag og nýtingu húsa lóð-
areigandans. Strangt til tekið bar
honum ekki skylda til að samþykkja
tillögu borgarinnar um að fara með
skipulagið í samkeppni. Hann hefði
getað sótt um leyfi til að hefja bygg-
ingarframkvæmdir í samræmi við
það skipulag sem var þá gildandi og
gerði meðal annars ráð fyrir niður-
rifi húsanna Aðalstræti 7 og Vall-
arstræti 4, Nasa-salarins og gamla
Kvennaskólans,“ segir í svari Hjálm-
ars við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Þá gagnrýndi BIN-hópurinn einn-
ig að ekki hafi verið tekið tillit til
mótmæla gegn deiliskipulagi við
Landsímareit sem átján þúsund
manns undirrituðu. Hjálmar and-
mælir því. „Í deiliskipulaginu var
tekið tillit til mótmælanna með þeim
hætti að nýbyggingar við Vallar-
stræti voru lækkaðar úr 5 hæðum í
4. Einnig var tekið skýrt fram í deili-
skipulagstextanum að við Vallar-
stræti verði þjónusta og verslun en
ekki hótelrekstur,“ segir í svari
Hjálmars sem áréttar að til standi að
endurbyggja NASA sem fjölnota sal.
Ekki endilega hótel
BIN-hópurinn hefur einna helst
sett sig á móti því að hótel verði í
gamla Landsímahúsinu. „Mikilvægt
er að hafa í huga að í deiliskipulagi
er hótelið leyft en að það þurfi ekki
að rísa. Í gamla Landsímahúsinu og í
nýbyggingu sem á að rísa í Kirkju-
stræti segir eingöngu að þar eigi að
rísa miðborgarstarfsemi í deiliskipu-
laginu […] Þó eigandinn vilji reisa
þarna hótel, þá getur hann selt lóð-
ina ef annar aðili sér hag sinn í því að
reisa þarna aðra starfsemi,“ segir
Hjálmar.
Afskipti lóðareiganda eðlileg
Varaformaður skipulagsráðs í Reykjavík segir að tekið hafi verið tillit til mótmæla gegn deili-
skipulagi á Landsímareit Segir að lóðareiganda hafi ekki borið skylda til að samþykkja samkeppni
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 41,9 millj.
Sandavað1 1 0Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Samtals að stærð 126,3 m²
Sér hannaðar allar innréttingar
Mikil lofthæð og innfeld lýsing
Útgengi út á svalir úr stofu og
baðherbergi
Stæði í bílakjallara
Glæsileg íbúð með útsýni allan hringinn
Gjald sem fyrirtækjunum ber að
greiða í Umhverfissjóð sjókvíaeldis
verður tvöfalt hærra en lagt var til í
frumvarpi til laga um breytingar á
fiskeldislögum. Árgjaldið verður
rúmar 2000 krónur fyrir hvert tonn
sem leyfi er fyrir.
Í lögunum er verkefnum og
stjórnun sjóðsins einnig breytt, frá
því sem gert var ráð fyrir. Auk burð-
arþolsmats fjarða og vöktunar er
veitt heimild til að veita veiðirétt-
arhöfum styrki til að mæta kostnaði
eða tekjumissi vegna tjóns sem ekki
er hægt að rekja til ákveðinnar
stöðvar. Landssamband fiskeld-
isstöðva og Landssamband veiði-
félaga tilnefna fulltrúa í stjórn auk
fulltrúa umhverfis- og sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra.
Fleiri breytingar voru gerðar á
lögunum sem fiskeldismönnum
hugnast ekki. Guðbergur Rúnarsson
framkvæmdastjóri segir að þeim
hafi þó þótt mikilvægt að fá lögin
samþykkt fyrir þinglok. Annars
hefði ekki verið hægt að hefja rann-
sóknir í sumar. Hann getur þess að
boðuð sé heildarendurskoðun laga
um fiskeldi innan
átján mánaða.
Hafrann-
sóknastofnun
hefur pantað
búnað til mæl-
inga vegna burð-
arþolsrannsókna
og hefur ríkis-
stjórnin tryggt
fjármagn til þess
en það verður
tekið úr Umhverfissjóðnum þegar
hann fær tekjur. AVS-sjóðurinn og
Þróunarsjóður fiskeldismanna
greiða samtals um 15-16 milljónir til
að koma rannsóknunum af stað í
sumar, auk framlags Hafró. Haf-
rannsóknastofnun vinnur að rann-
sóknum í Dýrafirði, í samvinnu við
Dýrfisk. Þá verða hafnar rannsóknir
í Arnarfirði í sumar. Jafnframt er
ætlunin að gera burðarþolsmat fyrir
Tálknafjörð og Patreksfjörð á
grundvelli þeirra upplýsinga sem
þegar liggja fyrir og með viðbót-
arrannsóknum. Það gæti orðið
fyrsta formlega burðarþolsmatið.
helgi@mbl.is
Gjald í Umhverf-
issjóð tvöfaldað
Lax Unnið við
pökkun á laxi.
Burðarþolsrannsóknir hefjast í sumar
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Er ég á báðum hliðum? Ég vissi það ekki,“ sagði Ragnar
Bjarnason, tónlistarmaður með meiru, glaðlega þegar
hann handlék fyrstu plötuna sem var gefin út með hon-
um fyrir 60 árum, nánar tiltekið 26. maí árið 1954. Platan
er varðveitt á Þjóðarbókhlöðunni en Ragnar á sjálfur
ekki eintak af plötunni. „Þetta voru mjög brothættar
plötur. Mínar hafa eflaust eitthvað týnst í flutning-
unum.“
Á plötunni syngur Ragnar Bjarnason með KK-sext-
ettinum tvö lög, Í faðmi dalsins eftir Bjarna Gíslason og Í
draumi með þér (I’m walking behind you) eftir Billy Red.
Platan er 78 snúninga, 25 sentímetrar í þvermál og kom
út hjá hljómplötuútgáfu sem nefndist Tónika. Þá var
Ragnar tæplega tvítugur að aldri en hann verður 80 ára
22. september næstkomandi. Í auglýsingu plötunnar er
Ragnar kynntur sem hinn „nýi dægurlagasöngvari.“ Það
eru orð að sönnu en hann átti síðar meir eftir að verða
einn ástsælasti söngvari landsins.
Einstakt að spila með KK-sextett
„Lagið eftir Bjarna er mjög gott. Hann var alltaf að
gauka einhverjum lögum að okkur þegar við spiluðum
uppi á velli,“ rifjaði Ragnar upp um leið og hann tók við
kaffibollanum og bætti duglega nokkrum sykurmolum
útí. „Maður ætti að vera orðinn löngu dauður miðað við
allt sykurátið í gegnum tíðna og fréttirnar í dag.“ Ragnar
er eldhress og lætur vel af sér.
„Það var æðislegt að spila með KK-sextett. KK var
alveg einstakur maður, hann var svo ljúfur og góð mann-
eskja. Strákarnir í bandinu gerðu allt fyrir hann.“ Á
þessum tíma þegar platan var tekin upp var Ragnar ekki
kominn í bandið. Nokkru síðar varð hann söngvari KK-
sextetts og var í fjölda ára. „Það má segja að ég hafi
laumað mér inn í bandið bakdyramegin,“ segir Ragnar
og hlær. Platan var tekin upp í Ríkisútvarpinu sem var
þá við Austurvöll. „Allt var tekið upp eftir að dagskrá
lauk upp úr ellefu á kvöldin.“
Ragnar segist alltaf hafa verið staðráðinn í að vera
tónlistarmaður. Hann spilaði á trommur og fór ekki að
syngja fyrr en um 15 ára aldurinn. „Þá fór pabbi að láta
mig syngja eitthvað með körlunum. Hann vissi alltaf að
það byggi eitthvað í mér.“
Ragnar heldur veglega upp á árin 80 á þessu ári. Í
haust verða haldnir tónleikar í Hörpu og þar stígur á svið
með honum helsta tónlistarfólk landsins og karlakórar
eins og Karlakór Reykjavíkur og Álftagerðisbræður. Þá
munu einnig Jón Jónsson og Lay Low syngja með hon-
um. „Unga fólkið verður líka, það er nauðsynlegt að hafa
það með.“ Uppselt er á fyrstu tónleikana og nokkrir aðr-
ir komnir í sölu. „Ég ætla að sprella og hafa gaman að
þessu. Þetta má ekki verða of síft. Ég hef líka verið
spurður að því hvort þetta verði ekki örugglega eftir
mínu höfði.“
60 ár eru liðin frá fyrstu
plötu Ragga Bjarna
Einstakt að vinna með KK-sextett Stórafmæli í haust
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Plata Ragnar Bjarnason heldur á fyrstu plötunni sem hann söng inn á, fyrir 60 árum, en hann verður 80 ára í haust.